Fréttablaðið - 29.06.2021, Síða 26
Við búum
við matar
kistu
Íslands.
Breiða
fjörðurinn
gefur alveg
einstakt
hráefni,
eins og
hörpuskel,
bláskel,
sjófugl og
egg.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Hjónin Steinunn Helgadóttir,
veitingastjóri og fram-
kvæmdastjóri, og Sæþór Þor-
bergsson matreiðslumeistari
eiga og reka margrómaða
veitingahúsið Narfeyrarstofu
í Stykkishólmi.
Narfeyrarstofa er elsta veitingahús
Stykkishólms og fögnuðu þau 20
ára afmæli staðarins nú í byrjun
júní. Fjölskyldan er samheldin og
nýtur sín í rekstri staðarins. Hjónin
hafa mikla ástríðu fyrir því sem þau
eru að gera og staðurinn er þeirra
hugarfóstur. „Við höfum mikinn
áhuga á mat og matarmenningu
ásamt hönnun en við hönnuðum
sjálf Narfeyrarstofu eins og hún er í
dag. Undanfarin ár höfum við tekið
inn allt lambakjöt í heilu og unnið
það þannig og Sæþór hefur kafað
ofan í ræktun á sauðfé ásamt öllum
ferlum sem því viðkemur. Við
höfum t.d. þróað okkar eigið hangi
kjöt sem inniheldur mun minna
saltmagn og fer mun betur í skrokk
inn, bara svo eitthvað sé nefnt. Eins
förum við rúnt alla daga til að sækja
ferskt hráefni hjá fiskvinnslum hér
í Stykkishólmi,“ segir Steinunn.
Stóðu á tímamótum
„Árið 2001 bauðst okkur að
kaupa Narfeyrarstofu, sem var þá
kaffihús, og þáverandi eigandi bjó
á efri hæðinni. Við sjálf stóðum á
tímamótum hvað vinnu varðar
og slógum til, keyptum staðinn og
breyttum honum í veitingahús.
Við þurftum að gera talsverðar
breytingar á staðnum. Fyrir 4 árum
byggðum við síðan nýtt eldhús.“
Sæþór og Steinunn keyptu
gamalt hús í Stykkishólmi þegar
þau voru 19 ára og höfðu verið að
gera það upp. „Við ákváðum að selja
húsið til þess að geta keypt Nar
feyrarstofu,“ segir Sæþór.
Sagan mikilvæg
Hvernig var þetta fallega nafn valið
á staðinn?
„Í gamla daga í Stykkishólmi
báru húsin ekki götuheiti heldur
hétu nöfnum og voru þá oft kennd
við eigendur eða einhver kennileiti.
Húsið heitir Narfeyrarhús og er
kennt við Guðmund sem kemur frá
Narfeyri á Skógarstönd og byggði
húsið fyrir Málfríði Möller, ekkju
Sælkerafæða sem kitlar bragðlaukana
Steinunn
Helgadóttir,
veitingastjóri og
framkvæmda-
stjóri, og Sæþór
Þorbergsson
matreiðslu-
meistari.
MYND/GOLLI
Möllers apótekara. Þegar fyrr
verandi eigandi hússins opnaði
kaffihús efndi hann til nafnasam
keppni og þar varð nafnið Nar
feyrarstofa til.“
Ferskt hráefnið úr Breiðafirði
Aðalsmerki Narfeyrarstofu er að
nýta allt það úrvals hráefni sem
umhverfið og nærsveitin hefur upp
á að bjóða. „Við búum við matar
kistu Íslands. Breiðafjörðurinn
gefur alveg einstakt hráefni, eins og
hörpuskel, bláskel, sjófugl og egg.
Vinsælustu réttirnir eru hörpu
skelin, þorskurinn, bláskelin, sem
er hágæða sælkerafæða, og íslenska
lambið. Þorskhnakkinn er alltaf
jafn vinsæll. Frá árinu 2015 höfum
við verið að vinna með kjötafurðir
þar sem íslenska lambið leikur
stærsta hlutverkið. Við höfum
fengið viðurkenningu íslenskra
sauðjárbænda fyrir að vinna með
rekjanlegt, ræktað lamb úr héraði.
Við leggjum metnað okkar í að leita
uppi gott íslenskt hráefni, lífrænt
og vottað, sem við sækjumst eftir
úr okkar nágrenni. Með allt þetta
að leiðarljósi teljum við að mark
miðum okkar sé náð og vonumst
til að gestir okkar njóti matar
gerðarinnar.“
Leyndarmál bak við velgengnina
„Við erum samrýnd fjölskylda
og eigum auðvelt með að vinna
saman. Börnin okkar hafa hvatt
okkur, sem er dýrmætt, og lagt hart
að sér til að hjálpa okkur að láta
Narfeyrarstofu vaxa og dafna. Við
höfum öll mikla ástríðu fyrir því
sem við erum að gera. Við höfum
líka verið alveg einstaklega heppin
með starfsfólk sem hefur unnið hjá
okkur í gegnum árin.“
Steinunn og Sæþór eiga tvö börn,
Þorberg Helga, 28 ára matreiðslu
mann, og Anítu Rún, 25 ára, sem er
að klára 3. árið í Osteopathnámi
í London. Síðan er tengdadóttirin,
Anna Lind, og barnabarnið Ágúst
Heiðar.
