Fréttablaðið - 14.07.2021, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 14.07.2021, Blaðsíða 18
„Árstíðabundið ofnæmiskvef (e. allergic rhinitis) er ofnæmi sem bundið er við árstíð og þar sem einkennin minna á kvefeinkenni þar sem ofnæmið veldur bólgu í nefgöngum,“ segir Unnur Sverris- dóttir, lyfjafræðingur og markaðs- fulltrúi Alvogen. „Algengasta árs- tíðabundna ofnæmið er ofnæmi fyrir grasfrjókornum yfir sumar- tímann. Frjókornin geta þó einnig verið frá súrum, birki, fíf lum eða gróum frá myglu og sveppum og f leira. Einkenni frjókornaofnæmis koma fyrst og fremst fram í nefi, augum og munni. Þau geta verið mjög hvimleið og valdið skertum lífsgæðum yfir sumartímann eða þann tíma sem frjókornin eru á lofti. Tímabil frjókornaofnæmis er yfirleitt frá maí og getur verið allt fram í september, en magn frjó- korna í andrúmsloftinu fer mikið eftir veðri. Í rigningu er minna magn frjókorna í loftinu en þegar þurrt og vindasamt er í veðri. Í ofnæmi ræðst ónæmiskerfið á hættulausa ofnæmisvalda eins og frjókorn. Frumur ónæmis- kerfisins bregðast við frjókorn- unum með kröftugu ónæmissvari og losa ýmis efni eins og til dæmis histamín sem valda ofnæmisein- kennum,“ segir Unnur. „Einkenn- in eru háð frjómagni í lofti og versna ef mikið er af frjókornum í lofti. Einkenni frjókornaofnæmis frá augum, munni og nefi kallast ofnæmiskvef, eins og fram kom hér að framan. Einkennin eru til að mynda nefstíf la, nefrennsli, tárarennsli, hnerri, hósti og kláði eða sviði í munni, nefi og augum. Einnig getur fólk með ofnæmi fundið fyrir óvenju mikilli þreytu. Ýmis lyf má finna í lausasölu við ofnæmiskvefi, bæði lyf til inntöku og nefúði. Lyf til inntöku eru andhistamín lyf, það er þau hindra áhrif histamíns í líkam- anum. Eldri andhistamínlyf geta farið yfir í miðtaugakerfið og valdið slævandi áhrifum en nýrri andhistamínlyfin komast ekki yfir í miðtaugakerfið og geta því ekki valdið slævandi áhrifum,“ útskýrir Unnur. „Nefúðarnir innihalda margir hverjir stera, en sterar hafa bólgueyðandi áhrif og draga úr ofnæmisviðbragðinu. Kostur nefúða er meðal annars að Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit­ stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@ frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Unnur Sverris­ dóttir, lyfja­ fræðingur og markaðsfulltrúi Alvogen. Fyrir­ tækið býður upp á breitt úrval af lyfjum í lausasölu við ofnæmiskvefi. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Cetirizine Alvogen Eldra heiti: Cetirizine ratiopharm Cetirizine Alvogen/ratiopharm er einnig and­ histamínlyf eins og Desloratadine Alvogen. Cetirizine Alvogen/ratiopharm eru töflur sem innihalda virka efnið cetirizin (10 mg). Það dregur úr einkennum frá nefi og augum hjá þeim sem hafa árstíðabundið ofnæmiskvef og dregur úr einkennum ofsakláða. Cetirizine Alvogen/ ratiopharm skal taka einu sinni á dag. Klínískar rannsóknir hafa sýnt að í þeim skömmtum sem mælt er með hefur cetirizin minniháttar áhrif á miðtaugakerfið. Ef einstaklingur er næmur fyrir slævandi aukaverkunum er mælt með að taka töfluna að kvöldi fyrir svefn til að lág­ marka slævandi áhrif. Sýnt hefur verið fram á að cetirizin í ráðlögðum skömmtum bætir lífsgæði sjúklinga með árstíðabundið ofnæmiskvef. Hægt er að fá Cetirizine Alvogen/ratiopharm í 10, 30 og 100 stk. pakkningum í lausasölu. Lesið vandlega upp- lýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfjanna. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upp- lýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfin á www.serlyfjaskra.is. CET.L.A.2021.0002.01. Desloratadine Alvogen Desloratadine Alvogen er andhistamín lyf og inniheldur virka efnið deslóratadín (5 mg). Það dregur úr einkennum ofnæmiskvefs og ofsakláða. Desloratadine Alvogen eru munn­ dreifitöflur sem leysast upp í munninum. Taka skal eina töflu á dag á meðan einkenna er vart eða yfir sumartímann. Deslóratadín kemst ekki yfir í miðtaugakerfið og getur því ekki haft slævandi áhrif. Hjá sjúklingum með ofnæmis­ nefkvef hefur deslóratadín reynst árangursríkt við að draga úr einkennum eins og hnerra, nef­ rennsli og kláða, ásamt augnkláða, tárarennsli og roða í augum og kláða í efri gómi. Hægt er að fá Desloratadine Alvogen bæði í 30 og 100 stk. pakkningu í lausasölu. Lesið vandlega upplýsingar á um- búðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfjanna. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upp- lýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfin á www. serlyfjaskra.is. DES.L.A.2021. 0010.01. Kalmente Kalmente er steranefúði sem inniheldur sterann mó­ metasónfúróat (50 míkróg/ skammt). Kalmente nefúði er ætlaður til meðferðar við ein­ kennum árstíðabundins of­ næmiskvefs eða stöðugs of­ næmiskvefs hjá fullorðnum. Mómetasonfúróat hamlar losun efna sem leysa of­ næmisviðbrögð úr læðingi og vinnur þannig gegn ofnæmi. Nota skal Kalmente einu sinni á sólarhring. Venjulegur ráðlagður skammtur er tveir úðaskammtar í hvora nös einu sinni á sólarhring. Þegar sjúkdómseinkennin hafa lagast má minnka skammtinn í einn úðaskammt í hvora nös einu sinni á sólarhring til að viðhalda meðferðinni. Það getur tekið nokkra daga fyrir fulla verkun af lyfinu að nást. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfjanna. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfin á www.serlyfjaskra.is. KAL.L.A.2021.0007.01. Nasofan Nasofan er steranefúði sem inniheldur sterann flútíkasónprópíónat (50 míkróg/skammt). Nasofan nefúði er ætlaður til meðferðar við árstíðabundnu ofnæmiskvefi. Nasofan hefur hamlandi áhrif á ýmis efni sem valda ofnæmisviðbragði. Ráðlagður skammtur er tveir úðaskammtar í hvora nös einu sinni á dag, helst að morgni. Í sumum tilfellum getur verið nauðsynlegt að nota tvo úðaskammta í hvora nös tvisvar á dag. Þegar stjórn hefur náðst á einkennum má nota við­ haldsskammt, sem er einn úðaskammtur í hvora nös einu sinni á dag. Ef einkenni koma fram að nýju má auka skammt í samræmi við það. Fullur ávinningur af meðferð með Nasofan nefúða næst oft ekki fyrr en lyfið hefur verið notað í nokkra daga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfjanna. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsing- um um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfin á www. serlyfjaskra.is. NAS.L.A.2021.0002.01. verkunin er staðbundin en ekki altæk eins og töflur til inntöku.“ Alvogen býður upp á breitt úrval af lyfjum í lausasölu við ofnæmiskvefi. Einstaklings- bundið getur verið hvaða meðferð gefur bestan ávinning. n 2 kynningarblað A L LT 14. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.