Fréttablaðið - 29.06.2021, Side 4
K Y N N U M N ÝJ A N J E E P®
A L V Ö R U J E P P I – A L V Ö R U FJ Ó R H J Ó L A D R I F
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
VERÐ HLAÐINN AUKABÚNAÐI
6.399.000 KR.*
N Á N A R I U P P LÝ S I N G A R Á J E E P. I S
• STÆRRI VÉL 240 HÖ
• 360° MYNDAVÉL
• LÁGT DRIF
• LEÐURSÆTI OG MÆLABORÐ
• SNERTILAUS OPNUN AFTURHLERA
• FJARLÆGÐARSTILLTUR HRAÐASTILLIR
N Ý H Ö N N U N
N Ý I N N R É T T I N G
N Ý TÆ K N I
N Ý R Ö R Y G G I S B Ú N A Ð U R
* S V A R T U R L I M I T E D. A Ð R I R L I T I R 6 . 5 6 2 . 0 0 0
PLUG-IN HYBRIDÁRA ÁBYRGÐ 8 ÁRA ÁBYRGÐ Á DRIFRAFHLÖÐU
Lýtaaðgerðum hefur fjölgað á heimsvísu í kjölfar kórónuveirufaraldursins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Samfélags- og efnahagskrísur
leiða gjarnan af sér aukna
eftirspurn eftir lýtalækn-
ingum. Lýtalæknar á Íslandi
segjast hafa haft nóg að gera í
faraldrinum.
urduryrr@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Mikil aðsókn
hefur verið í lýtaaðgerðir þrátt fyrir
lokanir og takmarkanir vegna kór-
ónuveirufaraldursins. „Það var mjög
mikið að gera,“ segir Hannes Sigur-
jónsson, lýtalæknir hjá DeaMedica.
Lýtalæknastofur neyddust flestar
til að loka í um átta vikur árið 2020
vegna tilmæla frá landlækni. Þrátt
fyrir það fundu lýtalæknar fyrir
mikilli eftirspurn.
„Við fundum alveg klárlega fyrir
því. Lýtalæknar, og líklega aðrir
læknar, hafa fundið fyrir að fólk
fer að líta meira inn á við í svona
krísum og vill gera eitthvað fyrir
sjálft sig,“ segir Hannes.
Kórónuveiran bjó til einstakar
aðstæður í samfélaginu. Fólk ferð-
aðist minna og hafði sumt meiri
pening og tíma vegna þessa. Margt
fólk vann heima eða minna en
venjulega og hafði þá tækifæri til
að jafna sig eftir aðgerðir án mikilla
vandkvæða.
„Svo má nefna Zoom-faktorinn,“
segir Hannes. „Allir voru að horfa á
sig á fundum alla daga, allan daginn
og fóru að sjá eitthvað sem það hafði
kannski ekki veitt jafn mikla athygli
áður.“
Hannes nefnir að hluti fólks
frestaði stórum aðgerðum þegar
faraldurinn stóð sem hæst vegna
hræðslu við að veikjast stuttu eftir
aðgerð. Guðmundur Már Stefáns-
son, lýtalæknir hjá Domus Medica,
segir sömuleiðis að dregið hafi úr
stærri aðgerðum vegna kostnaðar,
þó minna en búist var við.
„Það hefur verið alveg fínt að gera
en fólk hefur frestað að fara í stærstu
og dýrustu aðgerðirnar, væntan-
lega út af efnahagsástandinu,“ segir
Guðmundur. Hann segir aðsóknina
vera betri en búist var við en þó ekki
jafn mikla og fyrir faraldurinn. „Það
hefur verið hægur stígandi í þessu
undanfarnar vikur,“ segir hann.
Erlendir miðlar hafa greint frá
aukningu í geiranum í kjölfar
faraldursins. Samkvæmt The Eco-
nomist má merkja 10 prósenta
aukningu á lýtaaðgerðum í Banda-
ríkjunum og um 20 prósent í Frakk-
landi.
Aðsókn í lýtalækningar eykst
á heimsvísu í kjölfar krísa, sam-
kvæmt formanni ítalska lýtalækna-
sambandsins. Eftir hryðjuverka-
árásina í New York 11. september
2001 hafi aðsókn aukist um 6 pró-
sent og 10 prósent eftir efnahags-
kreppuna 2007–2008.
Bankahrunið virðist hafa haft
sambærileg áhrif á aðsókn í lýtaað-
gerðir á Íslandi en samkvæmt tölum
Hagstofunnar jukust komur til lýta-
lækna frá tæpum 7.000 árið 2007 í
9.887 árið 2008 og 11.647 árið 2009.
Hannes segir kollega sína hafa
nefnt aukna aðsókn eftir hrunið.
„Það er eins og hægist á öllu í svona
krísum og fólk fer að hugsa meira
um sjálft sig,“ segir hann.
