Fréttablaðið - 08.09.2021, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 08.09.2021, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Þetta eru svo hrikalega skrítnir tímar sem við lifum þannig að það var kominn mjög mikill kláði eftir að koma þessu til skila. Tæpu ári eftir að Covid-smit og lokanir komu í veg fyrir útgáfutónleika sólódisksins Don’t cry for me fylgir söng- konan Sigga Guðna plötunni nú loks formlega úr hlaði og notar tækifærið eðlilega til að syngja lagið Freedom sem gerði hana fræga með Jet Black Joe fyrir þremur áratugum. toti@frettabladid.is „Þetta er náttúrlega bara ofboðslega þreytt og erfitt að hafa þurft að bíða svona lengi eftir að halda útgáfutón- leikana,“ segir Sigríður Guðnadóttir sem hefur beðið í tæpt ár eftir að geta fagnað sólóplötunni Don’t cry for me á tónleikum. „Manni finnst maður ekkert vera búinn að skila efninu til fólks fyrr en maður er búinn með útgáfutón- leikana og þetta eru svo hrikalega skrítnir tímar sem við lifum þannig að það var kominn mjög mikill kláði eftir að koma þessu til skila á sviði,“ segir söngkonan um tónleikana sem hún heldur í Bæjarbíói í Hafnarfirði þann 18. september. Skrítin í hausnum „Þetta er Covid-plata,“ heldur Sigga áfram og hlær. „Það er mjög súrr- ealískt að standa í útgáfu á svona tímum þannig að ég er búin að fresta tónleikunum örugglega þrisv- ar eða fjórum sinnum. Þeir áttu að vera 16. október 2020 en enda núna 18. september 2021 og það er bara æðislegt að komast loksins á svið og syngja tónlistina,“ segir Sigga sem í titillagi plötunnar af þakkar allan harmagrát. „Það eru náttúrlega margir búnir að lenda í þessu en maður tekur bara lífinu eins og það er,“ heldur hún áfram og hlær þegar hún rifjar upp að sjálf var hún komin með Covid þegar tónleikarnir áttu að fara fram upphaflega. Alltaf eitthvert rugl „Þannig að ég hefði ekki einu sinni getað mætt þó það hefði allt verið opið. Ég fann nú ekki fyrir neinu samt. Bara almenn leiðindi og svo var ég jú eitthvað svona skrítin í hausnum,“ segir Sigga. „Ég gaf út disk 2010 og það fór nú allt í rugl þá líka út af allt öðrum málum. Það er alltaf eitthvað en Don’t cry for me er annar sóló- diskurinn sem ég gef út. Þetta er sambland af frumsömdu efni eftir mig, Sigurgeir Sigmundson og Frið- rik Karlsson. Síðan eru þarna lög eftir bróður minn, Loft Guðnason, og Írisi Guðmunds söngkonu,“ segir Sigga og bætir við að á disknum séu einnig tvö eldri tökulög; Black dog með hljómsveitinni Babe Ruth og einn íslenskaður blúsari frá banda- rísku söngkonunni Völu heitinni Cupp. Vá, magnað! „Þá má einnig nefna að Páll Rósin- kranz tekur lag með mér á disknum og syngur einnig með mér á tónleik- unum,“ segir Sigga um systurson sinn en hún sló einmitt fyrst í gegn þegar hún söng lagið Freedom með honum og hinni fornfrægu hljóm- sveit Jet Black Joe árið 1993. „Ég ætla náttúrlega líka að taka þennan gamla Jet Black Joe slagara og svona alls konar annað með í bland,“ segir Sigga um lagavalið á tónleikunum sem mun teygja sig í ýmsar áttir út fyrir nýju plötuna. Freedom er vitaskuld löngu orðið sígilt og naut á sínum tíma fádæma vinsælda. Og gerir í raun enn þannig að furðu vekur hjá sjálfri söngkon- unni. „Það er ennþá spilað svo mikið svona mörgum, mörgum árum síðar að maður hugsar bara stundum: Vá, magnað!“ Skjól í fasteignum Sigga segist aðspurð hafa reynt að sinna tónlistinni eftir atvikum í kófinu en hún hafi lítið fengist við að semja nýtt efni á meðan segja má að Don’t cry for me hafi verið fast í Covid-flöskuhálsinum. „Maður er náttúrlega alltaf eitt- hvað að bardúsa og kannski mest bara verið í einkapartíum og ein- hverju slíku. Ég hef ekkert farið í að gefa meira út á meðan ég hef ekki einu sinni getað komið því til skila. Það kostar náttúrlega alltaf ein- hvern pening að gefa út þannig að maður fer kannski að huga meira að því þegar þetta er allt orðið eðli- legt.“ Sigga hefur einnig verið fast- eignasali um árabil og nýtur þess að sá markaður hefur blómstrað í faraldrinum. „Það er búið að vera brjálað að gera alveg og það hefur bara bjargað geðheilsunni að þetta hafi ekki hrunið líka. Þetta er náttúrlega búið að vera rosalega erfitt fyrir marga sem hafa bara haft tekjur af sviðslistunum eða ferðamannabransanum en ég hef verið mjög heppin með að vera í góðri vinnu og skemmtilegu starfi sem ég fíla vel.“ Miðasala á útgáfutónleikana er hafin á tix.is en þeir hefjast klukk- an 20 að kvöldi laugardagsins 18. september. Hljómsveitin verður skipuð þeim Sigurgeiri Sigmunds á gítar, Jóa Ásmunds á bassa, Þóri Úlfarssyni á píanó og Birgi Nielsen á trommum. Þá leikur Grétar Lárus Matthíasson á gítar og syngur bak- raddir. Íris Guðmundsdóttir, Páll Rósinkranz og f leiri gestir munu syngja með Siggu á sviðinu. n Sigga Guðna fagnar frelsinu eins og henni einni er lagið Sigga Guðna getur loksins haldið lang- þráða út- gáfutónleika sólódisksins Don’t cry for me og ætlar að sjálf- sögðu einnig að fagna með því að syngja lagið Freedom sem gerði hana fræga með Jet Black Joe fyrir þremur ára- tugum. MYND/AÐSEND 26 Lífið 8. september 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut og hringbraut.is *Áhorfskönnun MMR - 26. nóv. - 4. des. 2020 ÞJÓÐIN ER AÐ HORFA Á HRINGBRAUT!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.