Fréttablaðið - 06.08.2021, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 06.08.2021, Blaðsíða 12
Mikilvægast af öllu er þó að hefja mikið átak í landgræðslu og skóg- rækt á Íslandi og setja í málaflokkinn það fjár- magn sem til þarf. Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og drögtum, með alvarlegan svip að tala um alvarleg mál. Mér leið eins og þetta fólk væri ósnertanlegt og ætti ekki við nein raunveruleg vandamál að stríða. Klettarnir í hafinu sem gefa aldrei eftir. Á síðustu mánuðum hef ég hins vegar komist að tvennu. Stjórnmála­ fólk er eftir allt saman bara fólk – og besta stjórnmálafólkið áttar sig á því. Einlægni Það er allt í lagi að hafa tilfinningar og tala við fólk af einlægni. Fyrst og fremst erum við öll mennsk og tilfinningar eins og samkennd og samúð gera okkur að heilsteyptari manneskjum. Það hafa allir gengið í gegnum sína erfiðleika, óháð aldri, og erfið reynsla auðveldar okkur að tengjast og hjálpa öðru fólki. Íslenska þjóðin á skilið að fá fólk á þing sem getur sett sig í spor þeirra hópa sem fá sjaldan raunverulega áheyrn, og það sé gert með samkennd og skiln­ ing að leiðarljósi. Aftur á móti er ennþá ríkjandi sú hugmynd að stjórnmálamaður sem hefur mikla tilfinningagreind sé ekki stöðugur eða ekki nógu sterkur til að takast á við þingstörfin. Að mínu mati er það kjaftæði. Kaldlyndi er ekki styrkleiki. Eigin takmarkanir Í stjórnmálum þarf að taka erfiðar ákvarðanir sem einhver verða alltaf ósátt við. Þrátt fyrir að aldrei sé hægt að þóknast öllum þá skiptir máli hvernig stjórnmálafólk kemst að niðurstöðu sinni – og þá þarf fyrst að horfast í augu við eigin takmark­ anir. Enginn er með öll svörin og því er eina leiðin að upplýstri ákvörðun að velta upp öllum hliðum málsins með aðstoð þeirra sem málið snertir. Stjórnmálafólk sem leggst yfir gögnin og rökin, tekur ákvörðun og útskýrir síðan fyrir almenningi hvernig það komst að niðurstöðunni er ekki aðeins líklegra til að taka betri ákvarðanir heldur jafnframt að fólk sýni því skilning. Við verðum kannski ekki sammála, en vönduð vinnubrögð eru virðing­ arverð. Hlustum Framtíðin gæti verið í góðum hönd­ um. Ungt fólk er upplýst um mál­ efni líðandi stundar og við látum fjölbreytt málefni okkur varða. Á síðustu mánuðum höfum við séð hávært ákall frá ungu fólki um sann­ gjarnara kvótakerfi, alvöru aðgerðir í loftslagsmálum, nýja stjórnar­ skrá, mannúðlega útlendingastefnu o.s.frv. Ein stærsta krafa ungs fólks er hins vegar ekki sérstaklega flókin: Að það sé einfaldlega hlustað á það – og því segi ég að framtíðin gæti verið í góðum höndum. Ef við hlustum. Ísland er að verða sífellt fjölbreytt­ ara og með aukinni fjölbreytni á þjóðfélag það til að skiptast í hópa. Ríkt fólk og fátækt fólk, Íslendingar og útlendingar, ungir og gamlir, heil­ brigt fólk og veikt fólk og svo mætti lengi telja. Til að koma í veg fyrir sundrung er mikilvægt að raddir allra hópa heyrist og að það sé raun­ verulega hlustað á þær, af einlægni og af fólki sem vill heyra. Að hlusta felur í sér að geta sett þig í spor ann­ arra, ekki líta á þau sem tölur og pró­ sentur á einhverju líkani. Mér finnst oft gleymast þegar mál eru rædd á Alþingi að það er verið að tala um aðgerðir sem snerta raunverulega hagsmuni raunverulegra lands­ manna sem hafa raunverulegar og stundum íþyngjandi afleiðingar. Besta stjórnmálafólkið áttar sig á því að það hefur ekki öll svörin. Sem áttar sig á því að besta leiðin til að komast að góðri niðurstöðu er að kynna sér gögnin, hlusta á fólk af alvöru og hafa samkennd til að setja sig í spor annarra. Stjórnmálafólk sem veit að það er eftir allt saman bara manneskja í jakkafötum. n Manneskjan í jakkafötunum Lenya Rún Taha Karim frambjóðandi Pírata í þriðja sæti Reykjavík norður. Fátt tengir mann meira við umhverf­ ið en að fá að sigla út í morgunsárinu og dýfa færi í sjó. Við trillukarlar vitum að við eigum allt undir hrein­ leika sjávarins og góðri umgengni við hann. Fegurðin liggur í hinu smáa og notagildið