Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.06.2021, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 29.06.2021, Qupperneq 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Núna á ég sex óút- gefnar, alveg tilbúnar skáldsögur í Word- skjölum. Og er að vinna við tvær þannig að þarna liggja nokkur þúsund blaðsíður. 22 Lífið 29. júní 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ Höfundarverk ljóðskáldsins Kristjáns Hreinssonar er býsna drjúgt en þar er ellefta skáldsagan, Lökin í golunni, sem byggir óbeint á örlögum móður hans, nýjust. Síðan bíða sex óútgefnar bækur þar sem skáldið gerir lítið annað en að skrifa eftir að hann flutti til Ítalíu. thorarinn@frettabladid.is Kristján Hreinsson er þekktastur sem ljóðskáld þótt hann hafi einnig lengi látið að sér kveða með hundr- uðum söngtexta, greinaskrifum og skáldsögum sem eru orðnar ellefu með Lökin í golunni – Örlagasaga tveggja systra, sem er sprottin upp úr kuldalegum íslenskum veruleika í kringum síðari heimsstyrjöldina. „Raunverulegu atvikin eru nátt- úrlega, svona eins og maður segir í heimspekinni, kannski ekki í beinni tengingu við sannleikann. Eins og mannkynssagan segir okkur ekki það sem gerðist heldur það sem við segjum að hafi gerst.“ Þrátt fyrir áhersluna á að um skáldskap sé að ræða hefur Krist- ján ekki farið leynt með að sagan er að hluta til byggð á reynslu móður hans, Guðrúnar Ólafsdóttur, og systur hennar Dagbjartar. „Ég heyrði alls konar sögur í æsku og svo hef ég mikið lesið alls konar skrif um þessi ár, bæði í kringum fyrra stríð og eins í seinna stríði, og hvernig brugðist var við í miklu atvinnuleysi ef móðir dó frá fjöl- skyldu sinni. Ég lagði svolitla áherslu á að kíkja á hvernig aðstæðurnar voru í slíkum dæmum og yfirleitt var það þannig að faðirinn var ekki talinn geta séð um börnin,“ segir Kristján og bætir við að svo virðist sem efnahagur hafi ekki endilega ráðið úrslitum. Brothættar sálir „Það kemur ekki alltaf fram hvort þeir hafi ekki getað þetta af sjálfs- dáðum en yfirleitt virtist það bara vera þannig að yfirvöld leystu svona mál með því að dreifa börnunum annað og fjölskyldur flosnuðu upp. Þannig að ég hafði úr töluvert miklu að moða til viðbótar við nokkrar sögur í minni ætt sem eru mér nokkuð nærtækar. En ég breytti öllu og þetta er ekki byggt á neinum sannleika sem slíkt. Það eru engir staðarhættir eða neitt sem birtast þannig í þessari sögu.“ Kristján segir að með réttu megi tala um bókina sem harmsögu en þó með ákveðnum formerkjum. „Þetta er harmsaga, þannig lagað, en hún fjallar í raun og veru ekki um harminn heldur einmitt um vonina. Hún er stóri kjarninn og þarna eru sálir sem eru brothættar en láta ein- hvern veginn ekki brjóta sig. Fyrst og fremst vegna þess að þær ákveða bara að stíga upp úr eymdinni og ætla sér ekki að erfa þetta við einn eða neinn,“ segir Kristján og bætir við að sjálfur hafi hann heldur ekki skrifað söguna með neitt slíkt uppgjör í huga. „Ég er fyrst og fremst bara með skáld- skap sem segir hvernig þetta var í raun og veru.