Fréttablaðið - 16.06.2021, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 16.06.2021, Blaðsíða 22
Íslenzk matvælafyrirtæki þurfa mörg hver að nota mjólkur- og undanrennuduft í framleiðslu sína, sum í stórum stíl. Þessi hráefni eru notuð t.d. í súkkulaði og annað sælgæti, ís, kex og kökur og unnar kjötvörur. Tvær aðgerðir stjórnvalda ráða því að innlendur matvælaiðnaður er þvingaður til að kaupa þessar vörur af einu fyrirtæki, Mjólkur- samsölunni, á verði sem er langt yfir heimsmarkaðsverði. Annars vegar hefur undanþága mjólkur- iðnaðarins frá samkeppnislögum leitt af sér algjöra yfirburðastöðu MS og Kaupfélags Skagfirðinga á mjólkurmarkaðnum. Það er engin innlend samkeppni í sölu mjólkur- og undanrennudufts. Hins vegar eru gífurlega háir tollar á innfluttu mjólkurdufti þar sem Bænda- samtökin náðu á sínum tíma „frá- bærum“ samningi við stjórnvöld um að tollarnir skyldu hækkaðir duglega. Það er engin erlend sam- keppni heldur. Hver sá sem rekur fyrirtæki getur sett sig í þau spor að vera þvingaður til að kaupa aðföng af einu fyrirtæki eingöngu. Viðskiptavinir MS kaupa ekki mjólkurduft vegna verðsins eða gæðanna eftir að hafa skoðað aðra kosti. Þeir kaupa vöruna af því að valdhafarnir hafa rænt þá öllum eðlilegum valkostum. Það er í hæsta máta óeðlileg staða. Sættir matvælaiðnaðurinn sig við mismunun? Við þetta bætist að verðið sem Mjólkursamsalan lætur innlenda viðskiptavini sína greiða fyrir mjólkurduft er hátt í tvöfalt hærra en það sem erlendir viðskiptavinir sama fyrirtækis þurfa að borga. Þar er um að ræða erlend matvælafyrir- tæki, sem oft og tíðum eru í beinni samkeppni við íslenzk matvæla- fyrirtæki. Sú spurning vaknar óneitanlega hversu lengi íslenzkur matvælaiðn- aður geti þolað þessa mismunun. Nú er t.d. stutt síðan erlendir fjárfestar, í matvælaiðnaði á Norðurlöndum, keyptu allt hlutaféð í stærsta sæl- gætisframleiðanda landsins. Hvern- ig ætli gangi að útskýra fyrir þeim að íslenzka mjólkurduftið sem þeir geta keypt ódýrt erlendis sé dýrara á Íslandi, þar sem það er framleitt? Að það sé í raun ódýrara að fram- leiða úr íslenzku hráefni erlendis og líklega allra bezt að framleiða bara erlendis úr erlendu hráefni? Því hefur verið haldið fram að undanþága mjólkuriðnaðarins frá samkeppnislögum, sem leiddi af sér sameiningu allra mjólkuraf- urðastöðva í eina samstæðu, hafi leitt af sér gríðarlega hagræðingu í mjólkuriðnaðinum. Sú hagræðing dugar greinilega ekki til að mjólkur- iðnaðurinn treysti sér til að selja öðrum matvælaiðnaði aðföng á samkeppnishæfu verði. Mjólkuriðnaðurinn vill ekki skipta við sjálfan sig Ýmislegt bendir til að íslenzkur mjólkuriðnaður líti ekki einu sinni svo á sjálfur að íslenzkar prótín- vörur eins og undanrennuduftið og skyrið séu alþjóðlega samkeppnis- færar. Á sínum tíma þrýsti mjólkur- iðnaðurinn mjög á um að fá stærri tollfrjálsan innf lutningskvóta í löndum Evrópusambandsins fyrir íslenzka skyrið. Hins vegar ber svo við að eftir að tollasamningur Íslands og ESB, þar sem skyrkvót- inn rúmlega tífaldaðist, tók gildi árið 2018 hefur útflutningur á skyri til ESB minnkað. Ástæðan er sú að Mjólkursamsalan kýs fremur að framleiða skyr samk væmt „íslenzkri uppskrift“ í aðildarríkjum ESB úr þarlendri mjólk. Líklegasta skýringin á því, þótt forsvarsmenn MS fáist ekki til að segja það opin- berlega, er að íslenzku hráefnin til framleiðslunnar séu einfaldlega of dýr. Félag atvinnurekenda greindi frá því á dögunum að í viðræðum um fríverzlunarsamning Íslands og Bretlands hefðu brezk stjórnvöld boðið umtalsverðan tollfrjálsan innf lutningskvóta fyrir íslenzkt undanrennuduft, á móti auknum innflutningsheimildum fyrir brezk- ar búvörur á Íslandi. FA furðaði sig á að í landbúnaðinum hefðu menn ekki viljað grípa þetta tækifæri, þar sem þá hefði hin nýja skyrverk- smiðja Íseyjar Skyr í Wales getað unnið skyr úr íslenzku hráefni. Guðmundur Þorgeirsson, for- maður Bændasamtakanna, sagði um þetta í grein í Bændablaðinu: „Ef þetta hefði nú allt gengið eftir þá átti að f lytja út iðnaðarvöru fyrir full- unnar landbúnaðarvörur í skiptum. Hvaða heilvita manni hefði dottið í hug að flytja út störf svo mögulegt væri að koma út iðnaðarvöru á verði sem hefði aldrei staðist samkeppni í hinum stóra heimi?