Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 01.12.1950, Page 15
STARFSMANNABLAÐIÐ
15
Samþykktir 13. þingsins.
1. Laimamál. Endurskoöuu launalaga.
13. þing B.S.R.B. ítrekar fyrri kröf-
ur um setningu endurbættra launalaga.
Hinsvegar telur þingið, að upplýsing-
ar þær, sem fengizt hafa um frv. til
nýrra launalaga, bendi til þess, að það
frv. sé ekki í nægu samræmi við kröf-
ur bandalagsþinga og milliþinganefndar
í dýrtíðar- og launamálum.
Þingið telur því nauðsynlegt, að kjósa
3 manna milliþinganefnd, er nú þegar
fái að f jalla um umrætt frv. í nánu sam-
ráði við einstök félög innan B.S.R.B.
og stjórn bandalagsins.
Leitast verði við að fá það frv.
flutt og samþykkt á reglulegu Alþingi
1951.
Við athugun frv. leggur þingið á-
herzlu á eftirtalin atriði:
1) Flokkað sé eftir störfum, en ekki
stofnunum.
kostur á að kynna sér til hlítar ástæð-
ur fyrir þeim.
Félagið leyfir sér að vekja at-
hygli á því í sambandi við fyrirhug-
aðan samdrátt og sparnað í rekstri rík-
isins, að eigi er síður nauðsynlegt að
löggjafinn beiti sér fyrir svipuðum
skipulagsbreytingum í þeim einka-
rekstri, sem nýtur stórfelldrar aðstoð-
ar ríkssjóðs árlega.
Hætta er á, að sparnaðartilraunir í
ríkisrekstri verði ekki teknar alvarlega,
nema sýnt sé, að ákveðinn vilji sé til
þess og viðleitni að afnema sérrétt-
indi til óhófseyðslu og sóunar á hvers-
konar verðmæturr þjóðarinnar."
2) Enginn starfsmaður lækki í laun-
um, meðan hann gegnir því starfi, sem
hann hefur við gildistöku nýrra launa-
laga.
3) Að laun séu a. m. k. sambærileg
við það sem tíðkast á frjálsum vinnu-
markaði en lægstu laun þó svo há, að
teljast megi lífvænleg.
4) Að þar til kjörin nefnd (sbr. sam-
þykktir fyrri þinga B.S.R.B.) ákvarði,
hvort stöður þær, er losna, verði lagð-
ar niður eða ekki.
5) Tala starfsmanna verði ekki á-
kveðin í launalögum.
6) Að jafnrétti karla og kvenna til
starfa og launa verði tryggt.
7) Bráðabirgðaákvæði launalaganna
verði efnislega þannig: Þar til sett hafa
verið lög um réttindi og skyldur em-
bættismanna og starfsmanna hins opin-
bera, skal vinnutími ákvarðaður í fullu
samráði við stjórn B.S.R.B.
Auk þessa er þingið samþykkt stefnu-
atriðum, sem fram koma í tillögum þeim
um launamál, sem stjórn B.S.R.B. lagði
fram í þingbyrjun og leggur sérstaka
áherzlu á tölulið 1 A—B, tölulið 3 og
5 og tölulið 6, fyrri málsgrein.
Leiðrétting launa.
Vegna dráttar, sem verða kann á setn-
ingu nýrra launalaga, felur 13. þing
B.S.R.B. stjórn bandalagsins að fá nú
þegar bætt kjör þeirra, sem mestum
misrétti hafa verið beittir um laun og
starfstíma.
Launaniál bæja.starfsmanna.
A. 13. þing B.S.R.B., felur stjórn
bandalagsins að stuðla að því eftir