Fréttablaðið - 20.07.2021, Side 11
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 20. júlí 2021
Eva segir að mikill árangur hafi náðst í baráttunni gegn kynferðisofbeldi síðan fyrsta Druslugangan fór fram árið 2011 og þolendur fái nú miklu meiri
stuðning og bjóðist fleiri úrræði en nokkru sinni. En hún segir umræðuna líka sýna að það sé enn mikil þolendaskömmun og gerendameðvirkni í samfélaginu
og hana þurfi að uppræta. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Enn þörf fyrir Druslugönguna
Druslugangan fer fram í tíunda sinn á laugardag. Eva Sigurðardóttir, einn skipuleggjenda,
segir að þó að mikill árangur hafi náðst í baráttunni gegn kynferðisofbeldi sé enn mikil ger-
endameðvirkni og þolendaskömm í samfélaginu og því sé enn þörf fyrir Druslugönguna. 2
Gangan hefst við Hallgrímskirkju.
sandragudrun@frettabladid.is
Vesenisferðir hafa í sumar boðið
upp á léttar síðdegisgöngur í mið
borg Reykjavíkur í samstarfi við
Sumarborgina. Göngurnar eru
síðdegis á þriðjudögum og byrjuðu
í júní en í kvöld er næstsíðasta
gangan að þessu sinni. Í kvöld
verður lögð áhersla á byggingar
listina í borginni og stoppað verður
hjá nokkrum af þeim byggingum
sem arkitektinn Guðjón Samúels
son teiknaði, en hann teiknaði
margar af helstu byggingum mið
borgarinnar.
Lagt verður af stað frá Hall
grímskirkju klukkan 18.00 en
tíu mínútum fyrir brottför verða
gerðar nokkrar Müllersæfingar.
Gangan endar í Lækjargötu.
Hreyfing og fræðsla
Guðjón Samúelsson var skipaður
í stöðu húsameistara ríkisins árið
1920 og gegndi embættinu í þrjátíu
ár. Hann teiknaði á þeim tíma
flestar opinberar byggingar ríkisins
og kom að skipulagsmálum í fjölda
bæja á Íslandi. Meðal þekktustu
bygginga hans í Reykjavík eru aðal
bygging Háskóla Íslands, Eimskipa
félagshúsið, Hallgrímskirkja, aðal
bygging Landspítalans, Sundhöllin
og Hótel Borg. Byggingarnar eru of
margar til að hægt sé að stoppa við
þær allar í stuttri gönguferð en fyrir
þau sem hafa áhuga á byggingarlist
og sögu borgarinnar er tilvalið að
skella sér í létta göngu í kvöld. n
Fræðandi
kvöldganga