Fréttablaðið - 06.08.2021, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 06.08.2021, Blaðsíða 23
Arthúr Björgvin Bollason hefur, ásamt þýska sjónvarps- manninum Mick Locher, hafið tökur á heimildarmynd um þýska tréskurðarmeistar- ann og fjölhagann Wilhelm Ernst Beckmann. Wilhelm Beckmann flúði undan nas- istum árið 1935 vegna stuðnings við þýska jafnaðarmannaflokkinn og settist að á Íslandi. Hann lagði fram drjúgan skerf til íslenskrar kirkju- listar og verk hans prýða á annan tug kirkna víðs vegar um land. Auk þess vann hann mikinn fjölda vegg- spjalda fyrir Alþýðuflokkinn og skar út ýmsa hagnýta muni. Spurður um tildrög þess að hann réðst í að gera mynd um Wilhelm segir Arthúr Björgvin: „Stofnun Wil- helms Beckmann var sett á laggirnar árið 2013 í Kópavogi, að undirlagi barna hans, Hrefnu og Einars. Hjá stofnuninni var áhugi á að kynna Wilhelm í heimalandi hans, Þýska- landi, og því var haft samband við mig. Ég ræddi málið við félaga minn Mick Locher, sem hefur gert nokkrar myndir um Ísland fyrir þýska sjón- varpið. Hann stakk upp á því að við gerðum heimildarmynd um Beckmann. Málsvarar Beckmann- stofnunarinnar tóku þeirri hug- mynd fagnandi og hafa stutt fram- kvæmdina með ráðum og dáð. Myndin verður tekin upp í Þýska- landi, Danmörku og á Íslandi. Við Mick sömdum handritið saman. Við gerum í raun tvær myndir með dálítið ólíkum áherslum, lengri gerð fyrir RÚV og styttri mynd fyrir þýska sjónvarpið.“ Merk arfleifð Lífshlaup Beckmanns er áhugavert. „Hann er fæddur 1909 og deyr 1965. Sem ungur maður flýr hann undan nasistum. Honum var ekki lengur vært í Þýskalandi, því hann var virkur í jafnaðarmannaflokknum (SPD), sem nasistar bönnuðu. Beck- mann flúði fyrst til ættingja sinna í Danmörku, en hélt ári síðar allslaus til Íslands, þekkti ekki nokkra sálu og svaf fyrstu nóttina undir styttu Ingólfs á Arnarhóli. Hann var með skilríki frá þýska jafnaðarmanna- flokknum og gekk daginn eftir á fund Stefáns Jóhanns Stefánssonar, eins helsta leiðtoga íslenskra jafn- aðarmanna á þessum árum, sem tók hann upp á sína arma og aðstoðaði hann við að koma undir sig fótunum hér á landi,“ segir Arthúr Björgvin. Wilhelm kvæntist bóndadóttur frá Breiðuvík á Snæfellsnesi. Hann hafði lært tréskurð í Þýskalandi og þegar getið sér gott orð þar fyrir list- rænt handbragð. Í Reykjavík vann hann um tíma við leikfangasmíði og fékk síðan starf hjá Ríkarði Jónssyni myndhöggvara. Arthúr Björgvin Leyndarmál íslenskrar kirkjulistarsögu Ívar Kristján Ívarsson kvik- myndatöku- maður, Arthúr Björgvin og Mick Locher við verk Wilhelms, Kona á bæn. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Þessi altaristafla Wilhelms Beckmann átti að vera í Kópavogskirkju en arki- tekinn taldi hana ekki henta og hún prýðir nú safnaðarheimilið. Hann var sérstæð blanda af róttækum jafnaðarmanni og einlægum áhuga- manni um kristna trú. Arthúr Björgvin Bollason segir trúlegt að Ríkarður hafi látið Wilhelm leggja lokahönd á einhver verka sinna. Wilhelm vann í allmörg ár hjá Ríkarði og síðan í nokkur ár við húsgagnahönnun hjá Guðmundi blinda í trésmiðjunni Víði. Merkasta arfleifð Wilhelms er þó