Fréttablaðið - 23.07.2021, Page 12

Fréttablaðið - 23.07.2021, Page 12
Fylgis- menn Vinstri grænna hafa með afstöðu sinni tjáð sig með skýrum hætti um það að svona ríkisstjórn vilji þeir – sennilega aldrei – aftur sjá. Velferðaryfirvöld sendu frá sér yfir- lýsingu um daginn þar sem þau full- yrtu að borgin stæði sig óaðfinnan- lega í þjónustu sinni við fatlað fólk á sama tíma og hún tapaði máli í héraðsdómi vegna rolugangs við þjónustu fatlaðra! Eru borgaryfirvöld vísvitandi að slá ryki í augu okkar eða er sá sem samdi yfirlýsinguna nýbyrjaður í vinnunni og veit ekki betur? Raunin er sú að yfirvöld standa sig skammarlega í þjónustu við fatlaða og hafa nánast gert upp á bak í búsetumálum þeirra. Þessu til staðfestingar má vísa í úrskurði dómstóla og úrskurðarnefndar vel- ferðarmála auk ótal hryllingsfrá- sagna fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra. Þegar borgin hreykir sér af því að svo og svo margir hafi komist í búsetuúrræði hjá borginni, hljómar það eins og foreldri sem hreykir sér af því að vera gott foreldri af því það vanræki ekki öll börnin sín, bara sum. Borgarmeirihlutinn svífst einskis í viðleitni sinni til að blekkja okkur. Nýjasta útspilið var að skella skuld- inni á LSH en þar á bæ virðast vera „bófar“ sem benda fólki af lands- byggðinni á að f lytja til Reykja- víkur til að fá þjónustu. Það kemur ekki á óvart að borgin skilji ekki gildismat þeirra sem setja velferð fólks ofar öðru og veiti leiðbeining- ar eftir bestu getu. Borgin er nefni- lega ekki örlát á leiðbeiningar fyrir fatlaða og það eru fjölmörg dæmi þess að fólk fær ekki upplýsingar um þá þjónustu sem það á rétt á og þarfnast. Afsakanir borgarinnar fyrir van- rækslu sinni eru margar og margvís- legar en eiga það sammerkt að þær halda ekki vatni. Þegar barn fæðist með líkamleg eða vitsmunaleg frávik eru talsverð- ar líkur á því að það muni þurfa á aðstoð að halda allt sitt líf. Um fimm ára aldur er orðið nokkuð ljóst hver þjónustuþörf barnsins verður og hvort það muni þurfa á búsetuúr- ræði og þjónustu borgarinnar að halda. Borgin hefur því nægan tíma til að undirbúa móttöku þess við 18 ára aldur eins og henni ber. Borgin er þó algerlega óundirbúin en það er vegna þess, að sögn borg- arinnar, að fjöldi fatlaðra barna sem fæðast á Íslandi er ekki endilega sá sami og átján árum síðar. Sum þess- ara barna gætu hafa f lutt í annað bæjarfélag eða til útlanda eða jafn- vel dáið. Þá stæði borgin uppi með of margar íbúðir fyrir fatlaða! Þessi rök eru varla svaraverð. Guð forði okkur frá offramboði á þjónustu- íbúðum fyrir fatlað fólk! Aðrar álíka rökleysur og réttlæt- ingar fyrir úrræðaleysi borgarinnar eru skortur á fjármagni og skortur á verktökum til að byggja fyrir fatlað fólk. Það liggur við að ég finni til með fólkinu sem þarf að finna upp á svona vitleysu fyrir hönd borgar- innar. Kannski heldur borgin að við sem berjumst fyrir réttindum fatl- aðs fólks, séum öll greindarskert og þess vegna hægt að bjóða okkur upp á hvað sem er. Við vitum hvenær verið er að reyna þagga niður í okkur og kúga okkur til undirgefni. Það gerir borgin með því að reyna að fá okkur til að finnast við vera til- ætlunarsöm, frek og ósanngjörn. Til að gera okkur tortryggileg og vanþakklát þegar við kvörtum, bendir borgin á þjónustu eins og liðveislu, stuðningsfjölskyldur