Fréttablaðið - 16.06.2021, Síða 14

Fréttablaðið - 16.06.2021, Síða 14
Ef það klikkar í fyrstu þá reynirðu aftur Berglind Björg Þorvaldsdóttir brenndi af í góðu færi í fyrri hálfleik en það kom ekki að sök þar sem Eyjamærin kom Íslandi yfir síðar í leiknum. Stelpurnar okkar fylgdu eftir góðum sigri á Írum fyrir helgi með öðrum sigri í gær og fara þær því fullar sjálfstrausts inn í undankeppni HM í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Einar Óli Þorvarðarson, sjúkraþjálfari hjá Val, segir að hjartaáfallið sem Christian Eriksen fékk um síðustu helgi ætti að vekja félögin á Íslandi til umhugsunar um verkferla og aðbúnað á leikjum þeirra. hjorvaro@frettabladid.is FÓTBOLTI Þeir sem urðu vitni að leik Danmerkur og Finnlands á Evrópumótinu í fótbolta karla á laugardaginn var voru slegnir óhug þegar Christian Eriksen, leikmaður danska liðsins, fór í hjartastopp. Til allrar hamingju voru við- bragðsaðilar snöggir á svæðið og náðu að bjarga lífi Eriksen. Einar Óli Þorvarðarson, sjúkraþjálfari Vals, segir atvikið þurfa að vekja íslensk félög til umhugsunar um að skerpa á verkferlum sínum og fara yfir hvernig bregðast skuli við í atvikum eins og þessum. „Verkferlar eru í grunninn bara eins og við lærum úr endurlífg- unarnámskeiðum. Við metum hættuna, athugum svörun ein- staklingsins, öndunarveg, öndun, púls sem og meðvitund. Eftir að kanna þetta allt tökum við svo ákvörðun um hver séu næstu skref, endurlífgun eða hver næstu skref verða,“ segir Einar Óli um fyrstu viðbrögð. „Við sjúkraþjálfarar eigum flest að kunna þetta að mínu mati. En aðrir verkferlar eru því miður ekki mjög skýrir finnst mér á venju- legum deildarleikjum. Það eru eingöngu sjúkraþjálfarar á leikjum, nær alltaf, ekki læknar, bráðaliðar og sjaldnast er sjúkrabíll á svæðinu. Það eiga reyndar að vera stuð- tæki á öllum völlum, eða í vallar- húsum vallanna. Að mínu mati má gera betur og það getur tapast mikilvægur tími í að sækja tækið ef svona atvik kemur upp. Hjarta má ekki vera stopp nema í örfáar mínútur ef við viljum koma í veg fyrir heilaskaða. Því tel ég að við sem erum á vellinum ættum að vera með stuðtæki í sérstakri neyðar- tösku á hliðarlínunni til að spara okkur tíma, sem gæti skipt sköpum og bjargað miklu,“ segir hann. Þarf að viðhalda þekkingunni „Þannig verkferla ættum við að setja í gang og staðla betur að mínu mati. Svo má bæta við að við sjúkra- þjálfarar fáum ekki endilega þá menntum sem við þurfum í háskóla- náminu okkar til að takast á við slys sem gætu gerst á vellinum. Við nemum auðvitað fyrstu hjálp og endurlífgun, en ég myndi vilja gera betur. Að mínu mati ætti að þurfa leyfi til að starfa sem hluti af viðbragðs- teymi á leikjum með KSÍ. Ef við sjúkraþjálfarar viljum standa okkur betur og vera betur í stakk búin til að takast á við svona slys sem og önnur á leikvellinum þá þurfum við að sækja fleiri námskeið á þessu sviði, oftar og með styttra millibili til að halda þekkingunni ferskri,“ segir Einar Óli. „KSÍ var með eitt slíkt hér fyrir nokkrum árum en því miður hefur ekki orðið eftirfylgni á því sem er miður. Það var síðan annað nám- skeið sem kollegi minn f lutti sér- staklega inn til landsins sem fjallaði um bráðahjálp á leikvelli og meðal annars endurlífgun með stuðtækj- um. Það var alveg frábært að fá það. En það þarf að vera meira af þessu að mínu mati,“ segir sjúkraþjálfarinn um atriði sem mætti bæta. Félögin þurfa stöðugt að minna á Klara Bjartmarz, framkvæmda- stjóri