Fréttablaðið - 14.08.2021, Side 64
Föðursystir okkar og mágkona,
Sigrún Jónsdóttir
Hraunvangi 7,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
lést 28. júlí sl. Útför Sigrúnar hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sólveig Kristjánsdóttir
Sigríður Kristjánsdóttir
Kristján Rúnar Kristjánsson
Stella Á. Kristjánsdóttir
Ragnar Frank Kristjánsson
Ásdís G. Konráðsdóttir
og fjölskyldur.
Faðir minn,
Ingimundur Konráðsson
lést þann 30. 7. sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Jakob Ingimundarson
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Kristmundur Elí Jónsson
verslunarmaður,
sem lést 31. júlí sl.,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
í Reykjavík 16. ágúst kl. 13.00.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir Friðrik Sophusson
Kristbjörg Elín Kristmundsdóttir
Guðrún Björk Kristmundsdóttir Jónas Björn Björnsson
Júlía Kristmundsdóttir Sanford Mahr
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hlöðver Hallgrímsson
Hraunvangi 3, Hafnarfirði,
lést miðvikudaginn 4. ágúst
á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi,
Hafnarfirði. Útförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju, fimmtudaginn 19. ágúst kl. 13.
Athöfninni verður einnig streymt á
https://www.facebook.com/groups/hlodver
Guðrún Númadóttir
Ásdís Hlöðversdóttir
Sædís Hlöðversdóttir Eggert Karvelsson
Díana Hlöðversdóttir
Sóley Ólöf Hlöðversdóttir Heiðar Jóhannsson
Bjarney Kristín Hlöðversdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri
Guðmundur Baldvinsson útfararstjóri Jón G. Bjarnason útfararstjóri
Okkar ástkæra móðir,
tengdamóðir og amma,
Lilja Guðnadóttir
nudd- og snyrtifræðingur,
lést á heimili sínu þann 5. ágúst sl.
Útförin fer fram í kyrrþey að hennar ósk.
Blóm og kransar afþakkaðir, en
útfararsjóður hefur verið stofnaður og munu
allar aukakrónur renna til styrktarsjóðs Ljóssins.
Reikningsnúmer: 0370-26-027341 og kt. 070989-2479.
Aðstandendur senda hjartans þakkir til starfsmanna
Heru heimahjúkrunarþjónustu, krabbameinsdeildar LSH
og Ljóssins.
Karen Sif Óskarsdóttir Birgir Jakob Hansen
Sandra Óskarsdóttir Ellen Björg Björnsdóttir
Evita Dögg Liljudóttir Björn Birgisson
og barnabörn.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 14. ágúst 2021 LAUGARDAGUR
Sett hafa verið upp fróðleiks-
skilti um Valþjófsstað í Fljótsdal í
snoturri umgjörð rétt við kirkj-
una. Það sögusvið verður form-
lega opnað á morgun. Hjörleifur
Guttormsson átti hugmyndina.
gun@frettabladid.is
„Valþjófsstaður á sér langa sögu sem
kirkjustaður og höfuðból. Á henni
er stiklað í máli og myndum innan
haganlegs ramma. Við köllum þetta
sögusvið,“ segir Hjörleifur Guttorms-
son, fyrrverandi ráðherra, um reit
sem vígður verður við Valþjófs-
staðarkirkju í Fljótsdal klukkan 14 á
morgun.
Hjörleifur er upphafsmaður að
framkvæmdinni og kveðst hafa fengið
hugmyndina fyrir fjórum árum, síðan
hafi verkefninu þokað áfram með
góðra manna aðstoð. Hann nefnir sér-
staklega Guðmund Rafn Sigurðsson,
framkvæmdastjóra Kirkjugarðssjóðs,
í því sambandi.
Staðurinn færður til
Hjörleifur er fæddur á Hallorms-
stað. Hann þekkir því Valþjófsstað
frá æskuárum og er mikið búinn að
lesa síðan og skrifa. „Það eru víða til
heimildir um Valþjófsstað í söguritum
og skjölum sóknarnefnda,“ segir hann.
„Staðurinn var áður uppi undir fjall-
inu. Þar var byggð kirkja í kringum
1200 sem stóð í um 550 ár, til 1743.
Fyrir henni var Valþjófsstaðarhurðin
sem varðveitt er á Þjóðminjasafninu.
Staðurinn er þekktastur fyrir hana.
Hún lenti í Kaupmannahöfn um tíma
en var gefin til baka til Íslands. Innri
hurð kirkjunnar sem nú er á Valþjófs-
stað er endurgerð af henni, prýðilega
skorin út af Halldóri Sigurðssyni á
Miðhúsum.“
Prestsbústaðurinn upp við fjallið
var merkilegur skáli, hár og mikið
útskorinn, að sögn Hjörleifs. „And-
spænis honum stóð gamla stafkirkjan
og tvær á eftir henni, þar til 1888
að reist var ný kirkja niðri á grund-
unum, um 200 metra frá þeirri gömlu.
Það sem mér hefur þótt undarlegast er
að kirkjugarðurinn var lagður niður
og sléttaður. Hans sér engin merki
nú, heldur er þar eins og hver annar
bithagi. Ég lét fara með jarðsjá yfir
garðinn til að átta mig á stærð hans,“
lýsir Hjörleifur. „Út úr þeim rannsókn-
um þróaðist sú hugsun að gera yfirlit
yfir söguna fyrir gesti sem heimsækja
Valþjófsstað.“
Skírður eftir presti frá 18. öld
Hjörleifur trúir mér fyrir því í lokin að
hann heiti eftir presti sem sat staðinn
í meira en hálfa öld. „Sá hét Hjörleifur
Þórðarson og dó 1786, en var prestur í
69 ár, fyrst í sinni fæðingarsveit, Álfta-
firði, síðan á Hallormsstað og svo Val-
þjófsstað. Hann var seigur, ágætt skáld
og eftir hann liggja rímur og sálmar.
Svo þýddi hann alla passíusálmana á
latínu, sem var alþjóðamál þess tíma,
og fékk þá útgefna í Kaupmannahöfn
1785, ári áður en hann dó. Eintak er
varðveitt á Landsbókasafni og ég á
bókina ljósritaða.“ n
Gamalli sögu gerð ný skil
Hjörleifur við bæinn
á Hallormsstað
sem afi hans og
amma byggðu 1884
og hann fæddist í
haustið 1935. Húsið
er friðað en er bú-
staður skógarvarðar.
Viðbygging er frá
1928.
MYND/ANNA KRISTÍN
EINARSDÓTTIR
Umgjörðin er traust fyrir þá sögu sem hér er sett á svið.