Fréttablaðið - 06.08.2021, Side 28
Tískugyðjan Chiara Ferr
agni er með fjölbreyttan og
skemmtilegan fatastíl. Hún er
vinsælasti tískuáhrifavaldur í
heimi. Í dag er hún með eigin
fatalínu og situr á fremsta
bekk á sýningum stærstu
tískuhúsanna.
steingerdur@frettabladid.is
Tískugyðjan og áhrifavaldurinn
Chiara Ferragni öðlaðist frægð
þegar hún hélt úti tískublogginu
The Blonde Salad. Það stofnaði
hún árið 2009. Í dag er hún með
sína eigin fatalínu, er vinsælasti
tískuáhrifavaldur heims og alltaf á
fremsta bekk á sýningum stærstu
tískuhúsanna. Hún á gífurlegt magn
merkjavara sem hún sýnir reglulega
á samskiptamiðlinum Instagram.
Chiara er óhrædd við að klæðast
litríkum fatnaði og sést það best á
hennar eigin fatalínu. En hún er
með mjög fjölbreyttan fatastíl og
er alveg jafn glæsileg, hvort sem
það er í skærbleiku eða jarðlitum.
Chiara er gift Federico Leonardo
Lucia, einnig þekktum sem Fedez.
Hann er einn vinsælasti tónlistar
maður Ítalíu. n
Fjölbreyttur og
ferskur stíll ítalska
áhrifavaldsins
Á sýningu Etro í Mílanó fyrr á árinu.
Með eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Fedez, í
eftirpartíi eftir Óskarsverðlaunin.
Chiara í
skærgrænum
kjól frá Giambatt-
ista Valli á Cannes
í síðasta mánuði.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Glæsi-
leg úti á
götu í Cannes,
klædd mjög í
anda frönsku
rivíerunnar.
Chiara í dragt frá Tom Ford á sýningu hans í Hollywood í
Kaliforníu. Chiara og Fedez eiga annað heimili í fylkinu.
Á sýningu
DSQUARED2 í
Mílanó. Hún er engu
minna flott í afslöpp-
uðum klæðnaði.
Í einstaklega
fallegum kjól
frá Dior á sýningu
tískuhússins í
París.
Chiara á
viðburði þar sem
samstarf H&M og
Giambattista Valli
var kynnt, en hún
heldur mikið upp á
hönnuðinn.
24 Lífið 6. ágúst 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 6. ágúst 2021 FÖSTUDAGUR