Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 6
Þróun á viðhorfum til verkaskiptingar á heimilum Þvo þvott Fjármál heimilisins 1992 19922006 20062014 2014 Spurt var hver ætti að sjá um tiltekin verk, þegar bæði kynin eru útivinnandi. n Stelpur n Strákar 46 ,5 % 57 ,3 % 42 ,1 % 34 ,7 % 64 ,5 % 53 ,2 % 0, 3% 5 ,5 % 0, 6% 0, 8% 7, 6% 6, 0% 28 ,6 % 44 ,7 % 54 ,8 % 24 ,6 % 75 ,0 % 71 ,2 % 0, 2% 3 ,1 % 0, 5% 0, 4% 5, 5% 3, 4% 58 ,3 % 76 ,0 % 5, 5% 3, 1% 20 ,9 % 27 ,9 % 36 ,2 % 15 ,1 % 50 ,7 % 41 ,6 % 66 ,2 %61 ,0 % 33 ,5 % 81 ,5 % LYFSALINN GLÆSIBÆ Opið 8.30 - 18.00 Sími 517 5500 / glaesibaer@lyfsalinn.is LYFSALINN VESTURLANDSVEGI Opið 9.00 - 22.00 Sími 516 5500 / vesturlandsvegur@lyfsalinn.is LYFSALINN URÐARHVARFI Opið 9.00 - 17.30 Sími 516 5505 / urdarhvarf@lyfsalinn.is Glæsibær Vesturlandsvegur Urðarhvarf www.lyfsalinn.is APÓTEK LYFSALANS gar@frettabladid.is ÁRNESHREPPUR Breytingar á aðal­ skipulagi og deiliskipulagi opna fyrir sumarhús á fjórtán nýjum lóðum á eyðijörðinni Dröngum í Árneshreppi. Í umf jöllun hreppsnef ndar Árneshrepps segir að Náttúrufræði­ stofnun telji þetta fela í sér umfangs­ mikla breytingu á landnotkun. „Þessu mun f ylgja töluverð ásýndarbreyting og aukin umsvif sem geta falið í sér hættu á raski og mengunaróhöppum. Að mati stofnunarinnar hefði mátt stíga var­ færnari skref, til dæmis með því að leyfa færri hús til að byrja með þar sem lítið er um mannvirki á svæð­ inu í dag,“ er vitnað til sjónarmiða Náttúrufræðistofnunar í fundar­ gerð sveitarstjórnar. Hreppsnefndin segir hins vegar að svæðið sé skilgreint fyrir frí­ stundabyggð. „Auk þess vekur nefndin athygli á því að við hönn­ un byggðarinnar var leitast við að halda áhrifum á ásýnd í lágmarki og þá metur nefndin að lítil hætta sé á raski og mengunaróhöppum með tilliti til þess að umferð ökutækja verður mjög takmörkuð,“ segir hreppsnefndin. Þá segja heimamenn uppbygging­ una dreifast yfir margra ára tímabil. Ein lóðin er umhverfis súrheys­ turn sem breyta á í frístundahús. „Einnig er gert ráð fyrir að endur­ byggja gömlu fjárhúsin í upp­ runalegri mynd og nýta þau sem sameiginlegt gistirými og sam­ komustað. Auk þess er gert ráð fyrir að endurbyggja og lagfæra hesthús og skemmu.“ n Heimila lóðir fyrir fjórtán sumarhús á eyðijörðinni Dröngum Drangar í Árneshreppi. Íslenskir unglingar verða jafn­ réttissinnaðri með ári hverju hvað varðar verkaskiptingu á heimilum. Árið 2006 sker sig þó úr þegar bakslag varð. urduryrr@frettabladid.is JAFNRÉTTISMÁL Viðhorf ungmenna á Íslandi gagnvart verkaskiptingu inni á heimilunum virðast verða jafnréttissinnaðri með tímanum en þróunin er ekki línuleg, samkvæmt Andreu Sigrúnu Hjálmsdóttur, lektor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri. Andrea vann rannsókn ásamt Einari Baldvin Þorsteinssyni, dós­ ent í sálfræði, og Þóroddi Bjarna­ syni, prófessor í félagsfræði, sem birtist í gær í tímaritinu Adolesc­ ents. Í rannsókninni eru borin saman gögn um viðhorf tíundu bekkinga frá árunum 1992, 2006 og 2014. Andrea segir niðurstöður á svip­ uðu róli árin 1992 og 2014 en árið 2006 skar sig úr. Þá voru viðhorf íhaldssamari og f leirum fannst til dæmis að konur ættu að sjá um hefðbundin heimilisstörf eins og að þvo þvott og þrífa. Þótt ekki sé hægt að staðhæfa neitt telur Andrea ekki ólíklegt að viðhorf krakkanna endurspegli að einhverju leyti þær fyrirmyndir sem þeir hafa á heimilum sínum. Þá telur hún líklegt að bakslagið tengist stemningunni