kirkjuverkin hans, en í dag eru verk eftir hann í ell- efu íslenskum kirkjum. Hann vann einnig mikinn fjölda veggspjalda fyrir Alþýðuflokkinn, sem bera list- fengi hans fagurt vitni. „Wilhelm Beckmann er eitt af best geymdu leyndarmálum íslenskrar kirkjulistarsögu. Hann var sérstæð blanda af róttækum jafnaðarmanni og einlægum áhugamanni um kristna trú,“ segir Arthúr Björgvin. Fögur birtingarmynd Mick Locher er spurður hvað honum þyki áhugaverðast við Wilhelm. „Mér finnst áhrifamikið hversu fagra birtingarmynd kristnin og trúin fá í verkum hans. Varðandi hans persónu þá vekur áhuga minn hvað hann var duglegur við að koma sér áfram. Hann var f lóttamaður með tvær hendur tómar en spjaraði sig vel á Íslandi og lærði tungumálið sem er ekki auðvelt. Foreldrar hans vildu að hann sneri aftur til Þýska- lands en hann vildi það ekki. Ég skil hann vel, náttúran hér er stórbrot- in,“ segir Mick og bætir við: „Wil- helm er alveg óþekktur í Þýskalandi og þess vegna er mjög ánægjulegt fyrir mig að fá að kynna hann þar.“ Í myndinni sem Arthúr Björgvin og Mick vinna að, koma ýmsir við- mælendur við sögu. „Sem dæmi má nefna, að Aðalsteinn Ingólfsson fjallar um listrænar rætur Wilhelms og doktor Gunnar Kristjánsson bregður ljósi á þann trúarskilning sem birtist í verkum hans. Þá mun Goddur leiða okkur í allan sann- leik um veggspjöld meistarans, auk þess sem við kynnumst dramatískri örlagasögu þessa fjölhæfa þýsk- íslenska listamanns,“ segir Arthúr Björgvin. Til stendur að ljúka við myndina í mars-apríl á næsta ári. ■ Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is kolbrunb@frettabladid.is Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Jónas Þórir orgelleikari halda tón- leika í Hallgrímskirkju sunnudag- inn 8. ágúst klukkan 17.00. Dagskrá tónleikanna verður ferðalag í tónum, 400 ára ferðalag frá Heinrich Ignaz Franz von Biber (1644), í gegnum söguna, og fram til nokkurra höfuðtónskálda 20. og 21. aldarinnar. Á meðal annarra höfunda eru J.S. Bach, Þorkell Sigurbjörnsson, Duke Ellington, Hjörleifur Valsson, Ennio Morricone, Jónas Þórir, John Williams og Vangelis, auk tónlistar sem sótt er í þjóðlega geymd. Hjörleifur og Jónas hafa undan- farið ár haldið tónleika vítt um landið með fjölbreyttri efnisskrá. Nú heldur Hjörleifur af landi brott til annarra verkefna, en hann er búsettur og starfandi erlendis, og er þetta því í síðasta sinn sem hann leikur á Íslandi að sinni. ■ Hjörleifur og Jónas í Hallgrímskirkju Hjörleifur hverfur af landi brott. Nú heldur Hjörleifur af landi brott til annarra verkefna, en hann er búsettur og starfandi erlendis. kolbrunb@frettabladid.is Sunnudaginn 8. ágúst klukkan 16, á sumartónleikum Hallgrímskirkju í Saurbæ, Hvalfirði, verða flutt ýmis söngverk eftir Þórunni Guðmunds- dóttur. Flytjendur eru: Björk Níels- dóttir, sópran, Erla Dóra Vogler, mezzó-sópran, Eyjólfur Eyjólfs- son, tenór, Hafsteinn Þórólfsson, baritón, og Eva Þyri Hilmarsdóttir, píanó. ■ Eyrnakonfekt í Saurbæ Verk eftir Þórunni Guð- mundsdóttur verða flutt í Hvalfirði. MYND/AÐSEND FÖSTUDAGUR 6. ágúst 2021 Menning 19FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.