Fréttablaðið - 29.06.2021, Qupperneq 25
Það er alltaf gaman að sækja
Hornafjörðinn heim enda
er svæðið þekkt fyrir gífur-
lega fegurð, einstaka náttúru
og jöklana sem gnæfa yfir
víðast hvar. Sveitarfélagið
Hornafjörður nær yfir um
6.280 ferkílómetra svæði frá
Skeiðarársandi í vestri að
Þvottárskriðum í austri.
Ein helsta sérstaða Sveitarfélags-
ins Hornafjarðar eru jöklarnir
en svæðið er að stórum hluta
staðsett innan Vatnajökulsþjóð-
garðs. „Í austri er litadýrðin
gífurleg í fjöllum og vestan megin
eru jöklarnir og hinir háu tindar,
eins og Hvannadalshnjúkur, fyrir
augum alla daga,“ segir Matthildur
Ásmundardóttir, bæjarstjóri í
Hornafirði.
„Þróunin í atvinnumennsku
á svæðinu er sú að jöklaferða-
mennskan og menntun í kringum
hana er sífellt að aukast. Í raun má
segja að það hafi orðið sprenging
í þessum iðnaði sem er orðin
ein mikilvægasta atvinnugrein
svæðisins ásamt sjávarútveginum.
Þar á eftir kemur landbúnaðurinn.
Aukninguna má beintengja við
stofnun þjóðgarðsins sem og
aukinn áhuga ferðamanna á
jöklum almennt. Þá er krafan um
gæði orðin mun meiri í jöklaferða-
mennskunni en var áður.“
Náttúruperla Íslands
Hornafjörður er ríkt svæði af
fallegum náttúruperlum sem
gaman er að skoða. „Stærstu ferða-
mannaseglarnir eru Skaftafell og
Jökulsárlón og undanfarið hefur
Vestrahorn sótt í sig veðrið sem
einn af vinsælustu ferðamanna-
stöðum svæðisins. Hér er frábært
aðgengi að jöklum og býður fjöldi
fyrirtækja upp á jöklaferðir eins
og göngur, hellaferðir, sleðaferðir,
jeppaferðir eða annað. Þá eru
siglingar og kajakferðir á Jökulsár-
lóni og kajakferðir á Heinabergs-
lóni. Einnig er boðið upp á Ingólfs-
höfðaferðir þar sem þátttakendur
læra um sögu svæðisins, kynnast
fuglalífinu og náttúrunni á
ógleymanlegan máta.
Lónsöræfin hafa löngum verið
vinsælt göngusvæði meðal Íslend-
inga vegna gífurlegrar náttúrufeg-
urðar. Margar spennandi göngu-
leiðir eru í sveitarfélaginu, svo sem
í Skaftafelli, á Heinabergssvæðinu,
í Hoffelli og milli Jökulsárlóns og
Fjallsárlóns. Unnið er að því að
leggja nýjar og spennandi göngu-
leiðir. Göngu- og hjólreiðaleið frá
Svínafelli yfir í Skaftafell verður til
dæmis lögð í sumar og haust.“
Einn fallegasti golfvöllur lands-
ins, Silfurnesvöllur, er staðsettur á
Höfn í Hornafirði. „Þessi glæsilegi
níu holu golfvöllur er sívinsæll hjá
heimamönnum og aðkomufólki
enda dásamlegt útsýni yfir fjörð-
inn og til jökla.“ Við strandlengj-
una á Höfn er göngustígur með
frábæru útsýni til jökla. Við stíginn
er líkan af sólkerfinu í réttum
stærðar- og fjarlægðarhlutföllum.
„Það tekur tæpa klukkustund að
ganga frá Sólinni að Neptúnusi
við Silfurnesvöll. Svo má ekki
gleyma sundlauginni sem er vel
sótt af heimamönnum og auðvitað
ferðamönnum, enda ein sú besta á
landinu, vil ég meina.“
Líklegast eru hvergi jafnmargir
gistimöguleikar og í sveitarfélag-
inu Hornafirði ef miðað er við
stærð svæðisins. „Í sveitarfélaginu
öllu eru 2.500 gistirými. Þá má
nefna hótelgistingu, gistiheimili,
bændagistingu og fleira. Svo eru
fyrsta flokks tjaldstæði meðal
annars á Höfn, í Skaftafelli, Svína-
felli og í Stafafelli.“
Búseta til fyrirmyndar
Að sögn Matthildar er afar gott að
búa í Sveitarfélaginu Hornafirði.
„Sveitarfélagið er stórt og býður
upp á fjölbreytta búsetumögu-
leika, allt frá Öræfum austur í Lón.
