Fréttablaðið - 16.06.2021, Síða 33
Okkur sýningarstjór-
unum finnst eins og
listamennirnir séu
fulltrúar nýrra tíma í
svo mörgum skilningi.
Iðavöllur er sýning fjórtán
samtímalistamanna í Lista-
safni Reykjavíkur, Hafnarhús-
inu. Sýningarstjórar eru Ólöf
Kristín Sigurðardóttir, Aldís
Snorradóttir og Markús Þór
Andrésson.
„Okkur fannst komið að því að
taka stöðuna á þessari kynslóð
listamanna. Þetta er fólk sem hefur
byggt upp listasenuna á þessari
öld, áunnið sér sess og er á ákveðn-
um hápunkti á ferli sínum,“ segir
Markús Þór
„Á þessari sýningu og í með-
fylgjandi sýningarskrá erum við
að skoða þá þætti sem einkenna
kynslóðina. Viðfangsefni lista-
mannanna og aðferðir eru ólík en
það sem sameinar er að þau falla á
milli tveggja tímabila, fram að því
sem gerist um aldamótin og því
sem gerist eftir aldamótin. Stærsta
breytingin á þessum tíma er ef til
vill hin stafræna bylting, en það er
auðvitað fjölmargt annað. Margar
spurningar hafa vaknað um þær
breytingar sem eiga sér stað í til-
vist okkar og þær skila sér til dæmis
í verkum þar sem listamenn tjá
upplifun okkar af náttúrunni og
umhverfinu og því hvernig skyn-
heimur okkar er að breytast sem og
skilningur á sögu og samfélagi.“
Fulltrúar nýrra tíma
Verkin á sýningunni eru ný og sér-
staklega gerð fyrir sýninguna sem
heitir Iðavöllur. Iðavöllur er sam-
komustaður goðanna í norrænni
goðafræði og þar mætast þau við
sköpun heimsins. „Okkur sýningar-
stjórunum finnst eins og listamenn-
irnir séu fulltrúar nýrra tíma í svo
mörgum skilningi og þegar kom að
því að gefa sýningunni heiti leit-
uðum við Ólöf og Aldís að einhvers
konar tengingu við nýtt upphaf.
Iðavöllur er þar sem æsirnir hittust
í fyrsta sinn til að skapa heiminn og
þegar þeir þurftu að byggja hann
upp á ný eftir Ragnarök. Þannig að í
goðsögulegu tilliti er Iðavöllur hlut-
laus byrjunarreitur þar sem hægt er
að byggja upp eitthvað nýtt,“ segir
Markús.
Sýningin er um allt Hafnarhúsið
sem nú er með nýjum inngangi um
portið frá Naustum við Kolaportið.
Listamennirnir höfðu margir
hverjir rýmið í huga við gerð verka
sinna. „Við erum nýbúin að fagna
því að Listasafn Reykjavíkur er
búið að vera í tuttugu ár í húsinu.
Húsið hefur haft áhrif á listasöguna
hér á landi vegna þess að það hefur
skapað nýjan vettvang og stundum
Hittust æsir
á Iðavelli
Markús Þór er einn af sýningarstjórum sýningarinnar. Verk Bjarka Bragasonar sést í bakgrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Verk Önnu Rúnar Tryggvadóttur hlýtur að heilla listunnendur. MYND/AXEL SIGURÐARSON
Listamennirnir
n Anna Júlía Friðbjörnsdóttir
n Anna Rún Tryggvadóttir
n Arna Óttarsdóttir
n Arnar Ásgeirsson
n Bjarki Bragason
n Dodda Maggý
n Elín Hansdóttir
n Eva Ísleifs
n Guðmundur Thoroddsen
n Hildigunnur Birgisdóttir
n Páll Haukur Björnsson
n Rebecca Erin Moran
n Styrmir Örn Guðmundsson
n Örn Alexander Ámundason
bregðast listamenn líka beint við
nánasta umhverfi í verkum sínum.
Nokkur verk á þessari sýningu fjalla
beinlínis um rýmið sem þau eru í,
þar er sérstaklega horft til arkitekt-
úrs og starfseminnar,“ segir Markús
og bendir á verk Elínar Hansdóttur
sem beinir athyglinni að þeim ólíku
sjónarhornum sem listasafn býður
áhorfendum sífellt upp á.
Voldugt plöntusafn
Blaðamaður tók viðtalið við Mark-
ús í einum af fjölmörgum sölum
safnsins. Í þeim sal er eitt verk
sem yfirtekur rýmið, það er eftir
Bjarka Bragason og sýnir voldugt
plöntusafn. „Vinir Bjarka í Þýska-
landi erfðu eftir forföður sinn
þetta plöntusafn sem veitir inn-
sýn í umhverfið á ákveðnum stað
og stund. Listamaðurinn tengir
plöntusafnið síðan við ákveðinn
kima íslenskrar náttúru á okkar
tímum og við þá speglun kemur eitt
og annað fram um breytileg tengsl
manns og náttúru,“ segir Markús.
COVID setti sannarlega strik í
reikninginn í myndlistarheimin-
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
um. Hjá Listasafni Reykjavíkur var
ákveðið að leggja árið í ár áherslu á
að vinna með starfandi samtíma-
listamönnum. „Við erum að búa til
verkefni í samstarfi við allar kyn-
slóðir lifandi listamanna. Það sést
til dæmis núna á Kjarvalsstöðum, í
Ásmundarsafni, á nýlegri sýningu
á verkum Errós og og samtímalista-
manna og svo á þessari glæsilegu
sýningu,“ segir Markús Þór. n
kolbrunb@frettabladid.is
Bjargey Ólafsdóttir sýnir ljósmyndir
í Gamla Skólahúsinu á Eskifirði.
Opnunin er á morgun, þann 17.
júní kl. 15, en síðan verður sýningin
opin allar helgar á milli kl. 13 og 16
út júlímánuð.
Sýningin samanstendur af tólf
ljósmyndum af Samoyed-hundum.
Samoyed-hundarnir, sem líkjast
nánast draugum, voru upphaflega
ræktaðir til að veiða, draga sleða, og
smala hreindýrum.
Bjargey Ólafsdóttir lærði ljós-
myndun, málaralist og blandaða
tækni í Myndlista- og handíðaskóla
Íslands og Listaakademíunni í Hels-
inki, og handritsgerð og leikstjórn
í Binger Filmlab í Amsterdam. Hún
hefur gert nokkrar kvikmyndir og
sýnt verk sín víða um lönd. n
Draugahundur á Eskifirði
Bjargey Ólafsdóttir sýnir ljósmyndir af hundum.
Menning 21MIÐVIKUDAGUR 16. júní 2021