Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 4
Allt er þetta gert í
samráði við sérfræð-
inga sem meta áhættu
og slíkt og auðvitað
kom þetta öllum á
óvart.
Gísli Sigurðs-
son, formaður
byggðarráðs
Skagafjarðar.
Sérfræðingur hjá Veður-
stofunni hafði sagt mikla
hættu til staðar í Varmahlíð
áður en aurskriðan féll þar
fyrir þremur vikum, segja
íbúar sem telja „yfirvofandi
hættuástand“ vera á svæðinu.
Formaður byggðarráðs segir
skriðuna hafa komið öllum á
óvart.
gar@frettabladid.is
VARMAHLÍÐ „Nokkrir íbúar hafa
ítrekað verið í sambandi við
starfsmenn sveitarfélagsins vegna
ástandsins, en lítil viðbrögð fengið,“
segir í bréfi íbúa níu húsa í Varma-
hlíð þar sem aurskriða féll 29. júní
síðastliðinn.
Aurskriðan olli talsverðu tjóni
og var ráðist í aðgerðir til að koma í
veg fyrir vatnsaga í hlíðinni þar sem
skriðan féll. „Íbúar Varmahlíðar eru
afar slegnir yfir þessum atburðum,
ekki síst vegna þess að búið er að
benda á að ástand jarðvegs og vatns-
mála á svæðinu hefur ekki verið í
lagi mánuðum saman,“ segir í bréfi
íbúanna sem skrifað er til sveitar-
stjórnar Skagafjarðar
Segjast íbúarnir vilja að sveitar-
stjórnin komi til fundar við þá
„vegna þess neyðarástands sem ríkir
í norðurhluta Varmahlíðar“.
Gefið er til kynna í bréfi íbúanna
að aurskriðan hefði ekki átt að koma
mönnum í opna skjöldu. Þannig hafi
sérfræðingur frá Veðurstofu Íslands
„talið mikla hættu til staðar“, eins og
segir í bréfinu. Með því fylgir afrit
af samskiptum þessa starfsmanns
Veðurstofunnar við sveitarfélagið.
„Íbúar líta svo á að um yfirvof-
andi hættuástand sé að ræða, þó
búið sé beisla eitthvað af vatninu
á svæðinu. Ljóst er að enn er mik-
ill vatnsagi víða í umhverfinu og
óvissa um hvaða aðgerða þarf og á
að grípa til, svo tryggja megi öryggi
íbúa og fyrirbyggja frekara tjón, svo
ekki sé talað um slys á fólki,“ segir í
bréfi íbúanna. Gera þurfi nákvæmar
jarðvegsrannsóknir og kortleggja
hættur sem kunni að „ógna mann-
virkjum og setja um leið líf íbúa í
hættu“.
Byggðarráð Skagafjarðar tók bréf
íbúanna fyrir í síðustu viku og ákvað
að haldinn yrði fundur með þeim í
þessari viku en af honum verður þó
ekki fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku.
„Það er enn verið að vinna úr
gögnum í málinu og ekki vit í að vera
með fund nema vera með almenni-
legar upplýsingar,“ segir Gísli Sig-
urðsson, formaður byggðarráðs,
sem tekur ekki undir að sveitarfélag-
ið hafi flotið sofandi að feigðarósi.
„Allt er þetta gert í samráði við
sérfræðinga sem meta áhættu og
slíkt og auðvitað kom þetta öllum á
óvart. Það er verið að reyna að beisla
þetta jarðvegsvatn sem er þarna og
menn eru lítið farnir að geta horft á
uppbygginguna,“ segir Gísli.
Segjast íbúarnir vilja vita hvaða
áætlun sveitarfélagið hafi til að
bregðast við því neyðarástandi sem
sé uppi. „Það hlýtur að vera for-
gangsverkefni hvers sveitarfélags
að tryggja öryggi íbúa sinna.“
Samkvæmt fyrrgreindum sam-
skiptum starfsmanns Veðurstof-
unnar við sveitarfélagið er ástandið
enn varhugavert. Myndast hafi um
eins metra hátt jarðvegs-brotstál,
sem muni ekki geta staðið þannig
lengi.
