Fréttablaðið - 06.08.2021, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 06.08.2021, Blaðsíða 14
Ég er aðallega ánægður með að vera að spila í efstu deild. Það er ekkert sjálfgefið þó það sé rík fótboltahefð á Húsavík. Hallgrímur Mar Steingrímsson. 14 Íþróttir 6. ágúst 2021 FÖSTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 6. ágúst 2021 FÖSTUDAGUR benediktboas@frettabladid.is FÓTBOLTI Breska blaðið The Inde­ pendent segir frá því að skilaboð Kevin de Bruyne til stjóra síns, Peps Guardiola, hafi gert gæfumuninn í félagsskiptum Jack Grealish. De Bruyne mætti Grealish í þjóðadeild­ inni árið 2020 og varð svo hrifinn af frammistöðu hans að hann grátbað Guardiola að ganga í málið og kaupa kappann. Þá sagði The Sun frá því að þeir Grealish og de Bruyne hafi verið í sambandi síðan þessi landsleikur fór fram og séu orðnir mestu mátar sem flestir sjá sem mikinn kost. Belgar unnu England í téðum leik 2­0 en Grealish þótti standa sig afar vel. Samkvæmt fréttum ytra er afar stutt í að Grealish klári félagaskiptin yfir til Manchester City og verði þar með dýrasti knattspyrnumaður Breta. n Kevin De Bruyne sannfærði Pep um að kaupa Grealish benediktboas@frettabladid.is FÓTBOLTI Lögreglan í Bretlandi hefur handtekið 11 manns fyrir kynþáttaníð á netinu í kjölfarið á holskeflu af níði eftir úrslitaleik Englands og Ítalíu. Þeir Marcus Rashford, Jadon Sancho og Bukayo Saka, sem klikkuðu á vítaspyrnum í úrslitaleiknum, urðu fyrir gífurlegu netníði frá fólki. Lögreglan fékk meðal annars aðstoð frá tæknirisunum Twitter og Instagram þar sem netníðið var sem mest og handtók í gær 11 manns sem munu þurfa að svara fyrir fáfræði sína og viðbjóð. „Það er til fólk sem heldur að það geti gert það sem það vill bak við skjáinn og birt jafnvel ógeðsleg ummæli. Þetta fólk þarf að hugsa sig vel um,“ sagði Mark Roberts lög­ reglustjóri sem stýrði rannsókn­ inni. Hann bætti við að þeir hefðu fundið 207 dæmi um glæpsamlega hegðun á samfélagsmiðlum sem þeir gætu rakið til breskra borgara. Um 50 reikningar og ummæli væru enn til skoðunar. Sá yngsti sem var handtekinn er 18 ára en sá elsti 63 ára. Þeim var sleppt eftir yfirheyrslur. Rannsókn sem var gerð meðal leikmannasamtaka Englands, PFA, og kynnt var á miðvikudag, sýndi að kynþáttaníð náði því miður nýjum hæðum á síðasta ári. Misgáfulegum ummælum fjölgaði um 48 prósent frá fyrra ári og kom helmingurinn frá reikningum skráðum á fáfróða Breta. Fimm prósent kom frá Ind­ landi. Sex milljónir reikninga voru skoðaðir á Twitter. Troy Deeney, leikmaður Watford, og stjórnar­ maður í leikmannasamtökunum, sagði að tæknirisinn væri ekki að gera nóg. Þeir fjarlægðu aðeins ummælin en refsuðu ekki þeim sem setja slíkan viðbjóð á reikninga sína. „Ef þeir vildu finna lausn við rasisma á netinu gætu þeir það auð­ veldlega. Rannsóknin sýnir að þeir hafa ekki áhuga á því,“ sagði Deeney meðal annars þegar rannsóknin var kynnt. n Ellefu handtökur vegna rasisma á netinu benediktboas@frettabladid.is FÓTBOLTI Ítalska knattspyrnusam­ bandið vill aftur leyfa auglýsingar frá veðmálafyrirtækjum. Þær hafa verið bannaðar nú í rúm tvö ár. Sambandið telur að veðmálaauglýs­ ingar geti hjálpað ítölskum liðum að vinna sig út úr fjárhagsvandræðum sem þau glíma við vegna kóróna­ veiru faraldursins. Jóhann Már Helgason, fyrr­ verandi framkvæmdastjóri Vals og höfundur skýrslu um fjármál knattspyrnudeilda, segir á Twitter að velta veðmálafyrirtækisins Coolbet sé umhugsunarefni en eins og fram hefur komið var velta þess tæpar 400 milljónir vegna veð­ mála um íslenskan fótbolta. „Hér er eitt fyrirtæki að velta tæpum 386 milljónum á þremur mánuðum. Íslenskur fótbolti er söluvaran sem skapar tekjurnar. Mjög sorglegt að íslensk félög megi ekki sækja sér styrki til slíkra fyrirtækja, í raun tímaskekkja,“ segir Jóhann. Í skýrslu sinni bendir Jóhann á að veðmála­ og áfengisauglýsingafyrir­ tæki hafi áhuga á íslensku deildinni enda sé hún að mala gull fyrir fyrir­ tækin. n Veðmálin bjargi ítölskum liðum Bukayo Saka huggaður af Southgate eftir að hafa klikkað á ögurstundu. Hann fékk yfir sig holskeflu af rasískum ummælum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Jack Grealish og Kevin De Bruyne. Velta Coolbet nam um 400 millj- ónum á þremur mánuðum vegna veðmála hér. