Fréttablaðið - 16.06.2021, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 16.06.2021, Blaðsíða 33
Okkur sýningarstjór- unum finnst eins og listamennirnir séu fulltrúar nýrra tíma í svo mörgum skilningi. Iðavöllur er sýning fjórtán samtímalistamanna í Lista- safni Reykjavíkur, Hafnarhús- inu. Sýningarstjórar eru Ólöf Kristín Sigurðardóttir, Aldís Snorradóttir og Markús Þór Andrésson. „Okkur fannst komið að því að taka stöðuna á þessari kynslóð listamanna. Þetta er fólk sem hefur byggt upp listasenuna á þessari öld, áunnið sér sess og er á ákveðn- um hápunkti á ferli sínum,“ segir Markús Þór „Á þessari sýningu og í með- fylgjandi sýningarskrá erum við að skoða þá þætti sem einkenna kynslóðina. Viðfangsefni lista- mannanna og aðferðir eru ólík en það sem sameinar er að þau falla á milli tveggja tímabila, fram að því sem gerist um aldamótin og því sem gerist eftir aldamótin. Stærsta breytingin á þessum tíma er ef til vill hin stafræna bylting, en það er auðvitað fjölmargt annað. Margar spurningar hafa vaknað um þær breytingar sem eiga sér stað í til- vist okkar og þær skila sér til dæmis í verkum þar sem listamenn tjá upplifun okkar af náttúrunni og umhverfinu og því hvernig skyn- heimur okkar er að breytast sem og skilningur á sögu og samfélagi.“ Fulltrúar nýrra tíma Verkin á sýningunni eru ný og sér- staklega gerð fyrir sýninguna sem heitir Iðavöllur. Iðavöllur er sam- komustaður goðanna í norrænni goðafræði og þar mætast þau við sköpun heimsins. „Okkur sýningar- stjórunum finnst eins og listamenn- irnir séu fulltrúar nýrra tíma í svo mörgum skilningi og þegar kom að því að gefa sýningunni heiti leit- uðum við Ólöf og Aldís að einhvers konar tengingu við nýtt upphaf. Iðavöllur er þar sem æsirnir hittust í fyrsta sinn til að skapa heiminn og þegar þeir þurftu að byggja hann upp á ný eftir Ragnarök. Þannig að í goðsögulegu tilliti er Iðavöllur hlut- laus byrjunarreitur þar sem hægt er að byggja upp eitthvað nýtt,“ segir Markús. Sýningin er um allt Hafnarhúsið sem nú er með nýjum inngangi um portið frá Naustum við Kolaportið. Listamennirnir höfðu margir hverjir rýmið í huga við gerð verka sinna. „Við erum nýbúin að fagna því að Listasafn Reykjavíkur er búið að vera í tuttugu ár í húsinu. Húsið hefur haft áhrif á listasöguna hér á landi vegna þess að það hefur skapað nýjan vettvang og stundum Hittust æsir á Iðavelli Markús Þór er einn af sýningarstjórum sýningarinnar. Verk Bjarka Bragasonar sést í bakgrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Verk Önnu Rúnar Tryggvadóttur hlýtur að heilla listunnendur. MYND/AXEL SIGURÐARSON Listamennirnir n Anna Júlía Friðbjörnsdóttir n Anna Rún Tryggvadóttir n Arna Óttarsdóttir n Arnar Ásgeirsson n Bjarki Bragason n Dodda Maggý n Elín Hansdóttir n Eva Ísleifs n Guðmundur Thoroddsen n Hildigunnur Birgisdóttir n Páll Haukur Björnsson n Rebecca Erin Moran n Styrmir Örn Guðmundsson n Örn Alexander Ámundason bregðast listamenn líka beint við nánasta umhverfi í verkum sínum. Nokkur verk á þessari sýningu fjalla beinlínis um rýmið sem þau eru í, þar er sérstaklega horft til arkitekt- úrs og starfseminnar,“ segir Markús og bendir á verk Elínar Hansdóttur sem beinir athyglinni að þeim ólíku sjónarhornum sem listasafn býður áhorfendum sífellt upp á. Voldugt plöntusafn Blaðamaður tók viðtalið við Mark- ús í einum af fjölmörgum sölum safnsins. Í þeim sal er eitt verk sem yfirtekur rýmið, það er eftir Bjarka Bragason og sýnir voldugt plöntusafn. „Vinir Bjarka í Þýska- landi erfðu eftir forföður sinn þetta plöntusafn sem veitir inn- sýn í umhverfið á ákveðnum stað og stund. Listamaðurinn tengir plöntusafnið síðan við ákveðinn kima íslenskrar náttúru á okkar tímum og við þá speglun kemur eitt og annað fram um breytileg tengsl manns og náttúru,“ segir Markús. COVID setti sannarlega strik í reikninginn í myndlistarheimin- Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is um. Hjá Listasafni Reykjavíkur var ákveðið að leggja árið í ár áherslu á að vinna með starfandi samtíma- listamönnum. „Við erum að búa til verkefni í samstarfi við allar kyn- slóðir lifandi listamanna. Það sést til dæmis núna á Kjarvalsstöðum, í Ásmundarsafni, á nýlegri sýningu á verkum Errós og og samtímalista- manna og svo á þessari glæsilegu sýningu,“ segir Markús Þór. n kolbrunb@frettabladid.is Bjargey Ólafsdóttir sýnir ljósmyndir í Gamla Skólahúsinu á Eskifirði. Opnunin er á morgun, þann 17. júní kl. 15, en síðan verður sýningin opin allar helgar á milli kl. 13 og 16 út júlímánuð. Sýningin samanstendur af tólf ljósmyndum af Samoyed-hundum. Samoyed-hundarnir, sem líkjast nánast draugum, voru upphaflega ræktaðir til að veiða, draga sleða, og smala hreindýrum. Bjargey Ólafsdóttir lærði ljós- myndun, málaralist og blandaða tækni í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Listaakademíunni í Hels- inki, og handritsgerð og leikstjórn í Binger Filmlab í Amsterdam. Hún hefur gert nokkrar kvikmyndir og sýnt verk sín víða um lönd. n Draugahundur á Eskifirði Bjargey Ólafsdóttir sýnir ljósmyndir af hundum. Menning 21MIÐVIKUDAGUR 16. júní 2021

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.