KSÍ, segir að sambandið geti veitt félögunum ráðgjöf hvað skyndihjálp varðar og aðstoð við Hvatning til félaga að skerpa verkferla utanumhald reglulegra hjartaskoð- ana leikmanna og námskeiðahald. Það sé hins vegar ómögulegt fyrir KSÍ að sjá um að aðbúnaður sé í lagi á öllum deildarleikjum eða hafa eftirlit með að félögin sinni sínu hlutverki eins og best verði á kosið. „Það kemur fram í leyfiskerfi KSÍ að félögin sem falla þar undir þurfi að hafa í sinni þjónustu lækna og sjúkraþjálfara. Þá þarf árlega að senda leikmenn í hjartaskoðun. Þar að auki er ákvæði í staðalsamningi KSÍ að til staðar hjá félögum þurfi að vera læknir og sjúkraþjálfari. Það er ekki möguleiki fyrir KSÍ að hafa eftirlit með því að þessu sé sinnt. Þetta atvik er áminning um það hversu mikilvægt sé að fólk fari á námskeið í skyndihjálp. Þá er það félaganna að búa til verkferla með þeim einstaklingum sem þeir skipa í viðbragðsteymi sitt. Mikilvægt er svo að starfsmenn félaganna séu fullmeðvitaðir um það hvar hjartastuðtæki er stað- sett þannig að hægt sé að komast í það eins skjótt og auðið er,“ segir Klara. n Fótbolta- heimurinn stóð saman á laugardagnn og bað bænir þegar Christian Eriksen barðist fyrir lífi sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Einar Óli Þorvarðarson, sjúkraþjálfari hjá Val. Anfield mun taka 61.000 í sæti. hjorvaro@frettabladid.is FÓTBOLTI Enska fótboltafélaginu Liverpool hefur verið veitt leyfi af  borgaryfirvöldum til þess að stækka Anfield um 7.000 sæti.   Eftir þær framkvæmdir getur Liverpool tekið á móti 61.000 áhorf- endum á heimaleiki sína.  Borgaryfirvöld hafa  ákveðið að setja 60 milljónir punda úr borg- arsjóði í framkvæmdina. Andy Hughes, framkvæmdastjóri Liverpool, segir þetta vera gríðar- legan áfanga fyrir félagið.  Auk þess að stækka stúkuna verð- ur byggt nýtt svæði fyrir fjölskyldur til þess að koma saman fyrir leiki Liverpool og veitingaaðstaða fyrir boðsgesti. Á fundi borgarstjórnar Liverpool- borgar var Liverpool einnig  veitt heimild til þess að halda sex stóra viðburði á næstu fimm árum, annað hvort  tónleika eða annars konar atburði.   Ekki var samstaða um þá ákvörð- un en hópur fólks hefur áhyggjur af ágangi á Stanley Park í kringum viðburðina. Meirihluti studdi hins vegar tillöguna. n Liverpool heimilt að stækka Anfield hjorvaro@frettabladid.is FÓTBOLTI Réttarhöld standa nú yfir í Argentínu vegna andláts þjóðhetj- unnar Diego Armando Maradona sem andaðist rúmlega sextugur að aldri í nóvember á síðasta ári. Í gær var tekinn vitnisburður af einum hjúkrunarfræðinganna sem ákærðir hafa verið fyrir manndráp af gáleysi.   Hjúkrunarfræðingurinn Ricardo Almiron var á næturvöktum sem hjúkrunarfræðingur knattspyrnu- goðsagnarinnar. Almiron sagði fyrir rétti í gær að honum hafi verið uppálagt að trufla ekki nætursvefn Maradona.   Almiron er einn sjö hjúkr- unarfræðinga sem sakaður er um vanrækslu í starfi í kringum andlát Maradona. Hann sagði Mara- dona hafa andað eðlilega og verið í fastasvefni þegar hann kannaði ástand hans nokkrum klukku- stundum áður en hann lést. Maradona  fékk hjartaáfall  sem varð banamein hans en hann hafði skömmu fyrir andlátið gengist undir aðgerð vegna  blóðtappa í heila. Fyrir rétti hefur verið lagt fram álit 20 óháðra sérfræðinga þar sem fram kemur að umönnun Maradona hafi verið ábótavant. n Var bannað að vekja Maradona Stytta af knattspyrnugoðsögninni. ÍÞRÓTTIR 16. júní 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.