Fréttablaðið - 29.06.2021, Síða 32
Einkasýning Rögnu Róberts-
dóttur stendur yfir í i8,
Tryggvagötu. Þar sýnir hún
eldri verk í bland við ný verk.
Sýningin stendur til 31. júlí.
Kolbrún Bergþórsdóttir
Á meðal verka á sýningunni eru tvö
stór hraunverk sem Ragna vann á
veggi gallerís i8. Þau eru úr svörtum
vikri sem Ragna safnaði við rætur
Heklu. „Ég bar lím á vegginn og
f leygði vikrinum á hann og vann
síðan áfram,“ segir hún. Þegar sýn-
ingunni lýkur verður verkið skafið
niður og verður ekki til lengur.
Spurð hvort það sé ekki vond til-
finning segir listakonan: „Nei, alls
ekki, ég hef gert þetta endalaust í
gegnum árin.“
Ragna segist alltaf hafa verið
heilluð af hraunbreiðum. „Ég fór
með foreldrum mínum í útilegur
og við gistum í námunda við Heklu.
Ætli áráttan hafi ekki byrjað þá,“
segir hún. Spurð hvort hún taki
sér langan tíma til að skapa hraun-
verk sín segir hún: „Það er tveggja
til þriggja daga verk að skapa þessi
stóru verk. Eftir að búið er að bera
lím á vegginn þá er ekki hægt að
stoppa heldur verður að halda
áfram áður en límið þornar.“
Meðal annarra verka eru nokkrar
þéttbundnar torfrúllur. „Þetta torf
er orðið 30 ára gamalt og er alveg
eins og nýtt. Það er þurrkað, var
á Kjarvalsstöðum árið 2004 og
hefur ferðast um heiminn,“ segir
hún. Einnig má sjá vafninga sem
gerðir eru úr Manila-reipi og hör,
sem flett er út og þremur stöflum af
rétthyrndum steinskífum er komið
fyrir á milli þeirra.
Nýtt silfurverk er einnig á sýning-
unni og gestir geta speglað sig í því.
Verkið mun breytast þegar fellur á
silfrið og mynstur verður til.
Fyrir utan i8 er útiverk eftir
Rögnu sem samanstendur af þrem-
ur bronsplötum sem komið hefur
verið fyrir í stað gagnstéttarhellna.
„Í verkum mínum hef ég verið að
vinna með tímann og þetta er brons
sem breytist með tímanum vegna
þess að hann fær á sig allt mögulegt
vegna veðurs og átroðnings.“
Enn einn þáttur sýningarinnar er
verk Rögnu í Hljómskálagarðinum,
stígur gerður úr rauðamöl. „Ég hef
gert stíga eins og þennan á ýmsum
stöðum í gegnum árin úr rauðamöl
frá Seyðishólum. Þegar fólk gengur
á stígunum fara þeir smám saman
að taka breytingum.“
Bronsgangstéttin og rauðamalar-
stígurinn verða til sýnis allt fram í
september.
Spurð hvort tengja megi verk
hennar við umhverfisvernd segir
Ragna: „Það gerist ósjálfrátt. Ég hef
alltaf notað meira og minna nátt-
úruleg efni til að vinna með. Stór
hluti af vinnunni felst í því að ná í
efnið að rótum Heklu og fleiri eld-
fjalla.“ n
Hefur alltaf verið heilluð af hraunbreiðum
Ragna við hraunverkin sem hún vann á veggi gallerísins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Kolbrún Bergþórsdóttir
Af hjúpun á nýju útilistaverki og
opnun einkasýningar Sigurðar
Guðmundssonar á Djúpavogi fer
fram laugardaginn 10. júlí. For-
sætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir,
mun af hjúpa útilistaverkið Frelsi,
sem gert er í minningu um þrælinn
Hans Jónatan, við Löngubúð kl.
