Fréttablaðið - 26.06.2021, Side 33
Forstöðumaður eignastýringar
Lífsverk er opinn lífeyrissjóður fyrir
háskólamenntaða. Allir sem lokið hafa
grunnnámi á háskólastigi geta skráð sig
í sjóðinn.
Lífsverk var fyrsti lífeyrissjóðurinn sem
byggði á aldurstengdum réttindum, tók
upp sjóðfélagalýðræði og rafrænt
stjórnarkjör.
Sérstaða Lífsverks er m.a. hár ávinningur
réttinda og val um leiðir fyrir
skyldusparnað.
Sjóðurinn er ört vaxandi og nemur hrein
eign í árslok 123 milljörðum króna.
Gildi sjóðsins eru:
Heilindi – jákvæðni – ábyrgð
Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna
á www.lifsverk.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
Lífsverk lífeyrissjóður óskar eftir að ráða öflugan einstakling til að leiða eignastýringu sjóðsins.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is)
í síma 511 1225.
• Ábyrgð á starfssviði eignastýringar
• Þátttaka í mótun fjárfestingarstefnu og stefnu um
ábyrgar fjárfestingar
• Greining markaða og fjárfestingarkosta innanlands
sem utan
• Ákvarðanir um fjárfestingar
• Samskipti við innlend og erlend verðbréfafyrirtæki og
aðila á fjármálamarkaði
• Skýrslugerð og almenn upplýsingagjöf til stjórnenda
sjóðsins
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og
ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður
með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
• Háskólapróf á sviði fjármála, verk- eða tölfræði, eða
sambærileg menntun sem nýtist í starfi
• Próf í verðbréfaviðskiptum
• Umtalsverð starfsreynsla í eignastýringu eða á
fjármálamarkaði
• Þekking á ábyrgum fjárfestingum og grænum lausnum
• Greiningarhæfni og hæfni til að setja fram efni og
niðurstöður með skipulögðum hætti
• Leiðtogahæfni, sjálfstæði og öguð vinnubrögð
• Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
• Gott vald á íslensku og ensku
Mannauðsstjóri
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á framkvæmd og eftirfylgni mannauðsmála
• Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk á sviði
mannauðsmála
• Þróun starfsumhverfis, frammistöðumats og stjórnenda-
og starfsmannasamtala
• Mat á mannaflaþörf og umsjón með ráðningum, móttöku og
starfslokum
• Þróun jafnlaunakerfis og framkvæmd jafnlaunagreininga
• Þróun gæðakerfis, ferla og vinnulýsinga
• Umsjón með starfsþróun og fræðslu starfsfólks
• Þátttaka í ýmsum verkefnum og starfshópum innan og utan
ráðuneytisins
Hæfnikröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er æskileg.
• Yfirgripsmikil þekking og reynsla af mannauðsmálum
• Reynsla af stefnumótun og áætlanagerð á sviði mannauðsmála
• Reynsla eða þekking af verkefna- og breytingastjórnun er kostur
• Þekking og reynsla á stjórnsýslu er kostur
• Þekking og reynsla af gæðamálum er kostur
• Áhugi á fólki, jákvæðni og framúrskarandi hæfni í samskiptum
• Sjálfstæði, frumkvæði og metnaður til að ná árangri
• Gott vald á íslensku í rituðu og mæltu máli
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið leitar eftir öflugum einstaklingi með víðtæka reynslu
og þekkingu til að leiða starf ráðuneytisins á sviði mannauðsmála í samstarfi við stjórnendur.
Í ráðuneytinu starfar 44 manna samhentur hópur á fjórum skrifstofum. Ráðuneytið leggur áherslu á góðan starfsanda,
góð starfsskilyrði og gildi ráðuneytisins sem eru framsýni, árangur og traust.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ferilsskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og veittur rökstuðningur
fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Um fullt starf er að ræða. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna
stjórnarráðsins og fjármálaráðherra.
Ráðuneytið hvetur einstaklinga óháð kyni til að sækja um starfið. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar veitir Ingilín Kristmannsdóttir, skrifstofustjóri í
samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, í síma 545 8200.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Umsóknarfrestur er til 8. júlí nk. Umsóknum skal skila á starfatorg.is
ATVINNUBLAÐIÐ 3LAUGARDAGUR 26. júní 2021