Fréttablaðið - 08.09.2021, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 08.09.2021, Blaðsíða 13
Áverkarnir komu hvorki fram í yfir- heyrslum í héraði né í Hæstarétti. Þar var hún dæmd fyrir að hafa haft sam- farir við nauðgara sinn og morðingja við svalirnar. Dóttir mín Áslaug Perla Kristjóns­ dóttir og Ásgeir Ingi Ásgeirsson fóru um dyrnar að Engihjalla 9, 27. maí 2000, að lyftunni. Hann stjórnaði för. Þau komu út á 10. hæð, en þar voru engar íbúðir. Það eru miklu meiri líkur á að hann hafi valið stað­ inn sjálfur heldur en hann hafi lent þarna fyrir hreina tilviljun. Hann hafði aðgang að stigaganginum. Hálfsystir hans og mágur bjuggu í kjallaranum. Þau sögðu hann mjög of beldishneigðan. Hann hafði óheftan aðgang að stigaganginum. Hann réðst á hana um leið og þau komu út úr lyftunni. Hann beitti það miklu afli og offorsi, að hann náði að þröngva gallasmekkbuxun­ um niður að hnjám í einni atrennu og brjóta aðra sylgjuna. Hún féll í gólfið, en náði að sparka tvisvar í hann, en gat ekki staðið upp. Hann henti sér yfir hana og tætti glænýjar nærbuxur hennar í sundur á báðum hliðum. Reif þær síðan undan henni og setti í rassvasann. Þá fékk hún 1x4 sm langa afrifu á annan skapa­ barminn. Ríkissaksóknari, sem fór með málið, sagði í Hæstarétti að hún hefði verið að hámarki tíu mínútur inni í blokkinni. Ásgeir þóttist ekki vita hvar hann fór út úr lyftunni. Hún barðist af öllu af li á móti honum, en honum tókst að nauðga henni. Þrátt fyrir það barðist hún áfram; barði hann og klóraði, marg­ ir áverkar blóðugir. Gallasmekk­ buxurnar og axlaböndin þvældust fyrir og að lokum missti hann lim­ inn úr leggöngum hennar. Þá kýldi hann hana af öllu afli í ennið. Hún missti meðvitund. Hann var fljótur að ákveða að myrða hana. Það segir tímasetning ríkissaksóknara. Setti veski hennar yfir axlirnar og tók hana í fangið. Hann var f ljótur að finna litlu svalirnar. Það var smá gönguspölur þangað. Hann þekkti plássið, eins og lófann á sér. Bar hana síðan út á svalirnar og lagði hana á magann á handriðið. Hún rankaði við sér og rak upp skað­ ræðisvein, þá ýtti hann henni fram af. Hann fór inn í brunastigahúsið, vissi auðvitað að innangengt var inn í það af svölunum, henti vesk­ inu síðan á efsta pallinn. Fór síðan á næsta stigapall, reykti þar 5 sígar­ ettur, drakk landa sem hann hafði meðferðis og fór þaðan í kjallarann til hálfsystur sinnar. Málið var alfarið órannsakað. Það var minnst á brotnu sylgjuna í Morðið við Engihjalla – engar íbúðir á tíundu hæð einni yfirheyrslu. Þá eru sönnunar­ gögnin upp talin. Þeir sem áttu að rannsaka málið vissu hvernig hann myrti hana. Það kom fram í héraðs­ dómi. Þegar borið var efni, sem sýnir húðfitu, á rör handriðs mátti sjá handaför á sitt hvorum enda þess og langt fitufar í miðið eftir líkama. Þetta var húðfita af Áslaugu Perlu. Nóg var af sönnunargögnum og sum komu fram í héraðsdómi, en þau voru bara hunsuð. Hann viðurkenndi verknaðinn sam­ dægurs. Sagðist myndu drepa lög­ regluna og börn hennar þegar hann losnaði eftir 15 til 20 ár, eftir þann verknað er hann hafði framið núna. Hann breytti framburði sínum í harkalegt kynlíf. Hann var tekinn gildur, sem er fyrirlitlegt. Það voru engin sönnunargögn lögð fyrir í Hæstarétti. Ekki einu sinni áverka­ vottorð. Áverkar á Áslaugu Perlu: Rispur í andliti og úlnliðssvæði utanverðu. Skrámur á fingrum og hnúum. Mar á vinstri framhand­ legg utanverðum. Mar á hægri og vinstri olnboga aftanvert. Kom við fallið á gólfið. Marblettur 2,5­3 sm í þvermál á enni, auðsjáanleg stór kúla við kistulagningu. Afrifa á ytri kynfærum; 1 sm á breidd 4 sm á lengd. – Hæstiréttur gaf í skyn að hún hefði samþykkt þessa afrifu, en hún kom þegar ákærði reif nær­ buxurnar undan henni. Áverkarnir komu hvorki fram í yfirheyrslum í héraði né í Hæstarétti. Þar var hún dæmd fyrir að hafa haft samfarir við nauðgara sinn og morðingja við svalirnar. Ég mun aldrei geta leiðrétt dóminn, nema með hjálp. ■ Gerður Berndsen Til umræðu verða áherslur ASÍ vegna þingkosninganna 2021 sem kynntar hafa verið undir yfirskriftinni „Það er nóg til“. Sérstaklega verður rætt um húsnæðismál, heilbrigðismál, menntamál, atvinnumál og afkomu og jöfnuð. Á morgun, fimmtudaginn 9. september kl. 11:00 Stjórnandi pallborðsins er Kristján Kristjánsson fjölmiðlamaður. Umræðurnar fara fram í stóra salnum á Hilton Nordica, Suðurlandsbraut 2. Gestir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Hægt er að skrá sig á þessari slóð: www.asi.is/pallbord Atburðinum verður streymt á Facebook síðu ASÍ og á Vísi.is Formenn stjórnmálaflokkanna í pallborði ASÍ MIÐVIKUDAGUR 8. september 2021 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.