14.30 og opna í kjölfarið sýninguna
Alheimurinn er ljóð í Bræðslunni
kl. 15.00. Gjörningar fara fram á
opnun og gefin er út sýningarskrá
í tilefni sýningarinnar.
Sýning Sigurðar Guðmunds-
sonar, Alheimurinn er ljóð, sam-
anstendur af ólíkum verkum frá
árunum 1969–2021. Ferill Sigurðar
er fjölbreyttur og miðlarnir ólíkir
en póetískur tónn hefur umvafið
verk hans alla tíð, hvort sem um
er að ræða ljósmyndaverk, högg-
myndir, teikningar, grafíkverk
eða gjörninga hans, en hann hefur
einnig samið tónverk, ljóð og gefið
út fjórar skáldsögur.
Sýningin er rökrétt framhald af
síðustu útgáfu Sigurðar, Ljóð og
Ljóð, sem kom út árið 2020 og var
safn af ljóðum listamannsins. Verk-
in á sýningunni eru ljóð í sjálfu sér
en Sigurður lítur á alheiminn sem
ljóð og í samskiptum sínum við
hann finnst listamanninum bæði
gott og rétt að upplifa alheiminn
sem ljóð.
Sigurður Guðmundsson (f. 1942)
er meðal fremstu myndlistar-
manna Íslendinga. Hann býr og
starfar á Djúpavogi, í Reykjavík,
Amsterdam og Xiamen í Kína.
Sýningin Alheimurinn er ljóð fer
fram í Bræðslunni á Djúpavogi og
er samstarfsverkefni Múlaþings,
Kínversk-evrópsku menningar-
miðstöðvarinnar – CEAC og ARS
LONGA með stuðningi frá Upp-
byggingarsjóði Austurlands.
Sýningarskrá kemur út samhliða
sýningunni sem unnin er í sam-
vinnu við Studio Studio. n
Afhjúpun og einkasýning
Nýtt útilista-
verk eftir Sigurð
Guðmundsson
verður afhjúpað
um næstu helgi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Kolbrún Bergþórsdóttir
Sjálfsævisögulegi heimildasöngleik-
urinn Góðan daginn faggi verður
forsýndur á menningarhátíð á Café
Dunhaga á Tálknafirði 2. og 3. júlí
nk. Sýningin er samstarfsverkefni
Þjóðleikhússins og leikhópsins
Stertabendu og eru höfundar og
aðstandendur verksins Bjarni
Snæbjörnsson leikari, Gréta Kristín
Ómarsdóttir leikstjóri og Axel Ingi
Árnason tónskáld.
Góðan daginn faggi er ein-
leikur þar sem fertugur söngleikja-
hommi leitar skýringa á skyndi-
legu taugaáfalli sem hann fékk upp
úr þurru einn blíðviðrisdag. Eftir
vandasaman leiðangur um innra líf
sitt, fortíð og samtíma rekst hann á
rætinn hommahatara á óvæntum
stað.
Sýningin hefur verið í vinnslu
í þrjú ár og unnin í nánu sam-
tali við Tálknfirðinga, en Bjarni
Snæbjörnsson ólst upp á Tálkna-
firði. Verkið verður forsýnt á menn-
ingarhátíð á Café Dunhaga 2. og
3. júlí kl. 20.30. Ókeypis er inn á
sýningarnar.
Sýningin verður frumsýnd í
Þjóðleikhúskjallaranum 5. ágúst
næstkomandi á Hinsegin dögum í
Reykjavík. n
Forsýning á Góðan daginn faggi
Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ég hef alltaf notað
meira og minna nátt-
úruleg efni til að vinna
með.
Katrín Jakobsdóttir
mun afhjúpa útilista-
verkið Frelsi sem gert
er í minningu um
þrælinn Hans Jónatan.
Sýningin hefur verið
í vinnslu í þrjú ár og
unnin í nánu samtali
við Tálknfirðinga.
16 Menning 29. júní 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 29. júní 2021 ÞRIÐJUDAGUR