Fréttablaðið - 20.07.2021, Qupperneq 26
Um þessar mundir
eru vextir hag-
stæðir og hægt er að
tryggja fasta vexti á
lánum til allt að 20-25
ára, sem auðveldar fólki
kaupin og verðtryggð lán
þekkjast ekki á Spáni.
Höfuðstóll lánsins
lækkar við hverja afborg-
un og eigið fé í eigninni
eykst.
Sala á fasteignum á Spáni
hefur verið lífleg enda
góður tími til að fjárfesta
um þessar mundir. Gott
veðurfar og hagstætt verðlag
dregur marga íbúa Norður-
landa til Spánar. Þá hefur
aukin fjarvinna gefið fólki
kost á að starfa langt frá
vinnustaðnum.
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur
fasteignasali og framkvæmda-
stjóri Spánareigna sem er íslensk
fasteignasala, hefur sérhæft sig í
sölu fasteigna á Spáni til Íslend-
inga í tuttugu ár og er því öllum
hnútum kunnug þegar kemur að
slíkum kaupum. „Ljúfur lífsstíll í
Spánarsólinni heillar fleiri og fleiri
Íslendinga og við höfum síðustu
misserin orðið vör við verulega
aukinn áhuga fólks á að eignast sitt
eigið heimili á Spáni, sérstaklega
eftir að flestir eru fullbólusettir og
þyrstir í ferðalög til heitari landa,“
segir Aðalheiður og bætir við að
Íslendingar vilji í auknum mæli
hafa fastan samastað á Spáni.
„Með því að fara beint í eigið
húsnæði getur fólk lágmarkað
alla sameiginlega fleti og dregið
úr áhættunni á því að smitast af
covid,“ segir hún.
Núna er mjög góður tími til að
kaupa húseign á Spáni
„Það er mjög góður tími til að
kaupa fasteignir á Spáni um þessar
mundir, verðin eru enn góð en við
sjáum hækkanir í kortunum. Salan
hefur verið lífleg að undanförnu
og fer vaxandi. Fólk virðist vera að
endurhugsa margt í kjölfar Covid
og horfir til lífsgæða á annan
hátt en áður. Fleiri og fleiri geta
sinnt fjarvinnu í gegnum netið og
það opnar ný tækifæri og eykur
sveigjanleika í búsetu. Að eiga
heimili í sólinni er orðið mun eftir-
sóttara hjá íbúum Norður-Evrópu
og Skandinavíu og spilar þar margt
inn í, en sennilega aðallega veðrið
og verðið,“ segir hún.
„Íslendingar virðast vera á sömu
línu og nágrannaþjóðir okkar,
enda mikil lífsgæði fólgin í því
að eiga heimili í sólinni. Sjálf get
ég alveg tekið undir það, enda
búin að njóta þess að eiga mitt
annað heimili á Spáni í rúm 20
ár og hefði ekki viljað fara á mis
við það, enda átt þar fjölmargar
sælustundir með fjölskyldu og
vinum. Verðið á allri neysluvöru
er mjög hagstætt og sólin skín yfir
300 daga á ári. Mér finnst aldrei
eins og ég sé í vinnunni þegar ég er
með viðskiptavinum, ég hef mikla
ánægju af því að deila með öðrum
góðri reynslu minni af því að eiga
heimili í sólinni og aðstoða fólk við
að velja það sem hentar því best.“
Áralöng reynsla og traust
„Við hjá Spánareignum höfum selt
fasteignir á Spáni frá því 2001 og
höfum því yfirgripsmikla þekk-
ingu og góð sambönd sem nýtist
viðskiptavinum okkar vel. Við
erum með skrifstofu á Íslandi og
fólki finnst þægilegt að byrja ferlið
á því að koma til okkar í kaffi og
persónulegt spjall og fá upplýsing-
ar um hvað er í boði, eignir og stað-
setningar, og hvernig kaupferlið
gengur fyrir sig, áður en það bókar
skoðunarferð til Spánar,“ upplýsir
Aðalheiður og bætir við að það
sé ekki flókið að kaupa fasteign á
Spáni. „Engu að síður er afar mikil-
vægt að fá aðstoð fagfólks til að
allt gangi vel upp og forðast óþarfa
vandamál,“ segir hún.
„Við aðstoðum viðskiptavini
okkar við allt kaupferlið, frá upp-
hafi til enda, allt frá því að við
förum yfir kaupóskir, mismunandi
tegundir eigna og staðsetningu,
verð, skipulag skoðunarferðar
og þar til skrifað er undir kaup-
samning, lyklar afhentir og afsal
gefið út. Við tökum líka þátt í
kostnaði við skoðunarferðina fyrir
okkar viðskiptavini. Enn fremur
veitum við ráðgjöf í sambandi við
fjármögnun á fasteignakaupum
og erum í samstarfi við góða aðila
á því sviði, til að tryggja bestu
lánakjörin sem í boði eru hverju
sinni. Um þessar mundir eru vextir
hagstæðir og hægt er að tryggja
fasta vexti á lánum til allt að 20-25
ára, sem auðveldar fólki kaupin
og verðtryggð lán þekkjast ekki á
Spáni. Höfuðstóll lánsins lækkar
við hverja afborgun og eigið fé í
eigninni eykst.
