Fréttablaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 65
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Elskuleg systir mín
og föðursystir okkar,
Kristín Gísladóttir
frá Litla-Lambhaga, Hvalfjarðarsveit,
áður til heimilis að Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavík, lést að hjúkrunarheimilinu
Sóltúni laugardaginn 7. ágúst. Útför hennar
fer fram frá Fossvogskapellu 18. ágúst kl. 11.
Snæbjörn Gíslason
Hrefna Sigurðardóttir
Ármann Sigurðsson
Sigurjón Sigurðsson
Þóra Gísladóttir
Gísli Gíslason
Björgvin Ómar Gíslason
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi, bróðir og mágur,
Erik Bo Eiríksson
lést á heimili sínu í Danmörku
mánudaginn 9. 8. sl. eftir langvarandi
baráttu við krabbamein.
Útförin fer fram miðvikudaginn 18. 8.
kl. 14.00 frá Hals kirkju.
Tove Andersen
Lars Bo Eiríksson Sophie Heidemann
Alex Örn Eiríksson
Racel Eiríksson Oddur Garðarsson
Svea og Nana
Yndislega móðir okkar, dóttir,
systir, frænka og vinkona,
Unnur Guðrún
Rögnvaldsdóttir
Laugarvegi 37,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands,
Siglufirði, þann 10. ágúst sl. Útförin fer
fram frá Siglufjarðarkirkju, laugardaginn 21. ágúst nk.
klukkan 11.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir,
en þeim sem vilja minnast Unnar Guðrúnar er bent á
söfnunarreikning nr. 348-13-000017, kt. 110557-5669,
til styrktar börnum hennar. Athöfninni verður streymt í
gegnum hlekkinn:
https://youtu.be/iSGED9sHye8
Hilmir Darri Kristinsson Auður Anna Kristinsdóttir
Auður B. Erlendsdóttir Rögnvaldur G. Gottskálksson
Aðalheiður Rögnvaldsdóttir Guðjón H. Sigurbjörnsson
Lárey Lind Guðjónsdóttir Magnea Mist Guðjónsdóttir
Kristinn Kristjánsson Arnór Gauti Kristinsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Helga Sigrún Helgadóttir
Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
sunnudaginn 8. ágúst.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju,
þriðjudaginn 24. ágúst kl. 13.00. Í ljósi aðstæðna munu
einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir
athöfnina. Innilegar þakkir til starfsfólks D-deildar
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, fyrir einstaka
umönnun og hlýtt viðmót.
Helena Rafnsdóttir Vilberg Jóhann Þorvaldsson
Helgi Ingólfur Rafnsson Þórdís Árný Sigurjónsdóttir
Ólöf Elín Rafnsdóttir Róbert Jóhann Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Einar Helgi Haraldsson
bóndi, Urriðafossi,
Lyngmóa 9, Selfossi,
lést á Landspítalanum, Hringbraut,
4. ágúst. Jarðarförin fer fram frá
Selfosskirkju miðvikudaginn 18. ágúst kl. 13.
Vegna samkomutakmarkana verða aðeins
nánustu aðstandendur viðstaddir og verður
þeim boðið til athafnarinnar. Streymt
verður frá athöfninni á www. selfosskirkja.is
Lilja Böðvarsdóttir
Haraldur Einarsson Birna Harðardóttir
Hanna Einarsdóttir Dagur Arngrímsson
Arnar Einarsson Emilía Björg Atladóttir
Dagur Fannar Einarsson
Daði Kolviður Einarsson
og barnabörn.
Ástkær pabbi okkar, sonur og bróðir,
Páll Hlöðver Kristjánsson
Snægili 6, Akureyri,
lést miðvikudaginn 11. ágúst. Útför
hans fer fram frá Akureyrarkirkju,
miðvikudaginn 18. ágúst kl. 13.00.
Sigmar Pálsson Bergþóra Hrund Bergþórsdóttir
Inga Rakel Pálsdóttir Kató Birnir Hauksson
Kristján Jósefsson Anna Kristinsdóttir
Kristján Víðir Kristjánsson
Kristín Kristjánsdóttir Ólafur E. Rúnarsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Aðalsteinsson
lést laugardaginn 31. júlí. Útförin fer
fram frá Bústaðakirkju, miðvikudaginn
18. ágúst klukkan 15. Streymt verður
frá athöfninni á https://youtu.be/
EKeP7EGkubQ. Einnig má nálgast slóð á
mbl.is/andlát á útfarardaginn.