„Bakkinn fyrir ofan mun því síga
fram þar til halli brekkunnar hefur
náð jafnvægi á nýjan leik,“ segir í
tölvuskeyti sérfræðingsins. „Lík-
legast finnst mér að þetta gerist
fremur hægt og rólega en mikill
vatnagangur gæti þó hraðað ferlinu
mjög og þetta fallið fram í einni
skyndingu.“ n
Íbúar segja hættuástand yfirvofandi
Á Laugavegi er
gatan farin að
síga verulega
ofan Laugahlíð-
ar við Sauðár-
króksbraut,
segja íbúar
í Varmahlíð.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
BJÓÐUM UPP Á 37” - 40” BREYTINGAPAKKA
BREYTINGAVERKSTÆÐI ÍSBAND,
SMIÐSHÖFÐA 5, SÉRHÆFIR SIG Í
BREYTINGUM Á RAM PALLBIFREIÐUM.
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM 3500
BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU
VERÐ FRÁ 7.421.210 KR. ÁN VSK.
9.202.300 KR. M/VSK.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
thg@frettabladid.is
SJÁVARÚTVEGUR Aflabrögð í Barents-
hafinu hafa verið undir væntingum
þetta sumarið, að því er kom fram á
vefsíðu Síldarvinnslunnar í gær. Rætt
er við Bjarna Ólaf Hjálmarsson, skip-
stjóra frystitogarans Blængs NK, er
skipið sneri til baka úr 40 daga veiði-
ferð í Barentshafið síðustu helgi.
„Fiskgengd í Barentshafinu virðist
einfaldlega vera mun minni en hefur
verið á þessum árstíma undanfarin
ár. Eins er fiskurinn sem veiðist mun
smærri en áður,“ er haft eftir Bjarna
Ólafi. Íslensk skip sækja fyrst og
fremst þorsk í Barentshafið.
Aflaverðmætið í veiðiferð Blængs
í Barentshafið var 256 milljónir, en á
síðustu árum er algengt að slíkir túrar
hafi skilað yfir 400 milljónum. n
Döpur veiði
í Barentshafi
Barentshafsþorskurinn er smærri
þetta árið en vaninn er.
hjorvaro@frettabladid.is
COVID-19 „Við erum ekki að finna
fyrir því að okkar viðskipta-
vinir sem eru staddir erlendis séu
óánægðir með þá ákvörðun sem til-
kynnt var um í gær. Það sem er verst
eru dagarnir þar sem óvissa er um
hvort herða eigi aðgerðir eður ei,“
segir Þórunn Reynisdóttir, forstjóri
Úrvals Útsýnar, um hertar reglur á
landamærum sem taka eiga gildi í
næstu viku.
Þær reglur kveða á um að bólu-
settir einstaklingar sem koma hing-
að til lands þurfi að framvísa gildu
neikvæðu PCR-prófi við komuna til
landsins.
Fólk getur annaðhvort fram-
vísað PCR-prófi eða hraðprófi og
taka nýju reglurnar gildi 26. júlí,
á mánudag í næstu viku. Covid-
prófin mega ekki vera eldri en 72
tíma gömul.
„Við finnum alveg mælanlegan
mun á bókunum hjá okkur á meðan
óvissa ríkir um takmarkanir annars
vegar og eftir að ákvarðanir liggja
fyrir hins vegar. Bókanir í ferðir
tóku til að mynda mikinn kipp eftir
að ákvörðunin lá fyrir í gær. Það er
óvissan sem er okkar versti óvinur,“
segir Þórunn.
Sömu reglur verða áfram í gildi
um óbólusetta, það er að þeir þurfa
að fara í skimun á f lugvelli, í fimm
daga sóttkví og svo í skimun.
Enn fremur verður mælst til þess,
það verður ekki skylda, að þeir sem
eru með tengslanet hér á landi fari í
skimun innan sólarhrings frá komu
til landsins.
„Við hjá Úrval Útsýn munum
í framhaldinu kynna þær reglur
sem taka gildi í næstu viku vel fyrir
þeim sem bóka ferðir hjá okkur.
Svo er það bara eins og áður að við
brýnum fyrir þeim sem ferðast á
okkar vegum að fara varlega og
gæta að persónubundnum sótt-
vörnum,“ segir forstjórinn um
fram haldið. n
Óvissan verri en ákvörðunin um framvísun neikvæðs prófs
Hertar aðgerðir fæla ekki ferða-
þyrsta Íslendinga frá plönum sinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
mhj@frettabladid.is
VESTMANNAEYJAR Þjóðhátíðarnefnd
hefur ekki áhyggjur af því að farald-
urinn eyðileggi Þjóðhátíð. Nefndin
er undir allt búin, einnig möguleg
smit meðal gesta.
Nefndin fundaði síðast með þar til
bærum yfirvöldum í gær og Hörður
Orri Grettisson, formaður nefndar-
innar, segir hana undir allt búna. n
Smit munu ekki
stöðva Þjóðhátíð
4 Fréttir 20. júlí 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