Fréttablaðið - 26.06.2021, Side 26

Fréttablaðið - 26.06.2021, Side 26
Réttindi barna eru Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra, hjartans mál og náði hann á yfir- standandi þingi að fá sam- þykkt fimm frumvörp sem að öllum líkindum fela í sér mestu breytingu sem gerð hefur verið á umhverfi barna á Íslandi í áratugi. Ásmundur Einar sagði sögu sína af erfiðum uppvexti í Morgunblaðinu fyrir um ári og segir að það hafi breytt miklu fyrir þá vegferð sem hann fór svo í með þessi mál. „Það hefur í raun haft miklu meiri áhrif en ég gerði ráð fyrir. Þau sem ég var að vinna með í ráðuneytinu voru búin að skynja að ég hafði mikinn áhuga á þessum málum. En ég vildi ekki tala um þetta fyrr en málin væru komin „í höfn“ auk þess sem ég var ekki tilbúinn til að opna mig um þetta fyrr,“ segir Ásmundur. Hann segir að hann hefði aldr- ei  opnað sig svona  fyrir fjórum árum, við upphaf kjörtímabilsins. „Það var heiður að fá að sinna þessum málefnum, og viðkvæm- ustu hópum samfélagsins, og ná að tengja við þau á þessu kjörtímabili. Ég hugsaði að ég yrði að nota næstu fjögur árin til þess að sinna þessu, því það var eitthvað sem ég átti óuppgert úr minni fortíð. Ég sagði formanni mínum ekki frá því að ég ætlaði að leggja áherslu á barnamál, heldur fór að vinna í þeim samhliða öðrum málum,“ segir Ásmundur. „Þetta er daglega þerapían mín, að fá að sinna þessum málaflokki og ég finn sterkt hvernig þetta eykur vellíðan og ánægju,“ segir Ásmundur. Um er að ræða frumvarp um sam- þættingu þjónustu í þágu farsældar barna, frumvarp um Barna- og fjöl- skyldustofu og frumvarp um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, frumvarp um Greiningar- og ráð- gjafarstöð ríkisins auk frumvarps um breytingar á barnaverndar- lögum, sem meðal annars felur í sér að pólitískt skipaðar barnaverndar- nefndir verði nú lagðar niður. Þá var þingsályktunartillaga um Barnvænt Ísland einnig samþykkt. Langtímaverkefni Hann segir verkefnin sem fram undan eru vera tvíþætt. Það er ann- ars vegar að bæta þjónustu við börn innan velferðarkerfisins og að ýta undir bætt réttindi þeirra og getu barna til að nýta rétt sinn. „Það er annars vegar þjónusta við börn, velferðarkerfið og hvernig það er haldið utan um þau og þar erum við að búa til nýtt velferðarkerfi. Þriggja laga velferðarkerfi og ég held að það átti sig ekki allir á því hvað það er risastór breyting. Það hefur fengið meiri umfjöllun að pólitískt skipaðar barnaverndar- nefndir verði lagðar niður, sem er í raun miklu minni breyting en hin,“ segir Ásmundur Einar. Hann segir að þegar farið var í þessa vinnu hafi það orðið nokkuð ljóst snemma í ferlinu að raddir barna og réttindi þeirra yrðu ekki slitin úr samhengi við þessar breyt- ingar. „Þetta er sín hliðin hvor á sama peningnum og mér fannst verða að vinna þetta samhliða. Þess vegna fórum við af stað í þessi verkefni öll á sama tíma,“ segir Ásmundur og bætir við: „Þó svo að frumvörpin og þings- ályktunin hafi verið samþykkt á þingi núna, er um að ræða langtíma- verkefni.“ Í þingsályktunartillögunni um barnvænt Ísland eru tillögur sem tímasettar eru allt til ársins 2024. Sumar eru þegar komnar í fram- kvæmd, eins og mælaborð á velferð barna sem stefnt er að því að opin- berir aðilar geti nýtt til að halda Málefni barna daglega þerapían Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, sagði formanninum ekki frá því að hann ætlaði að leggja áherslu á málefni barna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR utan um tölfræðigögn um velferð og líðan barna hér á landi. Þar verður hægt að bera saman velferð barna eftir landshlutum, jafnvel milli sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir því að mælaborðið verði tilbúið fyrir árslok. Hann segir að önnur atriði eins og hagsmunamat og fjárhagsgrein- ing verði að tala við velferðarhluta breytinganna. Stórauka þátttöku barna Í frumvörpunum er gert ráð fyrir að stórauka þátttöku barna á öllum stigum ákvarðanatöku. Spurður hvort hann telji samfélagið tilbúið til að taka þátt í slíkum breytingum og leyfa börnum að taka þátt í aukn- um mæli segir Ásmundur Einar að samfélagið hafi líklega aldrei verið eins tilbúið. „Mér fannst í upphafi kjörtíma- bils mörgum finnast þetta ekki pólitískt skynsamlegt og að þetta væri ekki málefni sem pólitískt borgaði sig að setja á oddinn, eða skipti miklu máli. Mér