Þau ljóstra hér upp uppskriftum
að vinsælustu réttunum þeirra. n
Pönnusteikt hörpuskel
með sætkartöflumauki og
perlubyggi
Fyrir 4
1 sæt kartafla
u.þ.b. 1-2 tsk. íslenskt flögusalt
u.þ.b. 200 g perlubygg
1-2 hvítlauksgeirar, saxaðir
u.þ.b. ½ chili-aldin, saxað smátt
20-30 g smjör, ósaltað
u.þ.b. 50 g parmesanostur, rifinn
16-20 stk. hörpuskel, snyrt
Þegar hörpuskel er matreidd er
mikilvægt að hreinsa hana vel og
fjarlægja lítinn flipa sem hangir oft
utan á henni, það er sin sem heldur
henni inni í skelinni og verður mjög
seig við eldun.
Hitið ofn í 200 °C. Bakið sæta
kartöflu í u.þ.b. 1 klst. eða þar til
hún er elduð í gegn. Látið kólna
örlítið, takið hýðið utan af kart
öflunni og maukið hana í mat
vinnsluvél þar til myndast hefur
slétt mauk. Bragðbætið með salti.
Sjóðið perlubygg samkvæmt leið
beiningum á pakka og bætið 1 hvít
lauksgeira og örlitlu chilialdin út
í vatnið. Takið byggið af hitanum,
hrærið smjöri og parmesanosti
saman við, bragðbætið með salti.
Þerrið hörpuskelina, hitið pönnu
með olíu og hafið á háum hita.
Steikið hörpuskelina í u.þ.b. 1 mín.
á hvorri hlið, blandið saman við
hvítlauk og chilialdin í lokin og
sáldrið yfir salti.
Bláskel með kryddsósu
Fyrir 4
4 kardimommur
2 anísstjörnur
1 msk. kumminfræ
2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
1 rautt chili-aldin, fræhreinsað og
saxað smátt
1 laukur, saxaður smátt
olía, til steikingar
500 ml tómatar, maukaðir í dós
u.þ.b. 50 ml kókosmjólk
1-2 tsk. hunang
bláskel, fyrir 4
Við mælum með breiðfirskri
bláskel þar sem hún hefur mikla
holdfyllingu. Bláskelin á að opnast
við eldun og hafið í huga að borða
ekki bláskel ef skelin opnast ekki.
Steytið saman kardimommur,
anísstjörnur og kumminfræ í
morteli. Hitið víðan pott og hafið á
miðlungsháum hita. Ristið kryddið
í pottinum í 12 mín. þar til það
byrjar að ilma, hér þarf að passa að
kryddið brenni ekki.
Bætið olíu saman við ásamt lauk
og eldið saman þar til laukurinn er
orðinn glær. Bætið því næst hvít
lauk og chilialdin saman við og
eldið í u.þ.b. 1 mín.
Hellið tómötum og kókosmjólk
saman við blönduna, lækkið örlítið
undir pottinum og látið malla í
u.þ.b. 30 mín. eða þar til sósan
hefur soðið svolítið niður. Bragð
bætið með hunangi.
Hitið stóran pott sem til er á
lok og hafið á vægum hita. Setjið
bláskelina út í pottinn ásamt vel af
kryddsósunni, setjið á lok. Hristið
pottinn af og til og eldið bláskelina
í nokkrar mín. eða þar til hún hefur
opnast. Það er ekki nauðsynlegt að
setja vökva með bláskelinni þegar
hún er elduð þar sem hún losar frá
sér töluverðan vökva við eldun.
Hristið pottinn af og til í eldunar
ferlinu. n
STOÐ Bíldshöfða | STOÐ Hafnarfirði | stod.is
CEP þrýstingssokkarnir auka
blóðflæði í fótleggjum og geta
þannig haft góð áhrif á líkamann.
• Falla vel að fætinum
• Auka stöðugleika
• Auka blóðflæði
• Örva liðskyn
• Hraða endurheimt
• Góð raka- og hitastjórnun
• Margar gerðir og litir
• Þýsk gæðavara
EKKI BARA SOKKAR
ÞRÝSTINGSSOKKAR
6 kynningarblað A L LT 29. júní 2021 ÞRIÐJUDAGUR