Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.06.2021, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 29.06.2021, Qupperneq 6
kristinnhaukur@frettabladid.is LANDBÚNAÐUR Sveitarstjórnir Dala- byggðar, Strandabyggðar, Húna- þings vestra og Reykhólahrepps skora á afurðastöðvar að gefa út verðskrá fyrir komandi sláturtíð um mánaðamót og þá næstu ekki seinna en um áramót. Ófyrirsjáanleikinn sé mikill og í fyrra hafi bændur sent fé sitt í slátrun án þess að verðið lægi fyrir. „Sauðfjárrækt er fyrirtækjarekst- ur. Það myndi enginn sætta sig við að gera fjárhagsáætlun en fá verðið eftir að þú leggur vörurnar inn,“ segir Eyjólfur Ingvi Bjarnason, odd- viti Dalabyggðar. Vanalega hafa verðskrárnar legið fyrir í kringum verslunarmanna- helgina. Yfirleitt ríða stóru afurða- stöðvarnar á vaðið, SS, KS og Norð- lenska, en minni stöðvar eins og Fjallalamb og Sláturhús Vopnfirð- inga fylgja. Engin stöð hafði skilað verði þegar sláturtíð hófst árið 2020 og samkvæmt Eyjólfi vissu bændur í raun ekki hvort þeir fengju greitt fyrir gripina. „Það eiga allir að geta gefið út ein- hverjar vísbendingar,“ segir Eyjólfur um það hvort það sé raunhæft að afurðastöðvarnar gefi út verð með níu mánaða fyrirvara. Bændur verði að geta séð lengra fram í tímann. „Ég kaupi áburð í vor til að afla fóðurs fyrir kindurnar næsta vetur til þess að leggja grunninn að framleiðslu fyrir haustið 2022.“ Sveitarfélögin fjögur eru öll mjög dreifbýl og reiða sig á sauðfjárrækt. Þar búa nú rúmlega 2.500 manns og hefur fækkað um 120 á 15 árum. Eitt stærsta áfallið var verðhrun kinda- kjöts um rúmlega þriðjung árin 2016 og 2017. Verðið hefur síðan hækkað en hefur enn ekki náð 600 krónum á kílóið líkt og það var fyrir verð- hrunið. Hefði kindakjöt fylgt almennri verðþróun væri verðið nú 710 krón- ur á kílóið. Það var hins vegar 504 krónur árið 2020 og verður 535 í ár miðað við 6 prósenta hækkun sem KS hefur þegar boðað. „Jarðir seljast ekki og bændur hugsa í auknum mæli um að draga saman eða finna sér eitthvað annað að gera,“ segir Eyjólfur Ingvi. n Vilja verðskrá fyrir næstu sláturtíð Í fyrra lá verð ekki fyrir þegar slátur- tíðin hófst. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Með breytingu á aðalskipu- lagi á að stíga skref í átt að lausn á deilu landeigenda í Húsafelli vegna legsteinasafns sem dæmt var til niðurrifs. Leyfa á breytta starfsemi og aukið byggingarmagn. Enn hefur þó ekki náðst lending með útfærslu á deiliskipulagi. gar@frettabladid.is DÓMSMÁL  „Tilgangurinn er sá að reyna að finna leiðir svo allir geti búið í sátt og samlyndi og sætt sig við starfsemi hvert annars á land- inu,“ segir Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar, um nýja tillögu um breytingu á aðal- skipulagi í Húsafelli. Á Húsafellstorfunni hafa verið miklar deilur sem náðu hámarki fyrir Héraðsdómi Vesturlands, sem dæmdi að legsteinasafn sem listamaðurinn Páll Guðmundsson í Bæjargili  hafði steypt þar upp væri  grundvallað á ógildu deili- skipulagi og að því bæri að fjarlægja það. Legsteinasafnið stendur enn hálfbyggt því niðurrifinu var frest- að á meðan deilendur reyna að ná sátt um skipan mála þar á reitnum. „Þetta felur í sér að það er hægt að hafa annan rekstur heldur en landbúnað á jörðinni,“ segir Þórdís um megininntak tillögu að  nýja aðalskipulaginu sem byggðaráð Borgarbyggðar hefur samþykkt að auglýsa  og nær til svæðisins sunnan Hálsasveitarvegar, til suðurs upp í brekkur Útfjalls og austur fyrir bæjartorfuna hjá Húsafellsbænum. Svæðinu er skipt upp í þrjá minni reiti sem tilheyra þremur aðskildum landeigendum á Húsa- fellstorfunni. Meðal annars er gert ráð fyrir sumarhúsabyggð og íbúð- arhúsum  og  menningarstarfsemi og þjónustu eins og kapellu, kirkju- garði, gisti- og veitingarekstri, safni og safnasvæði, vinnustofu og ferða- þjónustu og starfsemi tengd listum. Einnig er gert ráð fyrir ferðaþjón- ustu, verslun og öðrum byggingum fyrir sjálfbæra, vistvæna og lífræna ræktun. Gera á nýjar vegtengingar. „Skilmálar endurspegla framtíðar- sýn sem komið hefur fram í samráði við landeigendur,“ segir í greinar- gerð þar sem aðalskipulagstillagan er kynnt. „Tillagan gerir ráð fyrir að heimiluð verði íbúðarhús á svæð- inu. Það er til að koma til móts við vaxandi þörf fyrir heilsársbúsetu á svæðinu en í Húsafelli er rekin umtalsverð ferðaþjónusta. Skortur er á húsnæði fyrir fólk sem þar starfar á svæðinu allt árið og er stefnunni ætlað að koma til móts við þá þörf.