Fréttablaðið - 29.06.2021, Síða 10
Walter og Boehly
greiddu níutíu prósent
af því sem hefði kostað
þá að kaupa annað
félag í NBA-deildinni
fyrir rúman fjórðungs-
hlut í Lakers.
Anthony Davis og LeBron James prýddir meistarahringum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
10 Íþróttir 29. júní 2021 ÞRIÐJUDAGUR
kristinnpall@frettabladid.is
NBA Los Angeles Lakers, sigursæl-
asta lið NBA-deildarinnar í körfu-
bolta ásamt Boston Celtics, var verð-
metið á 5,5 milljarða dala, eða um
681 milljarð íslenskra króna, þegar
eigendur Los Angeles Dodgers, Mark
Walter og Todd Boehly, keyptu 27%
hlut í félaginu um helgina. Hlutur-
inn var áður í eigu Philip Anschutz,
eiganda AEG, sem á Staples Center
höllina, heimavöll Lakers sem og lið
Los Angeles Kings í NHL-deildinni
í íshokkí og Los Angelex Galaxy í
MLS-deildinni í fótbolta.
Lakers olli vonbrigðum í úrslita-
keppni NBA-deildarinnar á dögun-
um þegar liðið féll út í fyrstu umferð
úrslitakeppninnar en á síðasta ári
tókst Lakers að jafna við erkifjend-
ur sína í Boston sem sigursælasta
lið deildarkeppninnar frá upphafi
með sautjánda meistaratitli félags-
ins. Félagið hefur verið afar sigur-
sælt undanfarna áratugi og unnið
sex meistaratitla frá aldamótum. Þá
hafa stærstu stjörnur deildarinnar
iðulega leikið í búningi Lakers en
á þessum tuttugu árum hafa Sha-
quille O'Neal, Kobe Bryant, LeBron
James og Anthony Davis allir átt
hlut í því að koma með meistaratitil
til Los Angeles.
Óhætt er að segja að Walter og
Boehly, sem greiddu samkvæmt
fjármálatímaritinu Forbes um 1,35
milljarða dala fyrir 27 prósent hlut
í Lakers, hafi greitt rausnarlega fyrir
hlutinn en fyrr á þessu ári var mark-
aðsvirði Lakers að mati Forbes um
4,6 milljarðar dala. Miðað við verðið
sem þeir greiða fyrir hlut sinn er
Lakers næstverðmætasta félag
heims á eftir Dallas Cowboys sem
leikur í NFL-deildinni en Cowboys
er verðmetið á 5,7 milljarða dala.
Um leið er Lakers verðmætasta félag
í NBA-deildinni.
Til samanburðar var félagið Utah
Jazz, sem var með besta árangur-
inn í Vesturdeildinni á nýafstöðnu
tímabili, keypt á 1,66 milljarða dala
síðasta haust og sala á Minnesota
Timberwolves stendur yfir þessa
dagana fyrir 1,5 milljarða dala.
Stærsti hluthafi Lakers, Buss-fjöl-
skyldan, á enn tvo þriðju eignar-
hluts í þessu sögufræga félagi en
eignarhluti Anschutz sem skiptir nú
höndum var sá næststærsti. Um leið
er umræddur eignarhluti með rétt
til höfnunar á sölu á hlutum í félag-
inu. Síðustu sjö prósentin í Lakers
eru í eigu Patrick Soon-Shiong
og Edward Roski. n
ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 29. júní 2021 ÞRIÐJUDAGUR
Los Angeles Lakers verðmetið á 681 milljarð króna
kristinnpall@frettabladid.is
TENNIS Tennisstjarnan Serena Willi-
ams staðfesti á blaðamannafundi
fyrir Wimbledon-mótið í tennis að
hún myndi ekki þiggja boð um að
keppa á Ólympíuleikunum ef það
stæði til boða í ár. Serena er ekki
nægilega ofarlega á heimslistanum
til þess að komast beint inn en hún
hefur nú staðfest að hún muni ekki
gera atlögu að fimmtu gullverð-
launum á Ólympíuleikunum.
Serena, sem hefur unnið 23. risa-
mót á ferlinum og fern gullverðlaun
á Ólympíuleikunum, hafði orð á
því að hún væri ekki á listanum yfir
Ólympíuþátttakendur og að hún
ætti það heldur ekki skilið. Hin fer-
tuga Serena vann til gullverðlauna í
einliðaleik árið 2012 og hefur unnið
þrisvar til gullverðlauna í tvíliðaleik
með systur sinni, Venus Williams.
Það eru því tvær af stærstu stjörn-
um tennisíþróttarinnar búnar að
tilkynna að þau komi ekki til með
að keppa í Tókýó, en stutt er síðan
Rafael Nadal sagði að hann myndi
ekki keppa á Ólympíuleikunum til
þess að gefa líkamanum hvíld. n
Serena mun ekki
keppa í Tókýó
Serena er af mörgum talin ein besta
íþróttakona allra tíma.
Í fyrsta sinn í langan tíma
virðist Lewis Hamilton ekki
vera í sérflokki í Formúlu 1
þetta árið. Hinn ungi Max
Verstappen hefur byrjað
tímabilið með látum og
stælum og er að gera atlögu að
krúnunni.
kristinnpall@frettabladid.is
FORMÚLA 1 „Ég hallast að því að það
sé aðeins of snemmt að hægt sé að
tala um lyklaskipti í Formúlunni
en þau gætu átt sér stað á þessu
ári. Fyrir vikið er ljóst að þetta
verður eitt mest spennandi tímabil
í Formúlunni í manna minnum,“
segir Kristján Einar Kristjánsson,
lýsandi Formúlunnar hjá Viaplay
og hlaðvarpsstjórnandi Pittsins,
hlaðvarpsþáttar um Formúlu 1,
aðspurður um hvort komið væri
að valdaskiptum í heimi fremstu
akstursíþróttamanna heims.
