Fréttablaðið - 16.06.2021, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 16.06.2021, Blaðsíða 1
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s M I Ð V I K U D A G U R 1 6 . J Ú N Í 2 0 2 11 1 7 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R Lægra verð - léttari innkaup GOTT Á GRILLIÐ Í NÆSTU NETTÓ TILBOÐ GILDA 16. -- 20. JÚNÍ Heilt nauta rib-eye Danish Crown 2.759KR/KG ÁÐUR: 4.599 KR/KG Kjúklingabringur Grilltvenna 1.866KR/KG ÁÐUR: 2.665 KR/KG Hamborgarar 4x90 gr með brauði 798KR/PK ÁÐUR: 998 KR/PK 40% AFSLÁTTUR 30%AFSLÁTTUR 20%AFSLÁTTUR Borgarstjóri telur ekki rétt að stytta opnunartíma skemmti- staða varanlega eins og lög- regla kallar eftir. Sagan sýni að styttri opnunartími þýði ekki endilega aukið öryggi. adalheidur@frettabladid.is REYKJAVÍK Ekki stendur til að festa styttri opnunartíma skemmtistaða í miðborg Reykjavíkur, sem inn- leiddur var vegna sóttvarnaaðgerða, til frambúðar. Þetta segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. „Hættan er sú að ef styttri opn- unartími verður viðvarandi þegar samkomutakmörkunum sleppir færist skemmtanahaldið einfald- lega út á stræti og torg og í íbúða- hverfi og heimahús af því barir og veitingastaðir loka allir í einu,“ segir Dagur og vísar til stöðunnar fyrir tuttugu árum áður en opnunartími var gefinn frjálsari. „Sagan kennir okkur að það þýðir ekki endilega aukið öryggi, færri afbrot eða meira næði að hafa opn- unartímann styttri. Ég myndi hins vegar fagna því að fólk byrji fyrr og fari þá líka fyrr heim eins og hefur verið áberandi að undanförnu, það verði nýr partur af skemmtana- menningunni. Vonandi er sú þróun komin til að vera,“ segir Dagur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur kallað eftir því í fjölmiðlum að undanförnu að styttri opnunar- tími skemmtistaða verði tekinn til umræðu meðal hagsmunaaðila í ljósi reynslunnar undanfarið ár. Í svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Fréttablaðsins kemur fram að ekki hafi borist formlegt erindi til borgar- ráðs um samtal en borgarstjóri segist ræða reglulega við lögreglustjóra um málefni miðborgarinnar. „Það hafa sannarlega orðið afgerandi og jákvæðar breytingar í afbrotatölfræðinni á meðan sam- komutakmarkanir hafa verið í gildi. Þetta hefur verið tengt við styttri opnunartíma skemmtistaða og örugglega er eitthvað til í því. Það má þó ekki gleyma því að sam- komutakmarkanir vegna farald- ursins hafa ekki síður haft áhrif á aðrar skemmtanir og partý í heima- húsum. Það hefur líklega ekki síður skilað sér í fækkun afbrota í ákveðn- um brotaflokkum,“ segir Dagur og bætir við: „Reykjavíkurborg vill öruggt skemmtanalíf. Það stendur hins vegar ekki til að festa þann styttri opnunartíma, sem innleiddur var vegna sóttvarnaaðgerða, til fram- búðar. Borgin vill vinna áfram að öruggari skemmtistöðum í sam- vinnu við rekstraraðila og lögreglu og það getur verið fullt tilefni til að fjölga þeim stöðum sem taka þátt í því. Jafnframt munum við fylgjast áfram með þróuninni í góðri sam- vinnu við lögreglu og bregðast við eftir því sem tilefni verður til.“ ■ Vill ekki stytta opnunartíma skemmtistaða Sagan kennir okkur að það þýðir ekki endi- lega aukið öryggi, færri afbrot eða meira næði að hafa opnunartím- ann styttri. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri. Fyrsta þota flugfélagsins Play flaug yfir höfuðborgarsvæðið í gær og vakti töluverða athygli. Eðlilega, enda langt síðan flugvélar hafa sést á sveimi yfir borginni, hvað þá fagurrauðar. „Þetta var risa- dagur fyrir okkur,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play, skælbrosandi en vélin er sú fyrsta af þremur sem Play fær á næstu vikum.  Það er nauðsynlegt að endurreisa ferðaþjónustuna og við ætlum ekki að láta okkar eftir liggja. Við erum í skýjunum yfir þeim viðtökum sem við erum að fá hjá Íslendingum og ferðalöngum sem eru á leið til landsins,“ segir Birgir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.