Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.06.2021, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 29.06.2021, Qupperneq 26
Við búum við matar­ kistu Íslands. Breiða­ fjörðurinn gefur alveg einstakt hráefni, eins og hörpuskel, bláskel, sjófugl og egg. Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Hjónin Steinunn Helgadóttir, veitingastjóri og fram- kvæmdastjóri, og Sæþór Þor- bergsson matreiðslumeistari eiga og reka margrómaða veitingahúsið Narfeyrarstofu í Stykkishólmi. Narfeyrarstofa er elsta veitingahús Stykkishólms og fögnuðu þau 20 ára afmæli staðarins nú í byrjun júní. Fjölskyldan er samheldin og nýtur sín í rekstri staðarins. Hjónin hafa mikla ástríðu fyrir því sem þau eru að gera og staðurinn er þeirra hugarfóstur. „Við höfum mikinn áhuga á mat og matarmenningu ásamt hönnun en við hönnuðum sjálf Narfeyrarstofu eins og hún er í dag. Undanfarin ár höfum við tekið inn allt lambakjöt í heilu og unnið það þannig og Sæþór hefur kafað ofan í ræktun á sauðfé ásamt öllum ferlum sem því viðkemur. Við höfum t.d. þróað okkar eigið hangi­ kjöt sem inniheldur mun minna saltmagn og fer mun betur í skrokk­ inn, bara svo eitthvað sé nefnt. Eins förum við rúnt alla daga til að sækja ferskt hráefni hjá fiskvinnslum hér í Stykkishólmi,“ segir Steinunn. Stóðu á tímamótum „Árið 2001 bauðst okkur að kaupa Narfeyrarstofu, sem var þá kaffihús, og þáverandi eigandi bjó á efri hæðinni. Við sjálf stóðum á tímamótum hvað vinnu varðar og slógum til, keyptum staðinn og breyttum honum í veitingahús. Við þurftum að gera talsverðar breytingar á staðnum. Fyrir 4 árum byggðum við síðan nýtt eldhús.“ Sæþór og Steinunn keyptu gamalt hús í Stykkishólmi þegar þau voru 19 ára og höfðu verið að gera það upp. „Við ákváðum að selja húsið til þess að geta keypt Nar­ feyrarstofu,“ segir Sæþór. Sagan mikilvæg Hvernig var þetta fallega nafn valið á staðinn? „Í gamla daga í Stykkishólmi báru húsin ekki götuheiti heldur hétu nöfnum og voru þá oft kennd við eigendur eða einhver kennileiti. Húsið heitir Narfeyrarhús og er kennt við Guðmund sem kemur frá Narfeyri á Skógarstönd og byggði húsið fyrir Málfríði Möller, ekkju Sælkerafæða sem kitlar bragðlaukana Steinunn Helgadóttir, veitingastjóri og framkvæmda- stjóri, og Sæþór Þorbergsson matreiðslu- meistari. MYND/GOLLI Möllers apótekara. Þegar fyrr­ verandi eigandi hússins opnaði kaffihús efndi hann til nafnasam­ keppni og þar varð nafnið Nar­ feyrarstofa til.“ Ferskt hráefnið úr Breiðafirði Aðalsmerki Narfeyrarstofu er að nýta allt það úrvals hráefni sem umhverfið og nærsveitin hefur upp á að bjóða. „Við búum við matar­ kistu Íslands. Breiðafjörðurinn gefur alveg einstakt hráefni, eins og hörpuskel, bláskel, sjófugl og egg. Vinsælustu réttirnir eru hörpu­ skelin, þorskurinn, bláskelin, sem er hágæða sælkerafæða, og íslenska lambið. Þorskhnakkinn er alltaf jafn vinsæll. Frá árinu 2015 höfum við verið að vinna með kjötafurðir þar sem íslenska lambið leikur stærsta hlutverkið. Við höfum fengið viðurkenningu íslenskra sauðjárbænda fyrir að vinna með rekjanlegt, ræktað lamb úr héraði. Við leggjum metnað okkar í að leita uppi gott íslenskt hráefni, lífrænt og vottað, sem við sækjumst eftir úr okkar nágrenni. Með allt þetta að leiðarljósi teljum við að mark­ miðum okkar sé náð og vonumst til að gestir okkar njóti matar­ gerðarinnar.