og skammtímavistun sem við eigum að vera þakklát fyrir. Eftir 18 ára aldur eiga þessi úrræði að vera tímabundin meðan beðið er eftir húsnæði en geta varað árum saman og það eru ekki boðlegt fyrir full- orðið fólk. Þetta eru ekkert annað en skítareddingar og ekki til að hreykja sér af. Við 18 ára aldur ber fólk ábyrgð á sjálfu sér og ábyrgð foreldra eða annarra forráðamanna rennur út. Borgin tekur við ábyrgð á því fólki sem fötlunar sinnar vegna getur ekki séð um sig á sama hátt og ófatl- aðir. Ég vildi óska að borgaryfirvöld- um væri ekki, afsakið orðbragðið, drullusama um fatlað fólk og sæju sóma sinn í að axla ábyrgð sína og veita þá þjónustu sem þeim ber samkvæmt lögum í stað þess að klóra yfir áhugaleysi sitt og van- rækslu með lygaþvælu og þvaðri. Ég veit að ég tala fyrir munn margra sem eru langþreyttir á óhóflegri bið eftir þjónustu og hafa fengið sig fullsadda af froðusnakki og innihaldslausum loforðum. Hugur minn er hjá þeim sem eru að ganga sín fyrstu skref með fötl- uðu barni sínu. Álagið við að eignast og annast fatlað barn er gríðarlegt og ekki á það bætandi. Það er ein- læg von mín að næsta kynslóð muni ekki þurfa að ganga sömu þrauta- göngu og við sem eldri erum. n Bull borgaryfirvalda Ásta Kristrún Ólafsdóttir foreldri, sálfræðingur og kennari. Margt gerist undarlegt í stjórn- málum. Það verður þó að teljast hátt stig undarlegheitanna, þegar fylgis- menn Vinstri grænna eru nánast upp til hópa, 71% þeirra, óánægðir með og á móti ríkisstjórn, sem þeirra eigin formaður, Katrín Jak- obsdóttir, leiðir. Á sama hátt er það auðvitað meira en óvenjulegt, að 88% Sjálfstæðis- manna og 82% Framsóknarmanna, en þetta fólk, ásamt með Miðflokks- mönnum, verður að teljast langt til hægri, úti á íhaldsjaðrinum, skuli vera ánægt með og styðja ríkisstjórn, sem formaður Vinstri grænna, sem á að vera einna lengst úti á vinstri vængnum, leiðir. Ofangreindar staðreyndir um óvinsældir og vinsældir ríkisstjórn- ar Katrínar Jakobsdóttur byggjast á skoðanakönnun Maskínu, fyrir fréttastofu Sýnar frá 6. júlí sl. Hvað skýrir þessa bráðundarlegu og óvenjulegu stöðu? Menn þurfa ekki að kafa djúpt í skilningarvitin til að átta sig á, að til að Sjálfstæðismenn og Fram- sóknarmenn, nánast upp til hópa, séu ánægðir með tiltekna ríkis- stjórn, hljóti hún að uppfylla þeirra hugmyndir og óskir um stefnumál og pólitík. Hafa stefnumál þessara manna í háum heiðri. Á sama hátt er það sjálfgefið, að óánægja fylgismanna Vinstri grænna með sömu ríkisstjórn, líka í yfirgnæfandi mæli, hljóti að stafa af því, að þessi ríkisstjórn hafi virt að vettugi, eða skort vilja og getu, til að koma þeirra stefnumálum á dagskrá, og, það sem meira er, í framkvæmd. Ég taldi upp í grein hér í blaðinu 24. júní sl. fimm megin stefnumál Vinstri grænna, sem áttu að komast í framkvæmd í þessari ríkisstjórn, en fóru öll í vaskinn: Friðun hvala, þjóðgarður á mið- hálendinu, friðun villtra spendýra og fugla, stórt skref í loftslagsvernd og endurskoðun stjórnarskrár. Allt í lok dags bara sápukúlur, sem svifu upp í háloftin. Fylgismenn Vinstri grænna hafa með afstöðu sinni tjáð sig með skýrum hætti um það, að svona ríkisstjórn vilji þeir – sennilega aldr- ei – aftur sjá. En hver er afstaða prímadonn- unnar sjálfrar, Katrínar? Lengst af og, þegar ég heyrði síðast til hennar með