Í fyrsta sinn í langan tíma virðist
Lewis Hamilton, sigursælasti öku-
þór allra tíma ásamt Michael Schu-
macher og heimsmeistari undan-
farinna fjögurra ára, sem ekur
fyrir Mercedes, ekki vera sér á báti
í hverri keppni. Hefur Bretinn ekki
unnið í síðustu fjórum keppnum en
hann vantar tvo sigra til að verða
fyrsti ökuþórinn til að bera sigur
úr býtum í hundrað kappökstrum
í Formúlu 1.
„Næsta keppni fer fram strax um
helgina, á sömu braut, og þar verður
spennandi að sjá hver viðbrögðin
verða eftir þennan örugga sigur Ver-
stappen um helgina. Að mörgu leyti
var búið að fela veikleika Mercedes
og Hamilton undanfarin ár, ein mis-
tök kostuðu þá yfirleitt ekkert en nú
eru þeir undir pressu sem þeir hafa
ekki fundið fyrir lengi,“ segir Krist-
ján.
Þegar þriðjungur er búinn af
tímabilinu er Verstappen með
átján stiga forskot og hefur unnið
fjórar keppnir af átta. Verstappen
hefur þrisvar lent í öðru sæti en
eina skiptið sem hann komst ekki á
verðlaunapall brást bíllinn honum í
Azerbaídsjan. Hann hefur því þegar
unnið fleiri keppnir á þessu tímabili
en á nokkru af sjö tímabilunum þar
áður og tímabilið er ekki hálfnað.
„Það sem gerir þetta tímabil svo
magnað er að fá að sjá þennan unga
og óhrædda ökuþór gera atlögu að
krúnunni hans Hamilton. Þetta er
ekki dæmi um að einstaklingur sem
hefur haft gríðarlega yfirburði, eins
og Hamilton hefur haft undanfarin
ár, sé að hætta og þá taki einhver
nýr við kef linu. Vettel náði ekki
sömu hæðum og Hamilton áður en
einokunartímabil Mercedes tók við
en nú er annar ungur ökuþór að gera
atlögu að krúnunni.“
Belginn Verstappen fékk við-
vörun frá yfirvöldum fyrir að hægja
viljandi á sér og spóla yfir ráslínuna
í lok kappakstursins í Austurríki en
hann hefur svægi sem jaðrar oft við
hroka.
„Hann er fyrst og fremst stór-
kostlegur ökumaður og gerir hluti
sem aðrir virðast ekki geta. Það er
svægi yfir honum og hann hefur
alltaf verið töffari sem fólk upp-
lifir stundum sem hroka en honum
hefur tekist að standa undir því,“
segir Kristján léttur, aðspurður út
í hegðun Verstappen í lokin um
helgina.
„Hann er að stíga upp úr því
að teljast efnilegur en hefur um
leið sýnt það undanfarin ár hvað
í honum býr en bíllinn sem hann
hefur haft hefur ekki staðist snún-
inginn. Þessi samvinna Red Bull og
Honda eftir að Red Bull skipti yfir í
vél frá Honda virðist hafa verið hár-
rétt skref.“
Kristján segir að það sé að vekja
aukinn áhuga að sjá aðra gera atlögu
að meistaratitlinum eftir einokun
Mercedes og Hamilton. Hamil-
ton hefur unnið sex af síðustu sjö
heimsmeistaratitlum en aðeins
Nico Rosberg, sem keppti þá fyrir
hönd Mercedes, hefur tekist að
stöðva sigurgöngu Hamilton frá
árinu 2014.
„Við finnum fyrir mikilli aukn-
ingu í áhuganum, bæði í útsend-
ingum og í hlustendatölum á Pitt-
inum, hlaðvarpinu um Formúlu 1.
Það er nefnilega ekki bara meistara-
baráttan sem er spennandi, það eru
sofandi risar í Ferrari og McLaren
með unga og efnilega ökuþóra að
berjast um þriðja til fjórða sætið.“ n
Verstappen stendur undir svæginu
Verstappen hægði á sér og spólaði yfir ráslínuna fyrir framan tækniteymi Red Bull á heimavelli. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Það sem gerir þetta
tímabil svo magnað er
að fá að sjá þennan
unga og óhrædda
ökuþór gera atlögu að
krúnunni hans Hamil-
ton
Kristján Einar Kristjánsson,
lýsandi Formúlu 1 og hlaðvarps-
stjórnandi Pittsins
kristinnpall@frettabladid.is
HNEFALEIK AR Nokkrum dögum
eftir að fyrsti Ólympíufarinn
greindist smitaður af Covid-19 við
komuna til Tókýó greindist annar
meðlimur sömu sveitar, hnefaleika-
sveitar Úganda, smitaður. Sá ein-
staklingur var í æfingabúðum við
greiningu og er kominn í sóttkví.
Forsætisráðherra Japans, Yos-
hihide Suga, hefur lofað hertum
aðgerðum við landamærin. n
Annar smitaður
Ólympíufari