“ Tekið er fram að atlaga hafi verið gerð að því að vinna deiliskipu- lag samhliða aðalskipulaginu. „Sú vinna leiddi ekki til þess að formleg tillaga yrði lögð fram að sinni en vonandi verður af því síðar,“ segir í greinargerðinni. Þórdís sveitarstjóri segir að áfram verði unnið að málinu. Sjálfir hafi deilendurnir rætt sín á milii. „Það er verið að reyna að finna lausn sem allir gætu sætt sig við,“ segir sveitarstjórinn. n Leyfi fyrir húsum og breyttum rekstri verði til að sætta deilendur í Húsafelli Legsteinasafn Páls Guðmundssonar, gamli bærinn þar fyrir aftan og kirkjan í Húsafelli til hægri. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR Það er verið að reyna að finna lausn sem allir gætu sætt sig við Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar. arnartomas@frettabladid.is BRETLAND Bretar hafa ákveðið að banna auglýsingar á óhollum mat í sjónvarpi á daginn og á vefnum. Reglurnar taka gildi í lok næsta árs. Auglýsingar á mat sem inni- heldur mikið af fitu, salti eða sykri verða bannaðar fyrir klukkan 21 á kvöldin. Þá verða auglýsingarnar ekki leyfðar í stöðluðum auglýs- ingaplássum á vefnum, þótt heima- síður og samfélagsmiðlasíður fram- leiðendanna verði áfram leyfilegar. Reglurnar eru hluti af átaki gegn offitu og til að stuðla að hollara mataræði. Kannanir þar í landi sýna að um eitt af hverjum þremur börnum útskrifast úr grunnskóla í yfirþyngd.n Banna auglýsingar á óhollum mat thorgrimur@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR Ólympíuleikarnir í Japan eru á næsta leiti og næsta vika mun að öllum líkindum leiða í ljós hverjir Ólympíufarar Íslands verða í ár. „Það er margt að gerast í þess- ari viku,“ sagði Andri Stefánsson, sviðsstjóri afreks- og ólympíusviðs ÍSÍ. „Þann 29. júní eiga alþjóðasam- böndin að fara yfir lista þeirra sem hafa náð tilsettum lágmarksár- angri og fara síðan að gefa þá út. Anton Sveinn McKee náði lág- marksárangri í sundi fyrir löngu en verður samt ekki formlega staðfest- ur fyrr en Alþjóðasundsambandið gefur út sinn lista þann 1. júlí. Sama gildir um Ásgeir Sigurgeirsson skotkappa sem bíður staðfestingar Alþjóðaskotsambandsins.“ Andri segir að þangað til í dag sé enn hægt að ná lágmarksárangri til að komast á lista. Nefnir hann frjáls- íþróttafólkið Guðna Val Guðnason og Guðbjörgu Jónu Bjarnadóttur meðal annarra sem kunni að hljóta keppnisrétt. Jafnframt muni Íslendingar eiga rétt á kvóta í sundi kvenna þar sem einn karlmaður sé þegar búinn að ná tilsettu lágmarki í þeirri keppnisgrein. „Við teljum líklegt að Snæfríður Sól Jórunnar- dóttir, sem er búin að ná Ólympíu- viðmiði, nái inn í leikana, en það bíður staðfestingar Alþjóðasund- sambandsins.“ Ekki hefur Andri áhyggjur af heilsuumhverfi Ólympíufara í ljósi veirufaraldursins sem enn geisar. „Ólympíuþorpin eru vafalaust öruggasti staður heims hverju sinni. Við erum með nánast allar leyni- þjónustur heims til að halda öryggi og færustu lækna heims. Íslendingar hafa auk þess sýnt að þeir kunna að fylgja sóttvarnarreglum, þannig að ég hef engar áhyggjur af þeim.“ n Afdrif flestra sem vilja til Japan ráðast í vikunni Sex létust í umferðinni hér árið 2019. kristinnpall@frettabladid.is UMFERÐ Samkvæmt nýrri tölfræði Eurostat, tölfræðiveitu Evrópusam- bandsins, voru hlutfallslega fæst dauðaslys í Evrópu á Íslandi miðað við milljón íbúa árið 2019. Alls lét- ust sex manns í umferðarslysum árið 2019. Veruleg fækkun banaslysa varð í Evrópu á tíu ára tímabili en alls létust 22.756 í umferðarslysum árið 2019. Tæplega helmingur þeirra var í farþegabíl og um fimmtungur gang- andi vegfarendur. Árið 2009 létust tæplega 33 þúsund í umferðar- slysum í Evrópu og hefur banaslys- um sem rekja má til umferðar því fækkað um 31 prósent á tíu árum. Ef miðað er við milljón íbúa reikn- ast sem svo að sautján látist á ári á Íslandi en næst koma Noregur með tuttugu og Sviss og Svíþjóð með 22 dauðsföll. Meðaltalið í Evrópusam- bandinu er 51 dauðsfall á milljón íbúa. Flest banaslys á hverja milljón íbúa verða í Rúmeníu ,96 dauðsföll og Rúmenía með níutíu.. n Fæst banaslys í Evrópu á Íslandi Sundkappinn Anton Sveinn McKee náði lágmarksárangri til að keppa á Ólympíuleikum fyrir nokkru. 6 Fréttir 29. júní 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.