þetta, virtist hún vera hin hressasta og ánægðasta með þessa ríkisstjórn og alveg til í annan svona ríkisstjórnardans. Já, það er margt skrýtið í kýr- hausnum. Ofangreint er auðvitað meira innlegg í hugleiðinguna um stöðu formanns Vinstri grænna gagnvart sínum flokks- og fylgismönnum, og, þá um leið, stöðu þeirra gagnvart formanni. Getur hér verið mikið eða nokkuð eftir af gagnkvæmum skiln- ingi, harmóníu og trausti, má spyrja. Nú kunna ýmsir að hugleiða og vilja velta upp, af hverju nefnir maðurinn ekki „góðu mál“ for- sætisráðherra, Vinstri grænna og ríkisstjórnarinnar, í stað þess að tönglast bara á vanhöldum, stuðn- ingssveiflum og sundurþykkju. Í huga undirritaðs eru tvö stór- mál, sem f lokka má sem „góðu málin“: Stjórn efnahagsmála og bólusetningarátak og -árangur. Það er þá sjálfsagt, að líta yfir þau líka. Hvoru tveggja eru þetta stór mál og góð, en spurningin verður: Voru hér einhver sérstök afrek unnin, sem tilefni gæfu til sérstaks hróss eða vinsælda? Ríkisstjórnin tók umfangsmikil lán, innanlands og erlendis – þau erlendu með gengisáhættu – fyrir samtals um 500 milljarða. Þessu fé var svo miðlað til fyrirtækja og almennings, líka til sveitarfélaga og annarra aðila í þjóðfélaginu til að gera þeim kleift að komast í gegnum og lifa af þau vandræði, sem Covid olli. Þetta var gert með nokkuð skyn- samlegum og skipulegum hætti, þannig, að aðgerðir tókust vel. Þetta er þó ekkert meira eða merkilegra heldur en það, sem nánast allar aðrar ríkisstjórnir hins vestræna heims gerðu; lán voru tekin til að halda mönnum og málefnum gang- andi meðan pestin varði. Lausnin var lántaka, sem við og komandi kynslóðir þurfum svo að standa skil á. Að mestu tilfærsla vandans. Reyndar gerði ríkisstjórn Íslands það, sem engin önnur ríkisstjórn lét sér einu sinni detta í hug: Hún verð- launaði fyrirtæki í stórum stíl, ekki fyrir að ráða menn í vinnu, heldur fyrir að segja þeim upp. Undirrit- aður kann að vera tregur, en þessa aðferð skildi hann aldrei vel. Varðandi bólusetningar og góðan árangur í þeim, þarf tvennt til: Bólu- efnið og heilbrigðiskerfi og starfs- menn þar, sem geta bólusett hratt, skipulega og vel. Þökk sé því, að ESB gekk strax í það að fjármagna þróun og fram- leiðslu bóluefnis, vorið 2020, um leið og sambandið tryggði sér fyrsta aðgang að bóluefni fyrir ESB-ríkin 27, svo og Ísland og Noreg, hjá sex leiðandi lyfjafyrirtækjum, með milljarða fjárframlagi í evrum, og þökk sé vinarhug Ursulu von der Leyen, forseta ráðherraráðs ESB, gagnvart Íslandi og Íslendingum, tókst að útvega bóluefni fyrir meg- inþorra þeirra, sem bólusetja átti, f ljótt og vel. Hér valdi ríkisstjórnin leiðina, þá einu réttu, með ESB, og hafði milli- göngu um samskiptin og viðskiptin, sem var allt gott og þakka má fyrir, en hér voru heldur engin afrek unnin af hálfu ríkisstjórnarinnar. Stýring og aðgerðir í faraldrinum voru í höndum sóttvarnalæknis og heilbrigðisyfirvalda, embættis- manna og starfsliðs, og komu til- lögur um framgang og aðgerðir á hverjum tíma frá þeim, sem ríkis- stjórn lagði svo blessun sína mest yfir. Þetta tókst allt vel, en megin þakklætinu fyrir árangurinn verð- ur þó að beina að stjórnendum og starfsmönnum heilbrigðiskerfisins; hlutur forsætisráðherra og ríkis- stjórnar er hér nokkur, en ekki í þeim mæli, að hann verðskuldi þreföld húrrahróp. n 