Fréttablaðið - 16.06.2021, Blaðsíða 36
Við fórum að lesa
okkur til um það og þá
kom í ljós að um miðja
síðustu öld bjó í hús-
inu maður sem hét
Magnús Jónsson sem
átti eina dóttur og
drukknaði á sjó.
Skuggahverfið er ný kvik-
mynd í leikstjórn Jóns
Einarssonar Gústafssonar og
Karolinu Lewicka sem segir
frá óútskýrðum atburðum og
því hvernig áföll fyrri alda lifa
enn innra með okkur.
„Í Skuggahverfinu er allt fullt af
sögum og það sem heillar mig eru
sögur sem eru sannar og spretta upp
úr íslenskum raunveruleika, segir
Jón Gústafsson kvikmyndagerðar-
maður en Íslenska-kanadíska kvik-
myndin Shadowtown eða Skugga-
hverfið, er loks komin í almennar
sýningar. Myndin, sem leikstýrt er
af Jóni og eiginkonu hans Karolinu
Lewicka, var frumsýnd á RIFF í
fyrra en fresta þurfti almennum
sýningum margoft vegna heims-
faraldursins.
Afi í bakgrunni
Jón segir í viðtali á Fréttavaktinni á
Hringbraut að sagan á bak við kvik-
myndina komi frá sögu sem pabbi
hans sagði honum af pabba sínum,
afa Jóns, sem hafði verið skipstjóri á
togara og þarf að fara í land þar sem
konan hans, amma Jóns, veiktist
og var ekki hugað líf um nóttina.
Annar maður fær plássið á togaran-
um. „ Amma vaknar svo alveg frísk
en togarinn sökk,“ segir Jón. „Síðan
ég heyrði þessa sögu hef ég verið að
velta fyrir mér hvað hafi orðið um
hina fjölskylduna sem missti fyrir-
vinnuna.“
Jón nefnir að um miðja síðustu
öld sukku togarar reglulega, tugir
manna drukknuðu og mikill fjöldi
barna missti föður sinn. „Þetta eru
sárin í íslenskri sögu og fjölskyld-
um,“ segir hann.
Grunar glæp
Sögusviðið er Skugga hverfið á
góðæristíma árið 2007. Kanadíska
leik kon an Brittany Bristow fer með
aðal hlut verkið og leikur konu frá
Kanada, Mayu, sem erf ir hús ömmu
sinn ar í Reykja vík, konu sem hún
þekkti ekki og vissi ekki af. Maya
fer til Íslands til að ganga frá dánar-
búinu og uppgötvar þá ýmislegt um
ræt ur sín ar og fortíðina, dul ar full ir
at b urðir eiga sér stað og hana fer að
gruna að glæpur hafi verið framinn.
„Við segjum nokkra þræði í sögunni
en svörum ekki öllum spurningum
og leyfum áhorfandanum að fylla
upp í sjálfum,“ segir Jón.
Óútskýrðar tilviljanir
Hann segir að við vinnslu myndar-
innar hafi ýmislegt óútskýranlegt
gerst. „Við höfðum rétt svo breytt
nafninu á karakternum, gamla
manninum sem drukknaði, í
Magnús Jónsson, þegar við fundum
þetta litla hús í Skuggahverfinu.
Við fórum að lesa okkur til um
það og þá kom í ljós að um miðja
síðustu öld bjó í húsinu maður sem
hét Magnús Jónsson sem átti eina
dóttur og drukknaði á sjó.“
Fleira gekk á í kringum gerð
myndarinnar. Ekið var á Bristow
í Toronto þegar hún var á leið til
landsins í tökur svo hún slasaðist
og Ingamaría slasaðist lífshættulega
í Kaupmannahöfn þegar hún varð
fyrir bíl. Í myndinni er einmitt sena
þar sem bíll ekur á hana.
Áföllin búa í okkur
Myndin fjallar meðal annars um
áföll og reynslu sem erfist innan
fjölskyldna og segir Jón að hér á
landi hafi mannfall og harmur ekki
verið vegna styrjalda heldur hafi
Íslendingar missti þúsundir manna
sinna á sjó. Sár og sál þjóðarinnar
liggi í þessu meinar Jón. „Ég erfi
það að tveir af mínum forfeðrum
drukknuðu rétt fyrir utan Akranes
og fólk stóð á ströndinni og horfði á
Sárin í íslenskum fjölskyldum
„Það sem heillar
mig eru sögur
sem eru sannar
og spretta upp
úr íslenskum
raunveruleika,“
segir Jón Einars-
son Gústafsson
kvikmynda-
gerðarmaður.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Karolina Lewicka leikstjóri, Eliza Reid, Edda Björgvinsdóttir og Jón Einarsson Gústafsson. MYND/GUNNAR FREYR STEINNSON
Myndin vakti áhuga margra sem mættu á laugardaginn
í bíó . Edward Farmer, Eric Wolf , Kári Stefánsson og Val-
gerður Ólafsdóttir. MYND/GUNNAR FREYR STEINNSON
Skuggahverfið er loks komin í sýningar og gestir mættu á
laugardaginn. Bjarni Svanur Friðsteinsson, Ástrós Skúla-
dóttir og Birkir Már Árnason. MYND/GUNNAR FREYR STEINSSON
þá.“ Í þessu megi finna skýringar á
ótta fólks við forlögin.
Mystískar sögur i fjölskyldunni
Fólk eins og í hans eigin fjölskyldu
hafi verið fullt af mystískum sögum
sem Jón hefur nú notað í íslenska
bíómynd, „því þær hafa áhrif í dag“.
Reynsla kynslóðanna búi í hverri
manneskju. „Kári Stefánsson hefur
jafnvel sagt að við erfum hugsanir,“
bætir Jón við.
„Ég held því fram að þessi mynd
sé sambland af mystík, þjóðtrú,
draugum og íslenskum raunveru-
leika.“
Aðrir leikarar í myndinni eru
John Rhys-Davies, þekktur úr
Hringadróttinssögu, Edda Björg-
vins dótt ur, Kol beinn Arn björns-
son, Ingamaría Eyj ólfs dótt ir og Atli
Óskar Fjalars son.
Mynd in er sýnd í Há skóla bíói og
Sam bíó un um í Álfa bakka. ■
Linda Blöndal
linda
@frettabladid.is
LÍFIÐ 16. júní 2021 MIÐVIKUDAGUR