á Íslandi stuttu fyrir hrun. „Það var gríðarleg áhersla á samkeppnisumhverfi og einstaklingshyggju en minni á sameiginlega baráttu,“ segir hún. Stemningin sem skapaðist á þessum tíma í samfélaginu hefur að hennar sögn smitað frá sér í alla kima en eftir hrun hafi það breyst og meira pláss hafi þá skapast fyrir sameigin­ lega baráttu. Þá segir hún að eitt af því sem hafi komið fram í rannsókninni sé að stelpur hafi á öllum tímabilunum haft jafnréttissinnaðri viðhorf en Jafnréttisviðhorf tóku dýfu fyrir hrun Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, lektor við hug- og félags- vísindasvið Háskólans á Akureyri. strákarnir og svari oftar að hjón eigi að skipta með sér verkum. „Það er í samræmi við erlendar rannsóknir að stelpur eru almennt jafnréttis­ sinnaðri en strákar,“ segir Andrea. Nýrri tölur eru ekki aðgengilegar ennþá en Andrea vonast til að geta borið þær saman við rannsóknina þegar að því kemur. „Núna er rosa margt að gerast í samfélaginu, eins og MeToo til dæmis, sem er ekki ósennilegt að muni hafa heilmikil áhrif,“ segir Andrea. Hún er bjart­ sýn á að byltingar síðustu mánaða og ára leiði af sér enn sterkari kröfu um aukið jafnrétti. Nú þegar hafi miklar fram­ farir orðið í jafnréttisbaráttunni en áherslan sé mest á opinbera rýmið og heimilið hafi oft gleymst, sér­ staklega hefðbundin heimilisverk. Þó sé áberandi að karlar hafa verið að koma sterkir inn hvað varðar uppeldi barna. „Svo má ekki gleyma því að jafn­ rétti er ekki línuleg þróun heldur þarf alltaf að halda baráttunni lif­ andi,“ segir Andrea. Unnið var með gögn úr rannsókn sem heitir Heilsa og lífskjör skóla­ nemenda. Viðhorfin virtust ekki hafa breyst mikið á árunum 1992 til 2014. Á niðurstöðunum má sjá að krakkarnir tengdu það að þvo þvott, elda mat, þrífa og kaupa í matinn mest við konur. Það að huga að litlum börnum á nóttunni, fara á foreldrafundi og vaska upp var tengt við bæði kynin nokkuð jafnt en þó aðeins meira við konur. Að huga að fjármálum og gera við hús og bíla var í mun meiri mæli tengt við karla. n thorgrimur@frettabladid.is HOLLAND Að minnsta kosti 195 hafa látist í hamfaraflóðum í Vestur­Evr­ ópu undanfarna viku. Hollendingar hafa sloppið betur en nágranna­ ríkin og hafa engin dauðsföll vegna flóða verið tilkynnt þar. „Við sáum bylgjuna betur fyrir og hvert hún stefndi,“ sagði Jeroen Aerts, sérfræðingur við Fríháskól­ ann í Amsterdam, í viðtali við CNN en vatnsvarnir Hollands þykja með þeim bestu í heimi. Jeff Da Costa, vatnsveðurfræð­ ingur við Háskólann í Reading, segir viðbrögðin í Þýskalandi hafa einkennst af skipulagsleysi og fálæti gagnvart viðvörunum. Viðbún­ aður Hollendinga kunni að reynast öðrum löndum fyrirmynd á kom­ andi árum þar sem hamfarir vegna úrkomu muni aukast á næstu árum sökum loftslagsbreytinga. n Varnir Hollands stóðust raunina Bærinn Bromme í Hollandi er illa farinn eftir flóðin. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP thorgrimur@frettabladid.is HAÍTÍ Claude Joseph, starfandi for­ sætisráðherra Haítí mun víkja úr embætti fyrir Ariel Henry, sem hafði verið útnefndur forsætisráðherra af Jovenel Moïse forseta tveimur dögum áður en hann var myrtur. Joseph varð starfandi forseti Haítí eftir morðið á Moïse 8. júlí. n Ariel Henry tekur við stjórn á Haítí Skoðuð voru viðhorf 10. bekkinga frá 1992, 2006 og 2014. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 6 Fréttir 20. júlí 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.