Steinunn Aðalsteinsdóttir
Aðalsteinn Guðmundsson Ásta S. Aðalsteinsdóttir
Birgir Örn Guðmundsson
Gunnlaug Guðmundsdóttir
Guðm. Gylfi Guðmundsson Helga Aspelund
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
Bergþóra Bachmann
Friðgeirsdóttir
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 10. ágúst.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
í Reykjavík, þriðjudaginn 24. ágúst
klukkan 13.00.
Baldur Magnús Stefánsson
Stefán Rúnar Baldursson
Friðgeir Magni Baldursson Björg Pétursdóttir
Egill Brynjar Baldursson Halla Arnar
Eyrún Þóra Baldursd. Bachmann
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær bróðir, mágur
og frændi okkar,
Óskar Helgi S. Margeirsson
áður til heimilis að Brávallagötu 26,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
hinn 17. ágúst kl. 15.00. Útförinni verður
einnig streymt. Hlekk á streymið
má finna á mbl.is/andlat
Guðjón Margeirsson Margrét Jónsdóttir
Jóhanna Jónasdóttir og aðrir aðstandendur.
Hjartkær móðir okkar, stjúpmóðir,
tengdamóðir, systir, amma og
langamma,
Ingibjörg Björnsdóttir
Kópavogsbraut 1b,
lést á líknardeild Landspítalans á 85 ára
afmælisdaginn sinn, 6. ágúst 2021.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 18. ágúst kl. 13. Streymt verður frá
athöfninni, hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlát.
Halldóra Viðarsdóttir Jóhann Úlfarsson
Kristín Ingu Viðarsdóttir Timothy Hercules Spanos
Björn Leví Viðarsson
Einar Ingi Magnússon Sigrún Guðmundsdóttir
Sigrún Magnúsdóttir Jón Helgason
Ása Magnúsdóttir
Ragnhildur Magnúsdóttir
Guðmundur Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
Guðrún Ingibjörg
Kristmannsdóttir
frá Brekkuholti, Stokkseyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum
laugardaginn 7. ágúst. Jarðarförin fer fram
frá Stokkseyrarkirkju mánudaginn 16. ágúst kl. 14.00.
Þorgerður Lára Guðfinnsdóttir
Kristmann Guðfinnsson Katrín Guðmundsdóttir
Oddgeir Bjarni Guðfinnsson Björk Stefánsdóttir
Guðríður Guðfinnsdóttir Sigurður Guðjónsson
Guðrún Guðfinnsdóttir Guðmundur Guðlaugsson
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir færum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, stjúpmóður,
ömmu og langömmu,
Katrínar Jónsdóttur
Árskógum 6, Reykjavík.
Eyrún Magnúsdóttir
Andrés Magnússon Áslaug Gunnarsdóttir
Jón Magnússon Guðrún Bergþórsdóttir
Ásmundur Magnússon Ásdís Þrá Höskuldsdóttir
Steinunn S. Magnúsdóttir Jesper Madsen
Sæmundur Þ. Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Þann 14. ágúst 1942 kom vél fram á
ratsjá breska hersins í Vík sem var í
fyrstu talin vinveitt. Þegar hún fylgdi
ekki venjulegri aðflugsstefnu vaknaði
grunur um að um óvinveitta vél væri
að ræða og fljótlega kom í ljós að vélin
væri þýsk FW-200 Condor sprengjuvél
sem var á ellefta tímanum á norður-
leið sunnan við Grindavík.
Til að svara ógninni stökk banda-
ríski majórinn John W. Weltman upp
í P-38 Lightning vél sína og tveir aðrir
bandarískir flugmenn sem voru þegar
á flugi sneru för sinni við. Weltman
kom fyrstur auga á vélina og hóf skot-
hríð sem Þjóðverjarnir svöruðu, og
skömmu síðar blönduðu hinir banda-
rísku flugmennirnir sér í leikinn. Con-
dor-vélin sprakk eftir að skot hæfði
hana í sprengjuhólfið og fórust allir
um borð. Þetta er talinn fyrsti sigur
bandaríska lofthersins í Evrópu í seinni
heimsstyrjöldinni. n
Þetta gerðist: 14. ágúst 1942
Þýsk sprengjuflugvél skotin niður
FRÉTTABLAÐIÐLAUGARDAGUR 14. ágúst 2021 Tímamót 29