Fréttablaðið - 26.06.2021, Side 18

Fréttablaðið - 26.06.2021, Side 18
Birna Bragadótt- ir, forstöðukona Elliðaárstöðvar, segir tilkomu rafmagns hafa verið byltingu fyrir jafnréttið. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Framleitt var rafmagn í gömlu rafstöðinni í Elliðaárdal til ársins 2014 en nú fær hún nýtt hlutverk. Þó þessi auglýsing virki hjákátleg í dag þá breytti rafmagnið mjög miklu fyrir húsmæður borgarinnar. Hér er spurt hvort þú vilt heldur. Dagskrá sunnudagsins 11:00 Móttaka við rafstöðina þar sem tímamótanna verður minnst. 12:00 Rafstöðin opnuð og boð- ið verður upp á leiðsögn um hana og uppbygg- inguna á svæðinu auk þess sem gengið verður um Elliðaárhólma. 14:00 Leikhópurinn Lotta tekur á móti börnum við raf- stöðina og farið verður í ævintýragöngu í skógar- rjóður þar sem Lotta mun sýna „Pínulitlu gulu hænuna“. Boðið verður upp á hressingu. Með til- komu rafmagns- ins og rafmagns- tækja hafði kona eins og amma meira svigrúm til að vera á vinnu- markaði og afla sinna eigin tekna. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is Á morgun, sunnudag, eru nákvæmlega 100 ár frá því að Rafstöðin í Elliðaárdalnum hóf starfsemi og Reykja- vík steig stórt skref inn í nútímann. Birna Bragadóttir, forstöðukona Elliðaárstöðvar, segir orkuskiptin ekki síst hafa verið mikilvægt skref í jafn- réttisbaráttunni. Mikil uppbygging er í dalnum um þessar mundir en verkefnið Elliða- árstöð er í fullum undirbúningi og munu byggingar tengdar rafstöðinni fá nýtt hlutverk. Fyrsti áfangi verkefnisins verður tilbúinn síðsumars en um er að ræða spennandi upplifun í dalnum þar sem ætlunin er að börn sem og full- orðnir geti fræðst um sögu og vísindi og notið sín í Elliðaárdalnum, úti- vistarparadís Reykvíkinga. Bylting inni á heimilunum „Rafstöðin verður opin í tengslum við aldarafmælið á sunnudag, en þessi fallega bygging hefur nú lokið upphaflegu hlutverki sínu sem var að framleiða rafmagn fyrir borgar- búa,“ segir Birna, en rafstöðin var á sínum tíma upphafið að fyrstu orku- skiptunum. „Þá var hægt að kveikja á ljósa- staurum, elda með öðru en kolum og gasi og fólk gat farið út í skamm- deginu því komin var götulýsing. Það þurfti auðvitað að kenna fólki á raf- magnseldavélar og loks gat fólk soðið ýsuna sína og ristað brauðið sitt á auðveldari hátt en áður,“ útskýrir Birna. „Fólk áttar sig oft ekki á áhrifun- um sem rafmagnið hafði á borgar- búa, en Reykjavík, sem þá var rúm- lega 20 þúsund manna borg, hvarf í raun frá kotbúskap og varð nútíma- borg.“ En það sem ekki var fyrirséð voru áhrifin sem rafmagnið hafði inni á heimilunum í borginni, og þá ekki síst á líf þeirra kvenna sem sinntu heimilisstörfum. „Ég myndi segja að rafmagnið hafi haft veruleg áhrif á jafnréttið,“ segir Birna ákveðin. Eldavélar á afborgunum „Föðuramma mín þurfti til dæmis að ganga með allan þvott, bleiur og fleira niður í þvottalaugar. Þegar ég byrjaði sjálf að búa, öllum þessum árum síðar, gaf hún mér þvottavél með þeim skilaboðum að ég þyrfti aldrei að eyða tíma mínum í einskis nýtan verknað líkt og að þvo í hönd- unum.“ Aldarafmæli rafmagnsins um helgina Amma Birnu vissi af eigin reynslu hversu mikilvægt það var að eiga þvottavél með stórt heimili, en eigin- maður hennar var ekki eins opinn fyrir þessari nýjung. „Afa fannst óþarfi að hún eignaðist þvottavél og fannst hún vel geta þveg- ið í laugunum. Í hverjum mánuði setti hún því peninga til hliðar og safnaði sér þannig fyrir sinni fyrstu þvottavél. Með tilkomu rafmagnsins og raf- magnstækja hafði kona eins og amma meira svigrúm til að vera á vinnu- markaði og afla sinna eigin tekna. Konur í þá daga þurftu ekki lengur að hita kol í eldavélum. Það var ljós inni á heimilunum og ekki lengur nauðsyn að ganga langar leiðir til að þvo þvotta.“ Þótt hundrað ár virðist ekki mjög langur tími í stóra samhenginu segir Birna Íslendinga haf a verið framsýna og þannig hafa farið hratt í gegnum fyrstu orkuskiptin. „Til þess að flýta fyrir orkuskipt- unum bauð Rafmagnsveitan fólki að kaupa Rafha-eldavélar á afborgunum með rafmagnsreikningnum enda um stóra fjárfestingu að ræða,“ útskýrir Birna og viðurkennir að þetta skýri væntanlega útbreiðslu Rafha-elda- véla á heimilum fyrri tíma. Árstraumur varð rafstraumur En rafstöðin sem kveikti ljósin í bænum tók ekki aðeins orku nátt- úrunnar og bjó til rafmagn, heldur fagnar skógræktin í Elliðarárdalnum einnig sjötíu árum nú í ár. „Starfsfólk Rafveitunnar gróður- setti trén í hólmanum. Það var þeirra leið til að gefa til baka þegar verið var að virkja náttúruna sem mér finnst falleg hugsun, en í dag er hér allt skógi vaxið. Með virkjuninni varð árstraumur að rafstraumi, sem sýnir svo vel hversu beintengd við erum við náttúruna,“ segir Birna og nefnir dagbókarfærslur rafstöðvarinnar sem varðveist hafa frá árinu 1921 og gaman er að glugga í. „Þar má sjá skráningar um veður, vatnshæð, hitastig í dalnum og allt það sem hafði áhrif á rafmagnsfram- leiðslu og sýnir glöggt þessa tengingu við náttúruna.“ Rafmagn var framleitt í gömlu raf- stöðinni í Elliðaárdalnum til ársins 2014. „Síðustu árin var hún aðallega notuð sem varaaflstöð á veturna. Nú er markmiðið að húsaþyrpingin skipti um hlutverk. Í stað þess að virkja rafmagn, sem aðrar nútíma- virkjanir sjá nú um, ætlum við að búa til nýjan áfangastað í þess- ari einstöku náttúruperlu í hjarta Reykjavíkur og virkja fólk, hugvit og nýsköpun. Markmiðið er jafnframt að fræða börn og fullorðna um þær auðlindir sem við höfum inni í miðri borginni okkar til að búa okkur til lífsgæði.“ n Í LOFTINU LAUGARDAGA 09:00-12:00 BAKARÍIÐ Sækja frá SÆKTU NÝJA APPIÐ! HELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 26. júní 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.