finnst hafa orðið ákveðin vakning undanfarin ár og ég held að samfélagið sé tilbú- ið, en ég held að það þurfi að fylgja þessu fast eftir til að það verði hægt að stíga þessi risastóru skref til fulls. Ég vil trúa því að samfélagið sé til- búið í það,“ segir Ásmundur Einar. Börn eigi ekki málsvara Hann segir að þótt gott samstarf hafi verið á þingi um málin og við önnur ráðuneyti, þá sé mjög auðvelt að láta þessi mál hverfa aftur ofan í skúffu. „Ef málefni verkalýðsfélaganna eru látin niður í skúffu og ekki sinnt þá mætir forysta ASÍ og BSRB og það sama á við um mörg önnur málefni. Það eru víða öf lugar hagsmuna- hreyfingar sem halda stjórnmála- mönnum við efnið, en því miður er það þannig að börn eru ekki komin á þann stað í okkar samfélagi að hafa það sterka rödd. En ég held að okkur muni takast að breyta því og þau geti veitt stjórnmálamönnum sama aðhald,“ segir Ásmundur Einar. Hann segir að þetta tali allt saman og nefnir sem dæmi mæla- borðið, sem geri opinberum aðil- um kleift að halda utan um gögn og upplýsingar svo að sveitarfélög og svæði geti horft inn á við og séð hvað þarf að laga, auk þess sem þá sé hægt að tala um málefni barna á grundvelli gagna, og vill stefna að því að Ísland sé leiðandi í málefnum barna. „Þetta er gríðarlega framsækin stefna og aðgerðaáætlun og miðað við að það sé búið að tryggja fjár- magn þá gerum við ekki aðeins vel fyrir börn hér heldur skipum okkur í fremstu röð, ef ekki bara í fyrsta sæti í heiminum, þegar kemur að réttindum barna,“ segir hann. „Þegar öllu er á botninn hvolft er þetta besta fjárfestingin til að auka hagvöxt og draga úr kostnaði við félagslega kerfið og auka skatttekj- ur,“ segir Ásmundur og bætir við: „Það var alla vega það sem ég sá fyrir mér þegar ég bað Katrínu Jakobsdóttur um leyfi til að verða barnamálaráðherra. Að við gætum stigið skref á næstu árum til að tryggja að það sé hvergi betra að vera barn en á Íslandi. Við erum ekki komin þangað en erum á réttri leið.“ Tekur áhættu í Reykjavík Ásmundur er í fyrsta sinn að bjóða sig fram í Reykjavíkurkjördæmi og samkvæmt niðurstöðum könnunar fyrr á þessu ári nær Framsóknar- flokkurinn ekki inn manni í Reykja- víkurkjördæmunum tveimur, en þar leiðir hann lista. „Ég ákvað að gefa kost á mér í Reykjavík og ástæðan fyrir því er einföld: Pólitískir ráðgjafar réðu mér frá því að einblína á börn því þau eru ekki með kosningarétt. En ég ákvað að gefa kost á mér hér og leiða Reykjavíkurkjördæmi norður, því flokkurinn þarf líka að geta selt það sem hann er að selja í þéttbýli. Það hefur hann ekki náð að gera hingað til. Ég legg þetta allt á borðið. Mig langar ekkert frekar en að fá að vera þingmaður í höfuðborginni til að geta unnið áfram að þessum málum og klárað þessi verkefni. Þetta er það sem mig langar að gera, en ef ég kemst ekki að í Reykjavík fer ég að starfa með einhverjum grasrótar- samtökum að þessu. Það er ekkert flókið,“ segir Ásmundur. Hann segir markmiðin skýr og að hann vilji vera áfram í félags- og barnamálaráðuneytinu. „Við byrjuðum á börnum því það er skynsamlegast að byrja þar. Það er stór hópur fólks í íslensku samfélagi sem er enn að glíma við áföll frá því að þau voru börn. Ég hef haft mikinn áhuga á þyngsta endanum þar, fólki sem er í fangelsi og er langt leitt í vímuefnanotkun, þar sér maður að það eru mjög margir einstaklingar sem eru enn að glíma við áföll frá því að þau voru börn. Mér finnst við þurfa að taka þann málaflokk fast- ari tökum. Ég held líka að sú vinna sem við höfum farið í þegar kemur að málefnum barna geti nýst okkur í fleiri málaflokkum og þar má sér- staklega horfa til eldra fólks þar sem við þurfum að fara í sambærilega vinnu,“ segir Ásmundur. „Mér finnst eins og vinnunni sé ekki lokið en pólitíkin er óútreikn- anleg og það getur vel verið að það komi einhver annar í ráðuneytið í september og ég vona að sá aðili hafi það sem þarf til að glíma við þessi mál af festu,“ segir Ásmundur. ■ Lovísa Arnardóttir lovisaa @frettabladid.is Ég hugsaði að ég yrði að nota næstu fjögur árin til þess að sinna þessu því það var eitthvað sem ég átti óuppgert úr minni fortíð. Mér fannst í upphafi kjörtímabils mörgum finnast þetta ekki pólitískt skynsamlegt og að þetta væri ekki málefni sem pólitískt borgaði sig að setja á oddinn, eða skipti miklu máli. 26 Helgin 26. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.