í hreinleikanum. Slíkar veiðar smábáta skjóta stoðum undir fjölbreytt atvinnulíf sjávar­ byggða á landsbyggðinni. Mjór er mikils vísir og hver smábátur leiðir af sér mörg störf í heimabyggð. Þetta eru störf við vélaviðgerðir, þjónusta við bátana, fiskmarkaðir, fiskflutn­ ingar og margt fleira. Allir tengjast í eina keðju sem á allt undir hreinleika og vernd náttúrunnar. Vissulega getur verið vandasamt að tryggja þetta band hreinleikans, eins og ég vil kalla það, en það er hægt og við erum stöðugt að bæta okkur. Ég sem þingmaður Miðflokksins er oft spurður um stefnu flokksins í umhverfismálum. Þá getur verið freistandi að vitna til reynslu minnar af sjómennsku en segja má að stefna f lokksins hverfist um skynsama og ráðdeildarsama nýtingu í sátt við umhverfið. Umhverfismál eru mikilvægur málaflokkur en sumir stjórnmálaflokkar nota þau fyrst og fremst til þess að koma öðrum áhugamálum sínum í framkvæmd, svo sem meiri skattlagningu og auknu stjórnlyndi. Við Miðflokks­ menn viljum hins vegar leggja áherslu á jákvæða hvata fremur en neikvæða til að ná fram markmiðum umhverfisverndar. Að tryggja vernd og viðgang náttúru landsins og alls umhverfis jarðarinnar er okkar stóra verkefni. En miklu máli skiptir hvernig við nálgumst það þannig að tryggt sé að árangur náist á sem skilvirkastan og besta máta. Við Miðflokksmenn bendum á að skynsemisstefnan býður að hlusta á hugmyndir að lausnum frá öllum hliðum og velja þá bestu, eða blanda þeim saman til að ná enn betri árangri. Nú sem endranær bíða fjölmörg f lókin úrlausnarefni sem krefjast skyn­ samlegra lausna og stjórnmála­ manna sem eru tilbúnir að berjast fyrir þeim. Heildaráhrif skipta mestu Í umhverfismálum er nauðsynlegt að líta til heildaráhrifa á heimsvísu fremur en að skoða aðeins áhrif stefnu og aðgerða innan landamæra Íslands. Þannig getur Ísland áfram verið leiðandi á sviði endurnýjan­ legrar hreinnar orku. Þess vegna styðjum við uppbyggingu orku­ freks iðnaðar sem lýtur ströngustu skilyrðum. Við Miðf lokksmenn leggjum áherslu á stefnu til framtíðar sem byggir á raunsæjum skrefum, m.a. varðandi uppbyggingu innviða, orkuverð og aðgang að umhverfis­ vænum orkugjöfum. Þá er stuðn­ ingur við vísindi og rannsóknir á sviði umhverfisvænnar tækni væn­ legasta leiðin til að ná raunveru­ legum árangri í loftslagsmálum og öðrum umhverfismálum. Mikilvægt er að auka endur­ vinnslu á Íslandi í stað þess að flytja út pappír, ál, plast og annað sorp til brennslu eða annarrar úrvinnslu erlendis. Mikilvægast af öllu er þó að hefja mikið átak í landgræðslu og skógrækt á Íslandi og setja í mála­ flokkinn það fjármagn sem til þarf. Um leið þarf þessi málaflokkur að fara undir landbúnaðarráðuneytið svo skynsamleg framkvæmd sé tryggð. n Umhverfisvernd í smáu sem stóru Sigurður Páll Jónsson þingmaður Miðflokksins. Vinstir grænir höfnuðu Lilju Rafn­ eyju Magnúsdóttur sem oddvita f lokksins í Norðvesturkjördæmi í forvali í vor og vildu frekar Bjarna Jónsson sveitarstjórnarmann í Skagafirði. Lilja Rafney hefur verið formaður atvinnuveganefndar Alþingis og þó að það hafi fallið í hennar hlut að standa vörð um gjafakvótakerfið, sem fulltrúi stjórnarmeirihlutans, hefur hún engu að síður reynst haukur í horni fyrir smærri fyrir­ tæki í sjávarútvegi; útgerðir sem ekki reka fiskvinnslu, fiskvinnslur, sem ekki eru hluti af útgerð heldur kaupa allt sitt hráefni á markaði, og smábátasjómenn. Barátta fyrir þá sem standa höllum fæti virðist þannig ekki eiga upp á pallborðið hjá kjósendum VG í Norðvestur. Bjarni Jónsson hefur líka gegnt trúnaðarstörfum fyrir VG. Þegar hefur verið nefnt að hann er sveitarstjórnarmaður í Skagafirði. Hann hefur líka verið pólitískt skipaður stjórnarformaður Íslands­ pósts síðan 2017. Er það mögu­ lega frammistaða Bjarna í stjórn Íslandspósts sem heillar kjósendur VG í Norðvestur? Röggsamur stjórnarformaður Bjarni hefur sem stjórnarformaður sýnt röggsemi sem vart á sinn líka meðal vinstri manna frá tímum Stalíns sem, eins og kunnugt