Fréttablaðið - 08.09.2021, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 08.09.2021, Blaðsíða 4
Þá gæti alveg eins farið að gjósa í sjó og það yrði bölvað vesen. Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur. Ég mun ávallt sinna vitnaskyldu minni þegar ég mæti hjá dómara. Sveinn Andri Sveinsson, skiptastjóri þrotabús WOW air. Héraðsdómur Reykjaness verður við kröfu um að halda vitnaleiðslur vegna hvarfs og meintrar óheimillar notkunar flugfélagsins Play á flugrekstr­ arhandbókum WOW air. gar@frettabladid.is DÓMSMÁL Páll Ágúst Pálsson, lög­ maður félags Michele Ballarin, USA­ erospace Partners, sem keypti eignir af þrotabúi WOW air fyrir 50 millj­ ónir króna, óskaði eftir því í júní að Héraðsdómur Reykjaness myndi kveðja ellefu tiltekna einstaklinga til svokallaðrar vitnaleiðslu. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í júní grunar Pál að f lugrekstrar­ handbækur WOW, sem voru meðal verðmæta sem Ballarin keypti úr þrotabúinu, hafi verið teknar og notaðar sem fyrirmynd flugrekstr­ arhandbóka flugfélagsins Play. „Flugrekstrarhandbækur hins fallna WOW air hafi ekki fundist í fórum félagsins og við teljum að þessir aðilar kunni að geta gefið innsýn um það annað hvort hvar þessar bækur voru geymdar eða hvað hafi orðið um þær,“ segir Páll Ágúst. „Nú er málið komið í hendur dómstóla hvað þetta varðar.“ Héraðsdómur Reykjaness féllst á að kalla fjóra menn fyrir. Verða það Finnbogi Karl Bjarnason, sem er í dag flugrekstrarstjóri Play og starf­ aði einnig sem slíkur undir lokin hjá WOW, Arnar Már Magnússon, fyrr­ verandi forstjóri Play, sem gegndi ýmsum ábyrgðarstörfum hjá WOW og Margrét Hrefna Pálsdóttir, sem var öryggis­ og gæðastjóri hjá WOW og er nú í sama starfi hjá Play. Að auki verður kallaður til vitnis Sveinn Andri Sveinsson, annar tveggja skiptastjóra WOW, sem sjálfur hefur reynt að grafast fyrir um handbækur WOW. Fram kom í Fréttablaðinu 22. júní síðastliðinn að Sveinn Andri sagðist í tölvu pósti til Sam göngu stofu hafa fengið upp lýsingar um að stofn­ endur Play hefðu hag nýtt sér af­ ritaðar hand bækur WOW. „Rétt er að taka fram að skipta­ stjórar hafa ekki veitt neitt leyfi til slíkrar hag nýtingar, enda gengi það gegn samningum búsins við sinn við semjanda við sölu téðra f lug­ rekstrar hand bóka,“ skrifaði Sveinn og spurði hvort Samgöngustofa gæti stað fest að flug rekstrar hand bækur Play væru að stofni til þær sömu og hand bækur WOW. Aðspurður hvort honum hafi borist svör frá Samgöngustofu kveðst Sveinn Andri ekki vilja ræða um samskipti sín sem skiptastjóra við stofnunina. Hann muni glaður mæta til vitnaleiðslu. „Ég mun ávallt sinna vitnaskyldu minni þegar ég mæti hjá dómara,“ segir skiptastjórinn. Birgir Jónsson, forstjóri Play, hafnaði því algjörlega í samtali við Fréttablaðið 22. júní að félagið hefði tekið flugrekstrarhandbækur WOW. „Þetta er al gjör lega fjar stæðu kennt,“ sagði forstjórinn. n Héraðsdómur heimilar vitnaleiðslur vegna flugrekstrarhandbóka WOW Flugsæti úr flota WOW air eru meðal þess sem fylgdu þegar Michelle Ballarin keypti eignir úr þrotabúi WOW air. MYND/AÐSEND Michelle Ball- arin, eigandi USA erospace Partners. - heimur fágaðra möguleika www.modern.is FAXAFEN 10 · 108 REYKJAVÍK · 534 7777 - ALLT AÐ 20% AFSLÁTTUR AF PÖNTUNUM SVO ÞÚ FÁIR HÚSGÖGNIN ÖRUGGLEGA HEIM FYRIR JÓLIN 7. - 16. SEPTEMBER benediktboas@frettabladid.is SAMGÖNGUR „Það er erfitt að draga aðra ályktun en þá að þarna séum við að sjá beina afleiðingu af hörð­ um, viðvarandi og síbreytilegum sóttvarnaaðgerðum á landamær­ unum,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri við­ skipta og þróunar hjá Isavia, í til­ kynningu. Guðmundur segir að nærri 900 þúsund farþegar hafi farið um Keflavíkurflugvöll í sumar en dreg­ ið hafi úr eftirspurn. Útlit sé fyrir að 15 f lugfélög f ljúgi um Keflavíkur­ flugvöll í vetur. „Það getur hæglega breyst, meðal annars ef aðgerðir á íslensku landamærunum verða áfram harðari en annars staðar og þar af leiðandi harðari en á f lug­ völlum sem við erum helst í sam­ keppni við.