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Húsvíkingurinn Hallgrímur Mar Steingrímsson er orðinn bæði markahæstur og leikja­ hæstur í sögu knattspyrnu­ deildar KA. Hann bætti met Hreins Hringssonar með tveimur mörkum gegn Kefla­ vík í síðasta leik. benediktboas@frettabladid.is FÓTBOLTI „Þetta var alltaf mark­ miðið mitt í sumar þannig að ég er himinlifandi með markametið enda mikill heiður,“ segir Húsvíkingur­ inn Hallgrímur Mar Steingrímsson sem er orðinn markahæsti leik­ maður í sögu knattspyrnudeildar KA í efstu deild með 74 mörk. Hann sló met Hreins Hringssonar með tveimur mörkum sínum gegn Kefla­ vík í síðasta leik. Sló þar með Hreini Hringssyni við sem skoraði 73. Auk þess er hann leikjahæsti leikmaður félagsins með 242 leiki í deild og bikar. Hallgrímur gekk til liðs við KA 18 ára gamall en hann er uppalinn í Völsungi á Húsavík. Hann reif sig úr KA­treyjunni við að skora seinna markið og uppskar gult spjald frá dómara leiksins en brosti við og útskýrði að hann hefði gleymt stað og stund og samþykkti spjaldið. „Ég var búinn að hugsa svolítið um þetta markamet í smá tíma því ég vissi að ég væri að nálgast þannig það er smá léttir að vera búinn að ná því. Komandi frá Húsavík er mjög gaman að hafa náð þessu enda löng leið frá Húsavík í efstu deild. Ég er aðallega ánægður með að vera að spila í efstu deild. Það er ekkert sjálfgefið þó það sé rík fótboltahefð á Húsavík.“ Völsungur hefur einu sinni verið í efstu deild en Hallgrímur gekk í raðir KA eftir að þeir grænu féllu í þriðju deild. „Auðvitað var draumurinn að spila með mínu félagi í úrvalsdeild en það er ekkert endilega raunhæft. Þá leitar maður annað og fínt að það sé ekki lengra en Akureyri þannig að maður sé ekki langt frá sínum heimahögum,“ segir hann. Hallgrímur stoppaði í eitt ár með Víkingum 2015 en snéri aftur í KA ári síðar. Merkilegt nokk hefur hann skorað fimm mörk gegn Víkingum en f lest hefur hann skorað gegn Grindavík samkvæmt heimasíðu KA. Húsvíski skemmtikrafturinn orðinn sá leikjahæsti og markahæsti hjá KA Hallgrímur Mar n 242 leikir í deild og bikar n 74 mörk í deild og bikar n34 mörk í efstu deild n 65 mörk í deildarkeppni og 9 í bikarleikjum n Flest mörk gegn Grindavík eða 7 n Þrívegis hefur hann skorað þrennu fyrir KA n Skrifaði undir nýjan samn- ing við félagið sem gildir út tímabilið 2023 Hallgrímur Mar kom til KA frá Völsungi þegar hann var aðeins 18 ára. Hér í leiknum gegn Keflavík þar sem markametið féll. MYND/ SÆVAR GEIR SIGURJÓNSSON „Ég stoppaði bara í eitt ár í borg­ inni. Það voru ýmsar ástæður fyrir því að ég fór aftur norður. Mér leið vel í Víkingi en ég þurfti að fara aftur norður og sé ekkert eftir því í dag.“ Saga KA­liðsins í sumar er máluð í fallegum litum. Stubbur í markinu hefur átt stjörnutímabil, Brynjar Ingi skaust fram á sjónarsviðið sem fullskapað varnartröll og var seldur til Ítalíu í atvinnumennsku og svona mætti lengi telja. Þá er þjálfarinn, Arnar Grétarsson, búinn að setja sitt handbragð á liðið. Hallgrímur ber honum góða söguna. „Hann hefur komið öllu hér á annað stig. Hann hefur gert mönn­ um grein fyrir því hvað þarf að leggja mikið á sig til að uppskera. Menn hafa æft vel og það er að skila sér.“ Hallgrímur bendir á að Arnar sé hafsjór af fróðleik þegar kemur að fótbolta og hafi hjálpað mörgum leikmönnum að bæta sig. „Hann er með allan pakkann finnst mér. Með mikla reynslu og það er mikil virðing borin fyrir honum innan liðsins. Hann kann fótbolta og ég held ég geti fullyrt að hann hefur hjálpað öllum leik­ mönnum að bæta sig.“ n

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.