Fréttablaðið - 06.08.2021, Page 32

Fréttablaðið - 06.08.2021, Page 32
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Jóhönnu Vigdísar Guðmundsdóttur n Bakþankar FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 AFGREIÐSLUTÍMI Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16 www.betrabak.is ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR SUMARÚTSALA BETRA BAKS — LÝKUR UM HELG INA — STILLANLEG RÚM | HEILSURÚM OG -DÝNUR | GAFLAR | SÆNGUR | KODDAR | SVEFNSÓFAR | STÓLAR | SÆNGURFÖT, O.FL. SKRÁÐU ÞIG Á PÓSTLISTANN Lögfræðingar sem elta sjúkrabíla. Það orðatiltæki er notað yfir lög- fræðinga sem hlaupa á eftir óförum fólks til að hagnast á skaðabóta- málum. Stundum finnst mér þing- menn vera í svipuðum leik. Litlu máli virðist skipta hvaða mál eru sett fram, með hvaða hætti og hvort þau eru góð fyrir samfélagið. Þessi eltingaleikur við pólitíska sjúkrabíla verður svolítið pínlegur á tímum krísu, þegar aðstæður breytast frá degi til dags, og um leið viðbrögð ríkisstjórnarinnar. Þessa dagana get ég ekki annað en vorkennt þingmönnum í stjórnarandstöðu. Ríkisstjórn sem stendur sig ágætlega í þeim línu- dansi sem heimsfaraldur býður upp á – það er voðalega erfitt að vera uppsigað við allar aðgerðir hennar. Þessi eltingaleikur við pólitíska sjúkrabíla á auðvitað við stjórn- málamenninguna almennt. Það virðist bannað að hrósa and- stæðingum, og það virðist harð- bannað að vera ekki á móti öllu sem andstæðingurinn gerir. Ég veit ekki með ykkur … en ég er orðin voðalega leið á þessu. Vissulega er eðlilegt að fólk takist á og öflug stjórnarandstaða er nauðsynleg fyrir lýðræðið. En ef fólk tekst á um allt, til þess eins að vera á móti, erum við hætt að þjóna lýðræðinu og farin að þjóna lýðskruminu. Það sem er hættulegast lýðræð- inu er að skapa hyldjúpa gjá á milli ólíkra hópa í samfélaginu. Hana er auðvelt að skapa með orðræðu sem byggir eingöngu á andstöðu, því að vera á móti til að vera á móti. Kannski er kominn tími til að stjórnmálafólk vinni saman að úrlausn mikilvægustu mála sam- tímans. n Pólitískir sjúkrabílar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.