Í sveitarfélaginu búa um 2.400
manns, og býr stærstur hluti íbúa,
eða um 1.800 manns, á Höfn. Hús-
næðisverð hefur farið hækkandi
undanfarin ár sem sýnir auknar
vinsældir svæðisins. Fyrir sölu-
verð á þokkalegri blokkaríbúð í
Reykjavík má fá gott einbýlishús
á Höfn. Þá hefur orðið töluverð
fjölgun íbúa í Öræfasveit. Þar hafa
risið stór hótel sem taka á móti
miklum fjölda ferðamanna Skafta-
fells, Jökulsárlóns og þar í kring og
krefjast fjölda starfsmanna.“
Þrátt fyrir stærð svæðisins eru
vegalengdir stuttar á milli staða í
þéttbýlinu. Innviðir eru að sama
skapi til fyrirmyndar. „Hér starfa
öflugir skólar og sterkt íþróttastarf
og hentar búseta á svæðinu fjöl-
skyldufólki vel. Skipulag íþrótta-
starfs og tómstunda er þannig að
yngstu börnin eru búin í skóla og
íþróttum fyrir klukkan fimm og
býðst akstur heim í sveitir.“
Fallegur bær
Höfn í Hornafirði er stærsti
þéttbýliskjarni svæðisins og
er með fjölbreytta þjónustu,
menningarlíf og f leira. „Bærinn
Hornafjörður - Náttúrufegurð í hverju horni
Fjallsárlón dregur að fjölda ferðamanna og göngugarpa á ári hverju. MYNDIR/AÐSENDAR
Hvannagil í
Stafafellsfjöll-
um þykir ein-
stakur staður og
litadýrðin þar er
mikilfengleg.
Silfurnesvöllur er sívinsæll enda er útsýnið engu líkt.
Matthildur Ásmundardóttir, bæjar-
stjóri í Hornafirði.
RÍKI VATNAJÖKULS
BÝÐUR HEIM Í SUMAR
VISITVATNAJOKULL.IS
er þekktur fyrir að vera einn fal-
legasti bær landsins, en við höfum
fengið mikið hrós fyrir það hversu
heillandi er að keyra inn í bæinn.
Mikill metnaður er lagður í að
halda honum hreinum og snyrti-
legum og náttúran í kring spillir
ekki fyrir enda stórbrotin og
útsýnið frá bænum eftir því.
Í sveitarfélaginu er eitt mesta
og fjölbreyttasta úrval veitinga-
staða miðað við höfðatölu og
eru gæðin á heimsmælikvarða.
Svæðið er þekktast fyrir fiski-
miðin og hér fæst einn ferskasti
fiskur á landinu. Síðustu ár hefur
veiðst minna af humri en oft áður
en hann er enn á boðstólum á
mörgum stöðum enda alltaf jafn
ljúffengur.“
Blómlegt menningarlíf
Það er alltaf nóg að gera í Horna-
firði. „Hér er öflugur tónskóli
og mikið félagsstarf í kringum
íþróttir, tónlist og ýmsa list-
sköpun. Á Höfn er tónleika- og
skemmtistaður og haldnir eru
fastir viðburðir eins og þorrablót,
sjómannaball og ýmislegt sem er
tengt menningu staðarins.
Listasafn Svavars Guðnasonar
heldur metnaðarfulla sýningar-
dagskrá allt árið og hefur fengið
mjög jákvæða umfjöllun undan-
farið. Við vinnum að því að koma
á koppinn f leiri sýningum og
söfnum. Þá er unnið í endur-
bótum á Miklagarði, gömlu húsi
við höfnina sem mun þjóna því
hlutverki.
Að sögn Matthildar var ákveðið
að breyta út af sporinu varðandi
Humarhátíðina en henni verður
dreift yfir allt sumarið og fram á
haust. Þá er stefnt að því að halda
gott slútt í september.
Í allt sumar verða tónleikar,
skemmtilegir menningarviðburð-
ir og ýmsar uppákomur í sveitar-
félaginu. „Þar má nefna Skeiðarár-
hlaupið 10. júlí í Öræfum. Leiðin
er 27,5 km löng og þykir sérstak-
lega falleg. Svo verður nýtt utan-
vegahlaup í Lóni haldið helgina
eftir verslunarmannahelgi sem
nefnist Austur Ultra. Þá er hlaupin
50 km leið, 20 eða 10 km úr Lóns-
öræfum að Stafafelli.“
Nánari upplýsingar um afþrey-
ingu í Sveitarfélaginu Hornafirði
má finna á visitvatnajokull.is og
south.is.
ALLT kynningarblað 5ÞRIÐJUDAGUR 29. júní 2021