Fréttablaðið - 14.08.2021, Side 40
Sunnulækjarskóli
Vegna forfalla er staða umsjónarkennara í 3. bekk
við Sunnulækjarskóla á Selfossi laus til umsóknar
fyrir skólaárið 2021-2022.
Í Sunnulækjarskóla eru um 700 nemendur og þar er lögð áhersla
á fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu
kennara, ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að
skólastarfinu koma.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Kennsluréttindi og sérhæfing á grunnskólastigi
• Áhugi og reynsla af teymiskennslu
• Góð samskiptahæfni og góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
• Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum aðalnámskrá
grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
• Umsjón með daglegu skólastarfi er varðar viðkomandi
umsjónarhóp
• Er tengiliður umsjónarhóps innan skólans og við foreldra/
forráðamenn
• Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og
líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir
fái notið sín sem einstaklingar
• Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og
sveitarfélags
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 10 þúsund manns og
lögð er áhersla á öflugt skóla- og frístundastarf og góða
velferðarþjónustu. Skólar og aðrar deildir fjölskyldusviðs vinna að
því að styrkja heildstæða nærþjónustu við börn, foreldra og skóla.
Áhersla er lögð á snemmtækan stuðning, góð tengsl skóla og
skólastiga og skólaþróunarverkefni sem unnin eru í anda
lærdómssamfélagsins.
Umsóknarfrestur er til 23. ágúst 2021
Nánari upplýsingar eru á ráðningarvef sveitarfélagsins
starf.arborg.is.
Sækja þarf um stöðuna á vef sveitarfélagsins, http://starf.arborg.is
Skólastjóri
Listaháskóli Íslands leitar eftir metnaðarfullum einstaklingi
með sterka listræna sýn í stöðu deildarforseta í myndlist.
DEILDARFORSETI
– Ber ábyrgð á listrænni og akademískri stefnumótun fagsviðsins og útfærslu
hennar í námi, kennslu og rannsóknum í samstarfi við sviðsforseta.
– Hann leiðir faglegt samtal deildarinnar, sinnir starfsmannahaldi, málefnum
nemenda og almennri starfsemi deildar.
Starfshlutfall er 100%.
Ráðið er í starfið frá 1. október 2021.
Sjá nánar inn á lhi.is/laus-storf
DEILDARFORSETI
Í MYNDLIST
www.kronan.is
Tekið er á móti umsóknum á www.kronan.is/atvinna
Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Gunnar Markússon,
smark@kronan.is, forstöðumaður viðskiptaþróunar og umbótaverkefna
hjá Krónunni.
Er
m
v
ið
að
passa saman?
u
GIRNILEGAR
STÖÐUR
Hæfniskröfur
• Djúpur skilningur og þekking á tæknilegum
úrlausnarefnum og tölvukerfum
• Reynsla og áhugi á breytingastjórnun
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Góð samskiptahæfni og færni í teymisvinnu
• Reynsla og færni í úthýsingu/þjónustukaupum
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Helstu verkefni
• Þróun og innleiðing stafrænna lausna
• Áætlanagerð og arðsemiútreikningar
verkefna
• Greiningar og hönnun lausna
• Stýring notendaprófana
HJÁ KRÓNUNNI
Verkefnastjóri stafrænnar þróunar
Við í viðskiptaþróun Krónunnar vinnum stöðugt að umbótum til að auðvelda líf viðskiptavina okkar
og um leið þróa starfsemi Krónunnar. Framundan eru fjölmörg verkefni og því viljum við bæta í
hópinn öflugum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga og þekkingu á stafrænni þróun. Meðal
verkefna á næstunni er frekari þróun á Snjallverslun Krónunnar, sjálfsafgreiðslu í verslunum ásamt
fleiri innri ferlum. Fyrirtæki
ársins 2021
hagvangur.is
14 ATVINNUBLAÐIÐ 14. ágúst 2021 LAUGARDAGUR