Fréttablaðið - 16.06.2021, Blaðsíða 40
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Árna
Helgasonar
n Bakþankar
Ég var ekki fyrr búinn að lesa
samsæriskenninguna um að
allir sem fái bóluefni verði dánir
innan þriggja ára þegar sms-ið
kom. Janssen-glussinn fyrir mig.
Við erum búin að hugsa svo
mikið um þessi bóluefni að þau
eru farin að taka á sig sinn eigin
karakter. Pfizer slær mann sem
háþróað tækniundur, framleitt
í rándýrri og framtíðarlegri til-
raunastofu á meðan Janssen er
af gamla skólanum. Ég sé fyrir
mér gamlan, sérvitran vísinda-
mann á eyðibýli að sulla í pottum
og prófa glundrið á hundinum
sínum sem er kominn með tvö
höfuð og sjö fætur en er að öðru
leyti undarlega stálsleginn.
Að íslenskum sið ákvað
ég strax að mæta alls ekki á
boðuðum tíma. Ég lagði á mig
allavega þriggja tíma vinnu til að
spara mér mögulegan hálftíma í
röð, var með menn á staðnum og
fékk upplýsingar í rauntíma um
gang mála. Þegar leiðin var orðin
greið þusti ég af stað. Umgjörðin
í Höllinni er tilkomumikil,
hugguleg tónlist í hljóðkerfinu
og beint streymi frá Geldingadal.
Sennilega einsdæmi í heiminum
að bein útsending frá virku eld-
gosi í innan við 50 km fjarlægð
teljist besta leiðin til að róa fólk
niður.
Það vantaði ekki að ferlið væri
allt fumlaust og faglegt. En ég veit
ekki hvort það var eldgosið, sam-
særiskenningarnar eða nálarnar
en bara á þeim 20 mínútum sem
ég var þarna var talsvert um
aðsvif og yfirlið. Fólk er þó f ljótt
á fætur aftur, rétt eins og þjóð-
félagið um þessar mundir. Ekki
seinna vænna, við höfum bara
þrjú ár til að njóta frelsisins! n
Janssen-glussinn
44%
18-80 ára lesa Fréttablaðið
daglega að meðaltali*
*Samkvæmt prentmælingum Gallup
20ÁRA— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —
Sími: 550 5050
soludeild@frettabladid.is
NÁÐU TIL
FJÖLDANS!
ÞINN STUÐNINGUR
ER OKKAR
ENDURHÆFING
ljosid.is
Verslaðu á 66north.is
Fylgdu okkur á Instagram @66north