Fréttablaðið - 06.08.2021, Page 28

Fréttablaðið - 06.08.2021, Page 28
Tískugyðjan Chiara Ferr­ agni er með fjölbreyttan og skemmtilegan fatastíl. Hún er vinsælasti tískuáhrifavaldur í heimi. Í dag er hún með eigin fatalínu og situr á fremsta bekk á sýningum stærstu tískuhúsanna. steingerdur@frettabladid.is Tískugyðjan og áhrifavaldurinn Chiara Ferragni öðlaðist frægð þegar hún hélt úti tískublogginu The Blonde Salad. Það stofnaði hún árið 2009. Í dag er hún með sína eigin fatalínu, er vinsælasti tískuáhrifavaldur heims og alltaf á fremsta bekk á sýningum stærstu tískuhúsanna. Hún á gífurlegt magn merkjavara sem hún sýnir reglulega á samskiptamiðlinum Instagram. Chiara er óhrædd við að klæðast litríkum fatnaði og sést það best á hennar eigin fatalínu. En hún er með mjög fjölbreyttan fatastíl og er alveg jafn glæsileg, hvort sem það er í skærbleiku eða jarðlitum. Chiara er gift Federico Leonardo Lucia, einnig þekktum sem Fedez. Hann er einn vinsælasti tónlistar­ maður Ítalíu. n Fjölbreyttur og ferskur stíll ítalska áhrifavaldsins Á sýningu Etro í Mílanó fyrr á árinu. Með eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Fedez, í eftirpartíi eftir Óskarsverðlaunin. Chiara í skærgrænum kjól frá Giambatt- ista Valli á Cannes í síðasta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Glæsi- leg úti á götu í Cannes, klædd mjög í anda frönsku rivíerunnar. Chiara í dragt frá Tom Ford á sýningu hans í Hollywood í Kaliforníu. Chiara og Fedez eiga annað heimili í fylkinu. Á sýningu DSQUARED2 í Mílanó. Hún er engu minna flott í afslöpp- uðum klæðnaði. Í einstaklega fallegum kjól frá Dior á sýningu tískuhússins í París. Chiara á viðburði þar sem samstarf H&M og Giambattista Valli var kynnt, en hún heldur mikið upp á hönnuðinn. 24 Lífið 6. ágúst 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 6. ágúst 2021 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.