er, stjórnaði með harðri hendi og lét ekki lög og reglur – eða óþægilega einstaklinga – þvælast fyrir sér. Í janúar 2020 lækkaði Íslands­ póstur gjaldskrá f yrir pakka­ sendingar þannig að sama verð var tekið fyrir sendingar um allt land. Tveir stjórnarmenn Íslandspósts, Thomas Möller fulltrúi Viðreisnar og Eiríkur H. Hauksson fulltrúi Framsóknar, lögðu fram bókun í desember 2020 þar sem fram kemur að gjaldskrárlækkunin var ekki borin undir stjórn eins og lög kveða á um. Einnig kemur fram í bókuninni að tap hafi verið á pakkasendingum Íslandspósts fyrir lækkunina og það hafi því aukist, sem brýtur í bága við skýr lagaákvæði um að fyrirtækinu beri að haga verðlagningu sinni þannig að hún standi undir raunkostnaði og hæfilegum hagnaði ofan á. Gjaldskrárlækkunin kippti fót­ unum undan starfsemi fyrirtækja á landsbyggðinni sem hafa verið í samkeppni við Íslandspóst – væntanlega líka í Norðvesturkjör­ dæmi. Stjórnarmennirnir tveir benda í bókun sinni á að þarna sé um undirverðlagningu að ræða hjá Íslandspósti, sem sé væntanlega brot á samkeppnislögum. Thomas Möller lagði einnig fram sérstaka bókun þegar ákveðið var, án aðkomu stjórnar, að fella niður það sem kallað er viðbótarafslættir til Póstmarkaðarins ehf. og Burðar­ gjalda ehf. sem eru söfnunaraðilar sem taka á móti og senda áfram til Íslandspósts til dreifingar megnið af umslögum á Íslandi. Í bókun Thomasar kemur fram að þessi fyrirtæki hafi myndað viðskipta­ sambönd við stærstu notendur umslaga og mjög óvarlegt sé, og það vinni gegn hagsmunum Íslands­ pósts, að raska því. Ákvörðunin muni eingöngu f lýta fyrir fækkun umslaga sem berast Íslandspósti og valda félaginu fjárhagsskaða til lengri tíma litið. Áhyggjur Thomasar virðast á rökum reistar þar sem Póstmarkað­ urinn ehf. undirbýr nú lokun vegna þessarar ákvörðunar Íslandspósts. Einnig virðast áhyggjur af neikvæð­ um áhrifum á afkomu Íslandspósts vegna þessara ák varðana sem teknar voru fram hjá stjórninni vera réttmætar. Nýlega þurfti ríkið að veita Íslandspósti sérstakt auka­ framlag upp á 490 milljónir króna, sem er náttúrlega ekkert annað en herkostnaður við að murka lífið úr samkeppni á landsbyggðinni og kippa fótunum undan rekstrar­ grundvelli samstarfsaðila. Fjármálaráðherra gengur í málið En vitanlega er þreytandi fyrir ráð­ ríka stjórnarformenn að sitja uppi með stjórnarmenn sem eru að gera vesen, benda á lögbrot og kalla eftir eðlilegum stjórnarháttum. Bjarni stjórnarformaður sneri sér því til nafna síns, fjármálaráðherrans, og bar sig aumlega undan síspurulum stjórnarmönnum. Fjármálaráð­ herrann brást skjótt við og bað Við­ reisn og Framsókn vinsamlegast um að skipta út þessum óþolandi stjórnarmönnum. Hvorugur f lokk­ urinn var þó til í að láta formann Sjálfstæðisflokksins ráða því hverja þeir settu í stjórn Íslandspósts og þar sem Framsókn og Sjálfstæðis­ flokkur eru saman í ríkisstjórn fékk Eiríkur að sitja áfram en fjármála­ ráðherra f leygði fulltrúa Viðreisnar út úr stjórninni og setti í staðinn embættismann úr sínu eigin ráðu­ neyti. Hann ætti ekki að vera með óþarfan uppsteyt sá. Vel á minnst. Birgir Jónsson, fyrrverandi forstjóri Íslandspósts og núverandi forstjóri Play, mun hafa gefist upp á ráðríki – eða öllu heldur ofríki – stjórnarformanns­ ins og sagði starfi sínu lausu. Og nú er Bjarni Jónsson á leið á þing í boði fjármálaráðherra en á kostnað almennings sem horfir á eftir hundruðum milljóna í framlög til ríkisfyrirtækis sem stundar und­ irboð á samkeppnismarkaði. Þær fjárhæðir geta hækkað enn, ekki síst ef Samkeppniseftirlitið tekur sig til og framfylgir samkeppnislögum gagnvart Íslandspósti. n Réttur maður á réttum stað? Ólafur Arnarson hagfræðingur. En vitanlega er þreytandi fyrir ráðríka stjórnarfor- menn að sitja uppi með stjórnarmenn sem eru að gera vesen, benda á lögbrot og kalla eftir eðli- legum stjórnarháttum. Besta stjórnmálafólkið áttar sig á því að það hefur ekki öll svörin. 12 Skoðun 6. ágúst 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.