Fréttablaðið - 16.06.2021, Side 13

Fréttablaðið - 16.06.2021, Side 13
Mansal er gróft mannréttindabrot sem felst í að brjóta gegn friðhelgi einstaklings. Um er að ræða hrylli- lega birtingarmynd mannvonsku og grimmdar. Brotastarfsemin beinist gegn frjálsræði brotaþola og helgustu persónuréttindum í þeim tilgangi að hagnýta líkama viðkomandi, vinnukrafta eða þekk- ingu í annars þágu. Í mars 2019 kynntu stjórnvöld áherslur í baráttunni gegn man- sali og annars konar hagnýtingu einstaklinga í viðkvæmri stöðu. Áherslurnar mæla fyrir um tíu aðgerðir, en þar á meðal er kveðið á um endurskoðun löggjafar á þessu sviði. Frumvarp um breyt- ingu á ákvæði 227. gr. a. almennra hegningarlaga um mansal var lagt fram á Alþingi í febrúar sl. og sam- þykkt á Alþingi í lok síðustu viku. Lúta breytingar á ákvæðinu að refsinæmi mansals í þeim tilgangi að bæta enn frekar vernd þolenda og auðvelda málsókn á hendur gerendum. Með samþykkt frum- varpsins hefur ákvæði almennra hegningarlaga um mansal verið uppfært í samræmi við lagaþróun á Norðurlöndum og alþjóðlega sátt- mála og tryggt að íslensk stjórnvöld standi við þær skuldbindingar sem þau hafa tekist á hendur með því að fullgilda alþjóðlega samninga sem hafa það að markmiði að berjast gegn skipulagðri brotastarfsemi og mansali. Mansal er eitt alvarlegasta brot á mannréttindum sem fyrirfinnst. Gerandinn beitir blekkingum og þvingun til að viðhalda því ástandi að hagnýta aðra manneskju, oftast í fjárhagslegum tilgangi. Mansal er oftar en ekki liður í skipulagðri glæpastarfsemi, svo sem vændi, innflutningi og ræktun fíkniefna og annarri starfsemi á vinnu- markaðnum. Breyting á ákvæði almennra hegningarlaga eykur vernd brotaþola og liðkar fyrir því að mál er varða grun um mansal fái framgang innan réttarvörslu- kerfisins og gerendur sæti refsingu fyrir þessi alvarlegu brot, en aðeins hefur þrisvar verið ákært fyrir man- sal á Íslandi og aðeins sakfellt í einu þeirra. Ekki er unnt að horfa fram- hjá þeirri dapurlegu staðreynd að mansal þrífst á Íslandi. Vernd þolenda mansals og aðgangur að nauðsynlegri aðstoð og þjónustu hefur aukist til muna með opnun samhæfingarmiðstöðvar um mansal í Bjarkarhlíð í júlí sl. Megin- hlutverk samhæfingarmiðstöðvar er að samræma verklag og viðbrögð Meiri vernd fyrir þolendur mansals Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir dómsmála- ráðherra. þegar grunur leikur á mansali, m.a. með því að kalla til nauðsynlega fagaðila, svo sem af vinnumarkaðn- um, lögreglu og aðra sem koma að velferðarþjónustu til þolenda man- sals. Um 15 mál hafa verið tilkynnt til samhæfingarmiðstöðvarinnar frá því hún tók til starfa. Eitt beittasta vopnið í baráttunni gegn mansali er að geta borið kennsl á mansal og þekkja úrræðin. Í dag opnar upplýsingagátt um mansal á vefsíðunni www.112.is. Þar geta þol- endur leitað upplýsinga um úrræði fyrir þolendur mansals og komist í samband við neyðarvörð sem veitir ráðgjöf um möguleg úrræði og útveg- ar nauðsynlega aðstoð og þjónustu, hvort sem það er frá lögreglu eða öðrum. Á síðunni eru einnig upplýs- ingar fyrir almenning um einkenni mansals og hvað hægt er að gera ef grunur leikur á að einstaklingur sé þolandi mansals. Þolendur mansals eru oft í viðkvæmri stöðu og veigra sér við að leita sér aðstoðar af ótta við afleiðingarnar. Því er það í okkar höndum að láta vita og tilkynna ef við verðum vör við eitthvað óeðli- legt í okkar umhverfi. Ég hvet því alla að kynna sér einkenni mansals á www.112.is og tilkynna, í því skyni að aðstoða þolendur að komast úr þeim hörmulegu aðstæðum sem þeir búa við og stöðva brotastarf- semi gerenda. n Ekki er unnt að horfa fram hjá þeirri dapur- legu staðreynd að man- sal þrífst á Íslandi. Í dag opnar upp- lýsingagátt um mansal á vefsíðunni www.112. is. Þar geta þolendur leitað upp- lýsinga um úrræði fyrir þolendur mansals og komist í samband við neyðarvörð sem veitir ráðgjöf um möguleg úrræði og útvegar nauð synlega aðstoð og þjónustu, hvort sem það er frá lögreglu eða öðrum. fjölskylduna“ „Ég kem með Á ferdalag.is getur þú fundið allt það helsta um ævintýrin sem Ísland hefur upp á að bjóða. Komdu með í ferðalag! Skoðun 13MIÐVIKUDAGUR 16. júní 2021

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.