“ Þótt Lökin í golunni komi fyrst núna út á bók hefur Kristján notað söguna til kennslu á ritlistar- námskeiðum við Endurmenntun Háskólans í átta ár þar sem nem- endur hans hafa fengið að kynnast ýmsum þáttum varðandi uppbygg- ingu sögunnar, hvað sagan hefur að geyma, hvernig hún er samansett og hvers vegna hann skrifaði hana. Sex óútgefnar „Það skemmtilega við þessa sögu er að ég hef notað hana í átta ár sem skólabókardæmi um hvernig saga er byggð upp og hvernig ég vinn hlutina þegar ég hef verið að kenna ritlist, eða skáldleg skrif við Endur- menntun Háskólans. „Ég vann þetta töluvert mikið þannig að ég ákvað fyrirfram hvernig kaflaskipting yrði og hvað yrði í hverjum kafla. Þetta er ein leið til að skrifa skáldsögu eftir ofboðslega njörvuðu skipulagi, sem ég gerði í þessu tilviki.“ Bókin lá því sem Word-skjal í tölvunni löngu áður en hún varð að veruleika og þar er af nógu að taka. „Núna á ég sex óútgefnar, alveg til- búnar, skáldsögur í Word-skjölum. Og er að vinna við tvær þannig að þarna liggja nokkur þúsund blaðsíður. Eftir að ég kom hingað til Ítalíu er ég bara búinn að vera skrifandi,“ segir Kristján, sem býr í Mílanó ásamt konu sinni og ræðis- manni Íslands, Olgu Clausen. „Ég skrifa bara og fer í göngutúra. Það er mitt lífsviðurværi og þetta hangir allt saman,“ segir Kristján og hlær. „Það er ekki nema 35 gráðu hiti í Mílanó í dag. Ef ég er á Íslandi á ég við gigt að stríða, í hálsi og baki, eftir slys en finn ekki fyrir neinu slíku hérna þannig að það er töluvert mikil búbót að vera í hit- anum.“n Skáldið við 35 gráður Ljóðskáldið og heimspekingur- inn Kristján Hreinsson er vel bakaður í 35 gráðu hita í Mílanó þar sem hann býr og skrifar eins og vindurinn, laus undan gigt og stirðleika. MYND/AÐSEND www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 AFSLÁTTUR 20% ÚTSALA COUVIN Glerskápur/svart birki 151.992 kr. 189.990 kr. AFSLÁTTUR 20% ÚTSALA Fallegur borðbúnaður – tilvalinn í útileguna eða út á pallinn! KYNNINGAR AFSLÁTTUR 15% MEDUSA RICHMOND Skenkur 83.993 kr. 119.990 kr. AFSLÁTTUR 30% ÚTSALA EDE 3ja og 2,5 sæta sófar og hægindastóll í koníaksbrúnu áklæði. Set- og bakpullur eru þéttar, mjög þykkar og þægilegar. Fætur eru úr bogadregnu, svörtu járni. Glæsileg, tíma- laus hönnun. 2,5 sæta sófi 135.992 kr. 169.990 kr. 3ja sæta sófi 143.992 kr. 179.990 kr. Hægindastóll 95.992 kr. 119.990 kr. ÚTSALA Allt að 50% afsláttur SUMAR 2ja sæta sófi 118.993 kr. 169.990 kr. 3ja sæta sófi 132.993 kr. 189.990 kr. Hægindastóll 83.993 kr. 119.990 kr. SICILIA 2ja og 3ja sæta sófar og hæginda stóll. AFSLÁTTUR 30% ÚTSALA Örlagasaga systra Lökin í golunni – Örlagasaga tveggja systra er ellefta skáldsaga Kristjáns Hreins- sonar. Hann byggir söguna að hluta á atburðum sem áttu sér stað í raun og veru en kýs að líta á hana sem hreinan skáldskap með sögulegu ívafi. Lökin í golunni er örlaga- saga systra sem mæta hörðum heimi stríðsáranna við andlát móður sinnar. Faðir þeirra verður að sætta sig við að yfirvöld sundri fjölskyldunni og fátækt og niðurlæging blasir við stúlk- unum. En vængir vonarinnar eru sterkir og lífið sýnir sínar fegurstu hliðar þegar öllu er á botninn hvolft.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.