Fréttablaðið - 06.08.2021, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 06.08.2021, Blaðsíða 15
KYNN INGARBLAÐ ALLT FÖSTUDAGUR 6. ágúst 2021 Gott er að bera hrásalatið fram með edamamebaunum og kóríander. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY johannamaria@torg.is Víða um heim finnast girnilegir réttir úr hvítkáli. Þetta ódýra en gómsæta grænmeti er ýmist súrs- að, steikt eða soðið. Öll þekkjum við majónes-ananas hrásalatið úr búðinni en hér er uppskrift að exótísku hrásalati frá Búrma. ½ kg hvítkál niðurskorið Safi úr ½ lime 2 tsk. fiskisósa eða sojasósa 3 matskeiðar skalotlaukolía 1 plómutómatur, fræhreinsaður og skorinn í strimla 2 msk. pikklað engifer (sem fæst með sushi) 3 msk. steiktur skalotlaukur 1 msk. ristuð sesamfræ 1 dl saxaðar jarðhnetur Aðferð Steikti skalottlaukurinn og skalot - laukolían verður til með því að skera niður nokkra skalotlauka í þunna strimla og djúpsteikja í jurtaolíu uns laukurinn er stökkur. Síaðu laukinn frá olíunni. Olían nýtist svo meðal annars í þessu hrásalati. Skerðu hvítkálið í þunna strimla, settu í skál og saltaðu með 1,5 teskeið af salti. Kremdu kálið með höndunum og láttu standa í um 45 mínútur. Blandaðu innihaldsefnunum saman og njóttu þess að ferðast til Mjanmar á bragðlaukunum. ■ Öðruvísi hrásalat Þurfum að hjálpa þeim svo þau geti hjálpað okkur Pernille Tönder ætlar að ganga frá Reykjavík til Nesjavalla á morgun til að safna áheitum til styrktar hjálparsveitinni Tintron, sem er staðsett á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi. Þetta verður annað árið í röð sem Pernille gengur og öllum er velkomið að taka þátt. 2 Pernille Tönder ákvað að ganga til styrktar Tintron þegar það kom í ljós að hún gæti ekki selt nammi til að styrkja hjálparsveitina vegna Covid. Hana hafði lengi langað að ganga milli Reykjavíkur og Nesjavalla svo hún kýldi á það og safnaði áheitum um leið. Nú ætlar hún að endurtaka leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR www.taramar.is T A R A M A R HEALING TREATMENT Græðir brennda húð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.