Fréttablaðið - 20.07.2021, Qupperneq 19
FASTEIGNIR. FRETTABLADID.IS
Fasteignablaðið
29. TBL. ÞRIÐJUDAGUR 20. júlí 2021
Fasteignamarkaðurinn ehf. s:
570-4500 kynnir til sölu mikið
endurnýjaða heila húseign með
þremur íbúðum auk byggingar-
réttar að einni íbúð ofan á húsið
á mjög fallegum og eftirsóttum
stað á horni Spítalastígs og
Óðinsgötu í Reykjavík.
Óðinsgata, Óðinstorg og hluti
Spítalastígs eru öll endurnýjuð
með hitalögnum undir götum og
gangstéttum og Óðinstorgið er
virkilega fallega hannað með hita-
lögnum undir stéttum og bekkjum
og með fallegum trjágróðri.
Árið 1999/2000 var íbúð á 1. hæð
mjög mikið endurnýjuð, m.a. allar
lagnir og útveggir einangraðir upp
á nýtt. Innihurðir á miðhæð voru
endurnýjaðar. Allar raflagnir, raf-
magnstöflur fyrir 1. hæð og sam-
eiginleg rafmagnstafla fyrir 1. hæð
og ris voru endurnýjaðar. Eins voru
allar vatnslagnir, hitalagnir, ofnar
og frárennslislagnir endurnýjaðar
á miðhæð hússins. Bárujárn á húsi
var endurnýjað á suður- og vestur-
hliðum þess árið 2005.
Íbúð á 1. hæð er 52,8 fermetrar
að stærð, 3 herbergja með aukinni
lofthæð, fallegum gifslistum og
rósettum í loftum og skiptist
þannig: Forstofa með fatahengi.
Baðherbergi, f lísalagt gólf, sturtu-
klefi, loftræsting, miklar inn-
réttingar og tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergi, parketlagt og
rúmgott. Eldhús, parketlagt og
með fallegum sprautulökkuðum
hvítum og gráum innréttingum og
góðri borðaðstöðu. Stofa, opin við
eldhús, parketlögð og tengingar
fyrir kamínu tilbúnar. Svefnher-
bergi II, parketlagt og rúmgott með
stórri rennihurð við stofu.
Íbúð á efri hæð/risi hússins er
53,9 fermetrar að stærð, 3 her-
bergja og með vestursvölum og
skiptist þannig: Forstofa á 1. hæð
um sérinngang með geymslu undir
innistiga. Viðarstigi er upp á efri
hæð hússins. Stiginn er nýmálaður
og stigahús einnig. Stigapallur, er
með fatahengi og útgengi á rúm-
góðar svalir til suðurs sem eru með
viðarklæddu gólfi, glerhandriði og
fallegu útsýni yfir borgina og að
Reykjanesi. Eldhús, parketlagt með
glugga til suðurs og hvítum inn-
réttingum. Stofa, rúmgóð, parket-
lögð. Barnaherbergi I, parketlagt
og með fataskápum. Hjónaher-
bergi II, parketlagt og rúmgott með
fataskápum. Baðherbergi, með
glugga, allt nýendurnýjað með
nýjum sturtuklefa. Linoleumdúk-
lagt gólf og upp á veggi, tengi fyrir
þvottavél sem fylgir.
Geymsluris er yfir efri hæð
hússins og er það óupphitað með
rafmagni og gaflglugga til austurs.
Geymsluris er ekki manngengt.
Íbúð í kjallara hússins er með
sérinngangi, er ósamþykkt (sam-
þykkt sem hluti af íbúð á 1. hæð),
er 3 herbergja 53,2 fermetrar. For-
stofa, f lísalögð og með fatahengi.
Stofa og eldhús eru í einu rúm-
góðu flísalögðu rými með glugga
til suðurs. Hvítar innréttingar í
eldhúsi. Barnaherbergi, parket-
lagt og rúmgott með fataskápum.
Hjónaherbergi, parketlagt og rúm-
gott með fataskápum og sérinn-
gangi frá Spítalastíg. Baðherbergi,
f lísalagt gólf, skápar, veggskápar,
f lísalögð sturta, loftræsting og inn-
rétting með vinnuborði og tengi
fyrir þvottavél.
Húsið er timburhús á hlöðnum
kjallara, byggt árið 1910 og er í
góðu ástandi að innan og utan. n
Hús á eftirsóttum stað
Húsið stendur á horni Spítalastígs og Óðinsgötu.
Font:
Mark Pro
Corbel - Regular
C 100%
M 75%
Y 0%
K 33%
Pantone #00397A
C 75%
M 68%
Y 67%
K 100%
Pantone #00000
C 0%
M 0%
Y 0%
K 75%
Pantone #626366
Sigurður Samúelsson
Lögg. fast. og eigandi
Þórarinn Thorarensen
Lögg. fast. og eigandi
Þórey Ólafsdóttir
Lögg. fast. og eigandi
Júlíus Jóhannsson
Lögg. fast. og eigandi
Monika Hjálmtýsdóttir
Lögg. fast. og eigandi
Andri Sigurðsson
Lögg. fast. og eigandi
Sveinn Eyland
Lögg. fast og eigandi
Ingibjörg A. Jónsdóttir
Löggiltur fast.
Eggert Maríuson
Löggiltur fast.
Bryndís Bára
Aðstoðarmaður
fasteignasala
Emil Tumi
Aðstoðarmaður
fasteignasala
Jón Óskar
Löggiltur fast.
Guðrún D. Lúðvíksdóttir
Löggiltur fast.
Ása Þöll Ragnarsdóttir
Skjalavinnsla/móttaka
Herdís S. Jónsdóttir
Aðstoðarmaður
fasteignasala
Hlíðasmára 2
201 Kópavogi
Sími: 512 4900
www.landmark.is
landmark@landmark.is
Grensásvegur 3 • 2 hæð • 108 Reykjavík • Sími 530 6500 • heimili@heimili.is • heimili.is
Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali.
ERT ÞÚ Í SÖLUHUGLEIÐINGUM?
-örugg fasteignaviðskipti
Við erum til þjónustu reiðubúin
Elín Viðarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Björn Þorri Viktorsson hrl.
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Jóhann Örn B. Benediktsson
MIÐBORG FASTEIGNASALA - SUNDAGARÐAR 2 - 104 REYKJAVÍK - SÍMI: 533 4800
www.midborg.is
Sólveig Fríða Guðrúnardó tir
Löggiltur fasteignasali og
lögfræðingur