Einnig aðstoðum við okkar við-
skiptavini við kaup á húsgögnum,
útvegun á NIE-númerum (spænsk
kennitala) opnun á bankareikn-
ingi, beingreiðslur neyslureikninga
og fleira sem þarf til að allt gangi
vel fyrir sig,“ segir Aðalheiður en
þannig getur fólk verið áhyggju-
laust þegar það fer í fasteigna-
kaupin.
Persónuleg þjónusta
Lögð er sérstök áhersla á persónu-
lega þjónustu fyrir hvern. „Þarfir
viðskiptavina eru mismunandi og
við viljum sinna hverjum og einum
fyrir sig. Viðskiptavinir okkar hafa
verið mjög ánægðir með þjónust-
una í gegnum árin, enda fáum við
í dag flesta nýja viðskiptavini til
okkar vegna meðmæla frá eldri
viðskiptavinum. Það finnst okkur
best.”
Ungt fólk sækir í betri lífsgæði
„Kaupendahópurinn hefur verið
að breytast nokkuð síðustu árin og
nú er til að mynda mun yngra fólk
að kaupa sér eign í sólinni en áður.
Fólk vill ekki bíða þar til það fer á
eftirlaun, heldur fara í þetta strax,
enda getur það þá fengið lengri
og hagstæðari lán og á þá jafnvel
eignina sína skuldlausa þegar það
fer á eftirlaun, sem einfaldar eftir-
launaárin og eykur lífsgæðin veru-
lega. Þannig er líka hægt að njóta
þess að vera í sólinni með börn-
unum sínum á meðan þau eru enn
ung, og síðan taka barnabörnin
við, enda ekkert betra en að vera
hjá ömmu og afa á Spáni, busla í
sundlauginni eða á ströndinni og
fá sér ís,“ segir Aðalheiður og talar
af reynslu.
„Ekki má gleyma öllum sem taka
sínar fyrstu golfsveiflur í sólinni,
enda hægt að spila golf í góðu
veðri allt árið. Alls kyns útivera og
íþróttir heilla líka marga, hjól-
reiðafólk og göngugarpar finna
sína paradís á Spáni. Á vissan hátt
má því líta á fasteignakaup á Spáni
sem langtímafjárfestingu í lífs-
gæðum.
Við höfum einnig orðið vör við
það í auknum mæli að fólk er að
kaupa fasteign á Spáni með það
í huga að flytja alfarið út, lífs-
gæði fyrir ungt fólk með börn eru
umtalsverð. Hægt er að fá góða
fasteign fyrir mun lægra verð en á
Íslandi. Skólakerfið og heilbrigðis-
þjónusta er mjög gott, biðlistar
þekkjast varla, og auðvelt að vera
með börn á Spáni. Við erum til
dæmis með íslenskan starfsmann
búsettan á Spáni með tvö börn,
sem er öllum hnútum kunnugur
þar og hefur gefið mörgum góð ráð
í því sambandi.
Eldra fólk flytur líka í auknum
mæli alfarið til Spánar, enda finnur
það vel fyrir því hversu góð áhrif
hitinn hefur á kroppinn, sérstak-
lega yfir vetrarmánuðina, og eftir-
launin leyfa meiri lúxus.
Ýmis tækifæri í sólinni
Sömuleiðis færist það í vöxt að
fólk kaupi fasteignir á Spáni til að
fjárfesta, nýtir þá eignina sjálft
hluta úr ári og leigir hana síðan út
og nær þannig að reka eignina og
fjármagna að miklu leyti. Í þessu
sambandi eru það oftast einstakl-
ingar, en líka stórfjölskyldan eða
samhentir vinir, sem kaupa saman.
Enn fremur höfum við í auknum
mæli verið að aðstoða stórtækari
fjárfesta við að setja upp fyrirtæki
á Spáni til að kaupa fasteignir og
Ljúfur lífsstíll í sólinni
Á Las Colinas er fjölbreytt úrval af fallegum íbúðum með frábæru útsýni yfir
golfvöllinn. Starfsfólk Spánareigna veitir persónulega þjónustu við kaupin.
Falleg einbýlishús við La Finca golfvöllinn á frábæru verði. Stílhrein hönnun og fágaður glæsileiki. Stutt á golfvöllinn og notalegur þjónustukjarni með versl-
unum og veitingastöðum í göngufæri. Hægt er að velja um mismunandi stærðir á einbýlishúsum eða íbúðum á þessu frábæra svæði.
Það getur verið notalegur lífsstíll á Spáni.
10 kynningarblað 20. júlí 2021 ÞRIÐJUDAGURFASTEIGNAK AUP ERLENDIS