Fréttablaðið - 20.07.2021, Page 27

Fréttablaðið - 20.07.2021, Page 27
Armani-villan Morning Breeze, á Las Colinas-golfvellinum, hönnuð af Monicu Armani. Fullkominn glæsileiki sem vakið hefur mikla athygli. Las Colinas var valinn besti golfvöllur á Spáni árið 2020. Fallegar íbúðir og glæsileg sameign í Flamenca Village njóta mikilla vinsælda. Sundlaugargarður með mörgum sundlaugum, heitum pottum, leiksvæði fyrir börnin, göngu- og skokkleiðum, veitingastöðum og verslunum inni á lokuðu svæði. Örstutt göngufæri á ströndina, La Zenia Boulevard og laugardagsmarkað- inn á Playa Flamenca. Hagstæðir húsgagnapakkar eru í boði fyrir viðskiptavini Spánareigna. Verðið á allri neysluvöru er mjög hagstætt og veðrið frábært. Íbúðir og sérbýli með tveimur eða þremur svefnherbergjum, tveimur eða þremur baðherbergjum og sameiginlegum sundlaugargarði njóta mikilla vinsælda um þessar mundir. Spánareignir bjóða upp á gott úrval eigna á ýmsum stöðum á mjög hagstæðu verði, alveg niður í 25-30 milljónir. Aðalheiður Karlsdóttir er löggiltur fasteignasali og eigandi Spánareigna. MYNDIR/AÐSENDAR reka þær í atvinnuskyni, enda ýmis spennandi tækifæri fólgin í því. Íslensk fyrirtæki, starfs- mannafélög og orlofssjóðir hafa líka verið að kaupa hjá okkur eignir fyrir sitt fólk og opnar það ný tækifæri fyrir launafólk að geta eytt sumarleyfinu sínu á Spáni án þess að það kosti of mikið. Í því felst mikil kjarabót sem skilar ánægðara starfsfólki til fyrirtækis- ins.“ Rétt eign skiptir öllu máli „Góð staðsetning skiptir ekki minna máli en góð fasteign og leggjum við mikla áherslu á að ráðleggja fólki vel í því sambandi. Eignir við strönd eða golfvelli eru alltaf vinsælar, og margir vilja vera í göngufæri við verslanir og veitingastaði, en það er samt alls ekki krafa frá öllum. Sumir velja rólega staði og vilja vera meira út af fyrir sig. Margir kjósa að láta eignina snúa á móti sól, aðrir kjósa skuggann. Það er því mikilvægt að geta boðið upp á fjölbreytni í gerð fasteigna og ýmsar staðsetningar. Íbúðir, lítil sérbýli og stærri ein- býlishús eru það sem fólk er helst að kaupa og nýjar eignir eru mun vinsælli en endursölueignir, þó þær seljist alltaf líka, ef þær eru í góðu ástandi og vel staðsettar. Góðar eignir á golfvöllum hafa verið að seljast vel að undanförnu, til dæmis við Las Colinas, La Finca og Vistabella golfvellina. Margir kjósa að vera nálægt strönd og þar erum við með sérlega vandaðar og góðar íbúðir, meðal annars í Flamenca Village sem er í örstuttu göngufæri við fallega strönd, vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard, og laugardags- markaðinn á Playa Flamenca. Einnig erum við með frábærar íbúðir og lítil sérbýli við strend- urnar í Mil Palmeras og Dehesa de Campoamor, svo eitthvað sé nefnt. Villamartin og Cabo Roig eru einn- ig vinsælir staðir og þar er hægt að velja úr fjölbreyttu úrvali eigna. Smábæir líka vinsælir Við verðum líka vör við að fólk kýs í auknum mæli að kaupa fasteignir í spænskum smábæjum, eins og Benijofar, Dona Pepa, Ciudad Quesada, Los Alcazares eða Daya Nueva. Einnig hefur Torre- vieja-borgin sjálf verið að aukast í vinsældum og getum við boðið upp á mjög skemmtilegar mið- borgaríbúðir á góðum verðum, alveg við ströndina þar. Einnig má nefna glæsilegar nýjar íbúðir við ströndina í Benidorm fyrir þá sem vilja vera í smáfjöri, og notalegar íbúðir á góðu verði við ströndina í Almeria fyrir þá sem kjósa meiri rólegheit og góða aðstöðu til úti- veru og íþróttaiðkunar,“ bendir Aðalheiður á. „Það er því úr mörgu að velja og við leggjum áherslu á að fara vel yfir hvað hentar hverjum við- skiptavini best. Aukið framboð á beinu flugi á milli Íslands og Alicante hefur líka mikið að segja um áhuga fólks á fasteignakaupum á Costa Blanca svæðinu og við höfum tekið eftir því að fólk er í auknum mæli að selja eignirnar sína á Flórída og færa sig yfir til Spánar.“ Ný vefsíða „Nýlega settum við í loftið nýja heimasíðu, spanareignir. is, þar sem við leggjum áherslu á að kynna fjölbreytt úrval af sér- völdum eignum og skoðum vel allar eignir sem þar fara inn til að tryggja að þær standist okkar kröfur um það sem við viljum bjóða viðskiptavinum okkar. Við staðsetjum líka eignirnar inn á kort af svæðinu, þannig að við- skiptavinurinn sjái staðsetning- una. Spánareignir eru í samstarfi við alla helstu byggingaraðilana á svæðinu og tryggir það við- skiptavinum okkar góða yfirsýn yfir allt það helsta sem er í boði hverju sinni. Það er nauðsynlegt til að hægt sé að velja bestu eignina fyrir hvern og einn. Viðskiptavinir okkar kaupa eignina beint af bygg- ingaraðilanum, en ekki í gegnum breskar eða spænskar fasteigna- sölur sem milliliði, það tryggir hagstæðasta verðið og bestu þjónustuna. Góðar upplýsingar Á heimasíðunni okkar er einnig að finna góðar upplýsingar um kaup- ferlið, lánamöguleika og hvernig best er að vinna það. Við aðstoðum viðskiptavini okkar í gegnum allt það ferli, greiðslumat og fleira og erum í samstarfi við góða lög- fræðistofu á Spáni sem gætir hags- muna viðskiptavina okkar í einu og öllu. Það er líka ákveðið öryggi í því að hafa löggiltan íslenskan fasteignasala sér við hönd í ferlinu. Við laumum líka stundum inn á heimasíðuna ýmsum áhugaverð- um fréttum, ábendingum um góða veitingastaði, golfvelli eða jafnvel spænskum mataruppskriftum. Þarna nýtist menntun og áralöng reynsla starfsfólks Spánareigna, fagmennska og traust, viðskipta- vinum okkar vel enda eru ánægðir viðskiptavinir okkar besta aug- lýsing,“ segir Aðalheiður og ítrekar að fasteign á Spáni sé langtímafjár- festing í lífsgæðum. n Nánar upplýsingar má skoða á www.spanareignir.is Góðar eignir á golfvöllum hafa verið að seljast vel að undanförnu, til dæmis við Las Colinas, La Finca og Vistabella golfvellina. kynningarblað 11ÞRIÐJUDAGUR 20. júlí 2021 FASTEIGNAK AUP ERLENDIS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.