71% Vinstri grænna styður ekki ríkisstjórn síns eigin formanns Ole Anton Bieltvedt alþjóðlegur kaup- sýslumaður og stjórnmálarýnir. Nú hefur Ísland mótað sér gervi- greindarstefnu. Hvernig henni skal hrundið í framkvæmd er í vinnslu í forsætisráðuneytinu. Vegna þessa áttu fulltrúar frá Mænuskaða- stofnun Íslands fund með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og óskuðu eftir að hún tilnefndi leit að lækningu á mænuskaða/lömun sem eitt af gervigreindarverk- efnum Íslands. Í því fælist að tölvu- keyra rannsóknargagnabanka um mænuskaða og annað skráð efni um grunnrannsóknir í mænu með hag- nýtingu gervigreindar. Markmiðið væri að finna sameiginleg munstur og annað í rannsóknunum sem hjálpar heiminum nær lækningu. Forsætisráðherra tók vel í þetta og mæltist til þess við nærstadda emb- ættismenn að beiðni Mænuskaða- stofnunar yrði skoðuð í þessu ljósi. Um eða eftir næstu áramót ætti að verða ljóst hvort þetta verður að veruleika. Undanfarin ár hefur Mænuskaða- stofnun Íslands, Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, Diljá Mist Einarsdóttir aðstoðarmaður hans og Lilja Dögg Alfreðsdóttir vís- indamálaráðherra ásamt embættis- mönnunum Maríu Mjöll Jónsdóttur og Önnu Lilju Gunnarsdóttur og sendiráðum Íslands í Genf og New York unnið ötullega að því að vekja athygli háttsettra aðila innan Sam- einuðu þjóðanna og Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar WHO á að hrinda þurfi af stokkunum fjölþjóðlegu átaki í þágu lækninga í taugakerfinu. Því hefur ofangreint fólk komið orðunum lækning og möguleg lækning á mænuskaða og í taugakerfinu inn í samþykktir og stefnuyfirlýsingar beggja stofnan- anna ásamt orðum eins og hag- nýting gervigreindar og f leiru. Nú er svo komið að á næsta ári stendur til að WHO ýti úr vör áratugar átaki í þágu taugakerfisins og er þá allt innifalið, forvarnir, umönnun, með- ferðir og lækning. Er það óþrjótandi vinnu Íslands að þakka að lækning í taugakerfinu er þar með. Nú er að hugsa stórt, Íslendingar, og ráðast á garðinn þar sem hann er hæstur. Nú er rétti tíminn til að fylgja því eftir með athöfnum sem við höfum komið á blað hjá WHO. Gerum allt sem í okkar valdi stendur til að loksins verði hægt að lækna lama manninn. Fyrsta skrefið er að samþykkja að leit að lækn- ingu við mænuskaða/lömun verði útnefnd sem eitt af gervigreindar- verkefnum Íslands. Síðan þarf við- eigandi stjórnvald að leita eftir því við stjórn WHO að hún hvetji aðrar þjóðir til að taka aðra sjúkdóms- flokka í taugakerfinu og gera það sama og við. Þannig gæti tekist að ná fram þeirri samstöðu heimsins sem þarf til að finna lækningu við lömun og öðrum meinum í hinu ill- viðráðanlega taugakerfi. Greinarhöfundur þakkar þeim tugum þúsunda Íslendinga sem veitt hafa mænuskaðaverkefninu lið í gegnum árin og sem er undirstaða þess árangurs sem nú hefur náðst. n Hugsum stórt Íslendingar Auður Guðjónsdóttir stjórnarformaður Mænuskaðastofn- unar Íslands.  Þegar borgin hreykir sér af því að svo og svo margir hafi komist í búsetuúrræði hjá borginni, hljómar það eins og foreldri sem hreykir sér af því að vera gott foreldri af því það vanræki ekki öll börnin sín, bara sum. Nú er að hugsa stórt, Íslendingar, og ráðast á garðinn þar sem hann er hæstur. 12 Skoðun 23. júlí 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.