“ n Færri flugfarþegar koma til Íslands Nærri 900 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI kristinnpall@frettabladid.is ATVINNULÍF Konur voru með 4,3 prósentum lægri laun en karlar árið 2019 samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Með því hefur bilið minnkað um þriðjung á níu árum ef miðað er við leiðréttan launamun, árið 2010 var munurinn 6,2 prósent. Ef horft er til óleiðrétts launa­ munar er munurinn 13,9 prósent sem er þó samdráttur frá árinu 2010 þegar óleiðréttur launamunur kynjanna var 17,5 prósent. n Minni munur á launum kynjanna Launamunur minnkaði um þriðjung. linda@frettabladid.is LÍFEYRISSJÓÐIR „Kerfið er að stækka og sjóðirnir eru að skila gríðarlega góðum árangri,“ segir Þórey S. Þórð­ ardóttir, framkvæmdastjóri Lands­ samtaka lífeyrissjóða, á Fréttavakt­ inni á Hringbraut í gærkvöld um 25 milljarða króna rekstrarkostnað lífeyrissjóðanna líkt og Fréttablaðið greindi frá. „Skrifstofu­ og stjórnunarkostn­ aðurinn hefur nokkurn veginn stað­ ið í stað í gegnum árin og hlutfalls­ lega verið að lækka því hann miðast við eignir og kerfið er orðið yfir sex þúsund milljarðar,“ sagði hún. Þórey bendir á að hreinar fjár­ festingatekjur í fyrra hafi verið 675 milljarðar sem er að frádregnum rekstrarkostnaði og fjárfestinga­ kostnaði og iðgjöldin 273 millj­ arðar. Kostnaður við skrifstofu og stjórnun hafi verið 8,4 milljarðar. Fjárfestingagjöld vegna úthýsinga til verðbréfasjóða og fjárfestinga­ félaga fóru hins vegar úr 6 milljörð­ um í 15 milljarða í rekstrarkostnaði á fjórum árum. Um það segir Þórey: „Þegar vel árar og eignirnar eru að stækka og þar af leiðandi eignir almennings þá eykst þessi kostnaður óhjákvæmilega.“ Vegna stærðarhagkvæmni hafi stórir sjóðir haft betri stöðu til þess að ná niður miðlunarkostnaði og beitt sér með þeim hætti en mikil­ vægt sé að hin óbeinu fjárfestinga­ gjöld séu uppi á borðum eins og nú sé, segir Þórey. Seðlabankinn setti árið 2015 reglur þar sem gerð var rík krafa um sundurliðun og gegnsæi. „Þessar tölur eru uppi á borði og fjármála­ eftirlit Seðlabankans birtir þessar tölur og lífeyrissjóðirnir sjálfir eru með ítarlegar upplýsingar um sinn rekstrarkostnað og Landssamtökin líka,“ segir hún og segist fagna umræðunni. „Ég finn að sjóðirnir eru mjög meðvitaðir um að reyna að draga úr rekstrarkostnaði. Það er mikið aðhald og eftirlit eins og nú er.“ n Stækkandi lífeyrissjóðir skýra kostnaðinn við reksturinn Þórey S. Þórðar- dóttir, fram- kvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. gar@frettabladid.is ELDGOS Þorvaldur Þórðarson eld­ fjallafræðingur segir of snemmt að segja að gosinu í Geldingadölum sé lokið þótt engin kvika hafa náð yfirborði síðan á fimmtudaginn í síðustu viku. „Það er einhver kvika þarna í gangi sem er að afgasast en það er eitthvað sem hefur valdið því að kvikan kemst ekki upp. Það er spurning hvort það sé að draga úr streyminu eða hvort rásin hafi lokast og kvikan sé að reyna að opna hana aftur,“ segir Þorvaldur. Vegna þess hversu gígurinn reyki mikið segir Þorvaldur líklegt að kvika sé tiltölulega grunnt undir. „Gos af þessu tagi hafa tekið allt að tveggja vikna pásu en við getum ekki útilokað að þetta sé smátt og smátt að deyja út,“ segir hann. Haldi sama þróun áfram næstu daga kveðst Þorvaldur þó haldi að gosinu sé að ljúka. Með gosinu í Geldingadölum er hafið eldgosatímabil á Reykja­ nesskaga. Spurningin er hvar gjósi næst. „Miðað við það sem hefur verið í gangi á undanförnum einum eða tveimur árum þá myndi maður halda að það yrði annað hvort úti á Reykjanesi eða við Sundhnjúkana,“ segir Þorvaldur. „Þá gæti alveg eins farið að gjósa í sjó og það yrði bölvað vesen. Það yrði öskugos sem hefði áhrif á flugvöllinn,“ segir Þor­ valdur. n Geldingadalagosið gæti tekið tveggja vikna hlé 4 Fréttir 8. september 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.