“ Þar höfum við það – meira að segja formaður Bændasamtakanna staðfestir að íslenzka undanrennu- duftið sé ekki samkeppnisfært. Hann virðist hins vegar ekki átta sig á því að með núverandi fyrir- komulagi er einmitt verið að flytja út störf frá innlendum framleiðslu- fyrirtækjum sem eru í lakari sam- keppnisstöðu vegna þessarar sér- hagsmunagæzlu í þágu einokunar og okurs. Stjórnvöld verða að stíga inn í Meðal hagsmunaaðila í landbúnað- inum virðist eindregin samstaða um að það skuli pína íslenzkan iðnað til að kaupa aðföng á ósam- keppnisfæru verði. Það er ekki við því að búast að Mjólkursamsalan skipti að eigin frumkvæði um stefnu í þessu máli og reyni að bjóða inn- lendum viðskiptavinum sínum verð sem stenzt alþjóðlegan samanburð. Hér verða stjórnvöld að stíga inn í, annars vegar með því að afnema undanþágu mjólkuriðnaðarins frá samkeppnislögum, og hins vegar með því að lækka tolla þannig að matvælaiðnaðurinn geti nálgazt aðföng á skynsamlegu verði. Núverandi staða er algjörlega óviðunandi. Það verður forvitnilegt að sjá, nú þegar kosningar nálgast, hverjir vilja breyta henni og hverjir vilja óbreytt ástand. ■ Varan okkar er ekki samkeppnisfær – kaupið hana samt Ólafur Stephen- sen, fram- kvæmdastjóri Félags atvinnu- rekenda. Meðal hagsmunaaðila í landbúnaðinum virðist eindregin samstaða um að það skuli pína íslenzkan iðnað til að kaupa aðföng á ósamkeppnis- færu verði. Eldsneytisskortur í Líbanon Hagkerfi Líbanon er í molum um þessar mundir. Fjármálakreppa hefur leikið landið grátt síðastliðin tvö ár. Gjaldeyrisskortur er í landinu sem hefur leitt af sér skort á innfluttum nauðsynjavörum á borð við eldsneyti. Á myndinni raða ökumenn sér upp í röð við bensínstöð í höfuðborginni Beirút. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY ■ Skotsilfur Múlbundinn Jón Gunnar Jónsson forstjóri Bankasýslunnar. Hlutafjárútboð Íslandsbanka hefur gengið vel og það endur- speglast í gífurlegri eftirspurn. Þegar almenningur sýnir útboðinu jafn mikinn áhuga og raun ber vitni vakna spurningar um þær tak- markanir sem hafa verið á faglegri, opinberri umræðu um útboðið. Bankasýslan hefur ráðið svo mörg fjármálafyrirtæki til að koma að útboðinu með einum eða öðrum hætti að varla hefur fundist við- mælandi á fjármálamarkaði sem ekki er bundinn þagnarskyldu þar til um mánuði eftir að útboðinu lýkur. Opinber umræða er fátæk- legri fyrir vikið og ekki bætir úr skák að Evrópulöggjöfin MiFid II hefur sniðið fjárfestingaráðgjöf fyrirtækja þröngan stakk. ■ Gunnar Smári Egilsson formaður Sósíalistaflokksins. Gunnar Smári Egilsson, for- maður Sósíal- istaflokksins, er fullyrðingaglaður í gagnrýni sinni á ríkjandi skipan þjóðfélagsins. Nú síðast tók hann fyrir leigusamning ríkisins við félagið Íþöku vegna leigu skrifstofuhúsnæðis undir Skattinn. Frá sjónarhóli Gunnars Smára er alltaf hagkvæmara fyrir ríkið að eiga sínar eigin húseignir og langtímasamningur við einka- rekið fasteignafélag jafngildir því að ríkið gefi heilt skrifstofuhúsnæði til fjármagnseigenda. En röksemdar- færslan hlýtur að ná lengra. Í krafti stærðar sinnar ætti ríkið einfaldlega að segja upp öllum samningum um aðkeypta þjónusta og sinna henni sjálft með ódýrari hætti. Eða hvað? Þegar á reyndi kom raunveruleik- inn sósíalismanum í koll þótt kenn- ingarnar segðu annað. ■ Sigurður Kristinsson forstjóri SV AirFinance. Alþjóðlegi fjár- festingarisinn KKR hefur komið á fót nýju félagi, AV AirFinance, sem sérhæfir sig í fjármögnun flugfélaga. Nýja félagið kom inn á markaðinn með látum og keypti 800 milljóna dala lánasafn, jafnvirði 97 milljarða króna, sem nær yfir fleiri en 60 far- þegaþotur. Athygli vekur að Sigurður „Siggi“ Kristinsson hefur verið ráð- inn forstjóri SV AirFinance en hann hefur áratuga reynslu á þessu sviði. Sigurður stofnaði Volito Aviation Services í Svíþjóð og var forstjóri þess í 14 ár en fyrirtækið veitti meðal annars þjónustu og ráðgjöf til Gold- man Sachs. Áður starfaði Sigurður um langt skeið í Lúxemborg. ■ Alltaf hagkvæmara Stýrir 97 milljörðum MARKAÐURINN6 16. júní 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.