“ Leyndarmál bak við velgengnina „Við erum samrýnd fjölskylda og eigum auðvelt með að vinna saman. Börnin okkar hafa hvatt okkur, sem er dýrmætt, og lagt hart að sér til að hjálpa okkur að láta Narfeyrarstofu vaxa og dafna. Við höfum öll mikla ástríðu fyrir því sem við erum að gera. Við höfum líka verið alveg einstaklega heppin með starfsfólk sem hefur unnið hjá okkur í gegnum árin.“ Steinunn og Sæþór eiga tvö börn, Þorberg Helga, 28 ára matreiðslu­ mann, og Anítu Rún, 25 ára, sem er að klára 3. árið í Osteopath­námi í London. Síðan er tengdadóttirin, Anna Lind, og barnabarnið Ágúst Heiðar. Þau ljóstra hér upp uppskriftum að vinsælustu réttunum þeirra. n Pönnusteikt hörpuskel með sætkartöflumauki og perlubyggi Fyrir 4 1 sæt kartafla u.þ.b. 1-2 tsk. íslenskt flögusalt u.þ.b. 200 g perlubygg 1-2 hvítlauksgeirar, saxaðir u.þ.b. ½ chili-aldin, saxað smátt 20-30 g smjör, ósaltað u.þ.b. 50 g parmesanostur, rifinn 16-20 stk. hörpuskel, snyrt Þegar hörpuskel er matreidd er mikilvægt að hreinsa hana vel og fjarlægja lítinn flipa sem hangir oft utan á henni, það er sin sem heldur henni inni í skelinni og verður mjög seig við eldun. Hitið ofn í 200 °C. Bakið sæta kartöflu í u.þ.b. 1 klst. eða þar til hún er elduð í gegn. Látið kólna örlítið, takið hýðið utan af kart­ öflunni og maukið hana í mat­ vinnsluvél þar til myndast hefur slétt mauk. Bragðbætið með salti. Sjóðið perlubygg samkvæmt leið­ beiningum á pakka og bætið 1 hvít­ lauksgeira og örlitlu chili­aldin út í vatnið. Takið byggið af hitanum, hrærið smjöri og parmesanosti saman við, bragðbætið með salti. Þerrið hörpuskelina, hitið pönnu með olíu og hafið á háum hita. Steikið hörpuskelina í u.þ.b. 1 mín. á hvorri hlið, blandið saman við hvítlauk og chili­aldin í lokin og sáldrið yfir salti. Bláskel með kryddsósu Fyrir 4 4 kardimommur 2 anísstjörnur 1 msk. kumminfræ 2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt 1 rautt chili-aldin, fræhreinsað og saxað smátt 1 laukur, saxaður smátt olía, til steikingar 500 ml tómatar, maukaðir í dós u.þ.b. 50 ml kókosmjólk 1-2 tsk. hunang bláskel, fyrir 4 Við mælum með breiðfirskri bláskel þar sem hún hefur mikla holdfyllingu. Bláskelin á að opnast við eldun og hafið í huga að borða ekki bláskel ef skelin opnast ekki. Steytið saman kardimommur, anísstjörnur og kumminfræ í morteli. Hitið víðan pott og hafið á miðlungsháum hita. Ristið kryddið í pottinum í 1­2 mín. þar til það byrjar að ilma, hér þarf að passa að kryddið brenni ekki. Bætið olíu saman við ásamt lauk og eldið saman þar til laukurinn er orðinn glær. Bætið því næst hvít­ lauk og chili­aldin saman við og eldið í u.þ.b. 1 mín. Hellið tómötum og kókosmjólk saman við blönduna, lækkið örlítið undir pottinum og látið malla í u.þ.b. 30 mín. eða þar til sósan hefur soðið svolítið niður. Bragð­ bætið með hunangi. Hitið stóran pott sem til er á lok og hafið á vægum hita. Setjið bláskelina út í pottinn ásamt vel af kryddsósunni, setjið á lok. Hristið pottinn af og til og eldið bláskelina í nokkrar mín. eða þar til hún hefur opnast. Það er ekki nauðsynlegt að setja vökva með bláskelinni þegar hún er elduð þar sem hún losar frá sér töluverðan vökva við eldun. Hristið pottinn af og til í eldunar­ ferlinu. n STOÐ Bíldshöfða | STOÐ Hafnarfirði | stod.is CEP þrýstingssokkarnir auka blóðflæði í fótleggjum og geta þannig haft góð áhrif á líkamann. • Falla vel að fætinum • Auka stöðugleika • Auka blóðflæði • Örva liðskyn • Hraða endurheimt • Góð raka- og hitastjórnun • Margar gerðir og litir • Þýsk gæðavara EKKI BARA SOKKAR ÞRÝSTINGSSOKKAR 6 kynningarblað A L LT 29. júní 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.