Fréttablaðið - 26.06.2021, Side 39
Fjallabyggð óskar eftir
starfskrafti til afleysinga í starf
skipulags- og tæknifulltrúa
til eins árs
Fjallabyggð óskar eftir starfskrafti til afleysinga í starf skipu-
lags- og tæknifulltrúa til eins árs.
Fjallabyggð leitar að áhugasömum og framsæknum
einstaklingi til að sinna starfi tæknifulltrúa á tímabilinu
1. ágúst 2021 – 31. júlí 2022.
Skipulags- og tæknifulltrúi starfar með deildarstjóra
tæknideildar að verkefnum á sviði byggingar-, tækni-,
lóða- og skipulagsmála.
Starfsvið:
• Umsjón með vinnu við deili- og aðalskipulag.
• Skráningu mannvirkja og lóða í Bygging, skráningarforrit
fasteignamats ásamt gerð lóðarleigusamninga.
• Undirbúningi, boðun og afgreiðslu funda skipulags- og
umhverfisnefndar, ritar fundi nefndarinnar.
• Skipulagningu og skráningu teikninga á vegum
sveitarfélagsins.
• Umsýsla er tengist dýraeftirliti.
• Móttaka erinda til tæknideildar og skráning í málakerfi
Fjallabyggðar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Tæknimenntun sem nýtist við starfið.
• Víðtæk tölvuþekking.
• Færni í að vinna með skipulagsgögn og teikningar.
• Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Skipulagshæfileikar og frumkvæði við lausn verkefna.
Launakjör eru skv. kjarasamningi Fjallabyggðar við
viðkomandi stéttarfélag.
Möguleiki er að starfið vinnist í fjarvinnu ef viðkomandi
hefur víðtæka reynslu af sambærilegu starfi.
Upplýsingar um starfið veitir: Ármann Viðar Sigurðsson
deildarstjóri tæknideildar armann@fjallabyggd.is s.464 9100
/ 864 1491
Umsóknarfrestur er til og með 9. júlí nk. Umsóknum ásamt
fylgiskjölum skal skilað í gegnum Íbúagátt- Rafræn Fjalla-
byggð á www.fjallabyggd.is.
Umsóknum um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá,
prófskírteini og stutt kynningarbréf þar sem fram kemur
hvers vegna sótt er um starfið og hvernig viðkomandi
uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til þess. Áhugasamir
einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
liggur fyrir.
Reykjanesbær
Tjarnagötu 12
230 Reykjanesbær
Sími: 421 6700
www.reykjanesbaer.is
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is
Reykjanesbær leitar að metnaðarfullum leiðtoga í starf bæjarlögmanns.
Bæjarlögmaður heyrir undir bæjarstjóra, situr í framkvæmdastjórn sveitarfélagsins
og stýrir þeim málaflokkum er heyra undir skrifstofu stjórnsýslu. Mikilvægt er að
viðkomandi búi yfir frumkvæði til að ná árangri í starfi og skal teymishugsun einkenna
bæjarlögmann ásamt staðfestu, sveigjanleika og víðsýni. Markmið bæjarlögmanns
Reykjanesbæjar er að sjá til þess að vönduð stjórnsýsla sé viðhöfð hjá sveitarfélaginu
og tryggja að starfsemi og ferlar bæjarins falli að lögum og reglum og að þeim sé
fylgt í hvívetna í stofnunum bæjarins.
Á skrifstofu stjórnsýslu starfa stjórnendur og sérfræðingar sem sinna m.a.
mannauðsmálum, jafnréttismálum, skjalastjórnun, persónuverndarmálum,
gæðamálum og upplýsinga- og tæknimálum.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að
viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.
Bæjarlögmaður
hjá Reykjanesbæ
Helstu verkefni:
• Er yfirmaður skrifstofu stjórnsýslu og sinnir daglegri stjórnun skrifstofunnar.
• Annast málflutning og aðra hagsmunagæslu fyrir hönd Reykjanesbæjar.
• Er umsagnaraðili í lögfræðilegum efnum gagnvart bæjarráði og bæjarstjórn.
• Aðstoðar svið og deildir við skjala- og samningagerð og túlkun lagaákvæða
og reglugerða.
• Veitir öllum sviðum og stofnunum lögfræðilega ráðgjöf.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kandídats- eða meistarapróf í lögfræði.
• Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi.
• Málflutningsréttindi fyrir Landsrétti kostur.
• Reynsla af málflutningi.
• Leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla.
• Mjög góð þekking og reynsla í opinberri stjórnsýslu,
stefnumótun, samningagerð og rekstri.
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf.
• Hæfni til að koma fram fyrir hönd Reykjanesbæjar og tjá sig
vel í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Sótt er um á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is, undir Laus störf.
Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí 2021.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um
hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri,
í gegnum netfangið kjartan.m.kjartansson@reykjanesbaer.is og í síma 421-6700.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Erum við
að leita að þér?