Árið 2012 fækkar komum aftur í
rúmar 7.000 og eru nokkuð stöðugar
til ársins 2017. Ekki eru til tölur eftir
árið 2017 en samkvæmt upplýs-
ingum frá Landlækni hefur gengið
erfiðlega að safna tölum frá sjálf-
stætt starfandi lýtaskurðlæknum
um heildarfjölda aðgerða. ■
Lýtaaðgerðir vinsælar í faraldrinum
Allir voru að horfa á
sjálfa sig á fundum alla
daga
Hannes Sigur-
jónsson lýta-
læknir.
adalheidur@frettabladid.is
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur fallist
á að taka til meðferðar mál manns
sem dæmdur var til fjögurra ára
fangelsisvistar í Landsrétti í febrúar
fyrir að nauðga konu og fyrir að
villa á sér sér heimildir í samskipt-
um við hana í tæpt ár, kúga hana til
kyn maka með öðrum mönnum og
til að senda sér kyn ferðis legt mynd-
efni.
Í áfrýjunarbeiðni mannsins til
Hæstaréttar er meðal annars byggt
á því að Landsrétti hafi borið að
vísa málinu frá héraðsdómi þar
sem málið hafi ekki verið nægilega
rannsakað af lögreglu og ákæra
í málinu hafi ekki staðist kröfur
um skýrleika. Þá byggði maðurinn
einnig á því að Landsréttur hafi
brotið gegn meginreglu um milli-
liðalausa sönnunarfærslu með því
að hafna kröfu um að teknar yrðu
skýrslur af ákærða, brotaþola og
öðrum vitnum fyrir Landsrétti.
Hæstiréttur telur úrlausn um
þessi atriði hafa verulega almenna
þýðingu og féllst því á áfrýjunar-
beiðnina. ■
Kúgunarmál tekið
fyrir í Hæstarétti
lovisa@frettabladid.is
TJÓN Hreinsunarstarf stendur nú
yfir í Háteigskirkju eftir að leki upp-
götvaðist þar um miðjan dag í gær.
Líklegast er að upptök lekans megi
rekja til kyndibúnaðar kirkjunnar.
„Það lak stíft úr honum í lík lega
hér um bil sólar hring,“ segir Krist-
ján Jón Ey steins son kirkju haldari í
sam tali við Frétta blaðið.
„Það er verið að þurrka kirkjuna
að innan og blásarar í gangi sem
verða í gangi í nótt og á morgun,“
segir Kristján Jón og gerir ráð fyrir
að hreinsunarstarfið standi út
vikuna. Mesta tjónið hafi orðið í
kjallaranum þar sem lekinn var
mestur. ■
Hreinsunarstarf
standi út vikuna
Lekinn uppgötvaðist í gær.
adalheidur@frettabladid.is
SAMFÉLAG Lögregluembættin eru
nú að leggja lokahönd á nýjar reglur
sem gilda eiga um móttöku gjafa og
ívilnana til starfsfólks lögreglu.
Í skýrslu Greco, samtaka ríkja
gegn spillingu, sem birt var um
Ísland í fyrra var kallað eftir endur-
skoðun á reglum um þetta efni.
Helgi Valberg Jensson, aðallög-
fræðingur lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu, segir að reglurnar
hafi verið orðnar úreldar og tæki-
færið gripið þegar skýrsla Greco
kom. Reglurnar eiga að setja starfs-
fólki lögreglunnar skýr viðmið um
móttöku gjafa, svo sem afslátta
sem fyrirtæki bjóði gjarnan starfs-
mannahópum, en ívilnanir geti
birst í margs konar formi.
Aðspurður um Félag íslenskra
f ík nief nalög reglumanna, sem
verið hefur í umræðunni fyrir að
afla styrkja í samfélaginu og aug-
lýsa gegn neyslu kannabisefna, segir
Helgi að öllum sé frjálst að stofna
með sér félög í lögmætum tilgangi.
Félagið sé ekki á vegum lögreglunn-
ar og lögregluembættin stjórni því
ekki að einstaka starfsmenn ákveði
að stofna með sér félög.
„Hins vegar þurfa starfsmenn lög-
reglu, eins og allir opinberir starfs-
menn, að fara að siðareglum og
ákvæðum laga sem gilda um góða
starfshætti og hlutleysi. „Menn
mega ekki gera neitt sem getur varp-
að rýrð á starf þeirra eða skaðað það
traust sem opinberir starfsmenn
þurfa að njóta. Það eru viðmiðin,“
segir Helgi. ■
Nýjar reglur um gjafir til lögreglu í lokavinnslu
Menn mega ekki gera
neitt sem varpað getur
rýrð á starf þeirra
Helgi Valberg Jensson, aðal-
lögfræðingur hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu.
4 Fréttir 29. júní 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