Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.11.1966, Side 6
firði og Kristín Þorláksdóttir frá Starfs-
mannafélagi Reykjavíkurborgar.
Vararitarar voru kosnir Ingólfur Guð-
mundsson frá Félagi starfsmanna stjóm-
arráðsins og Ármann Halldórsson, frá
Landssambandi framhaldsskólakennara.
Þingforsetar og ritarar voru sjálfkjömir
þar sem ekki komu fram aðrar uppástung-
ur.
Síðan var kosin nefndanefnd.
Samþykkt var tillaga um að kjósa, auk
nefnda skv. 17. grein þingskapa þessar
tvær nefndir:
Skipulagsnefnd (9 menn) og Samnings-
réttarnefnd (7 menn).
Gefið var kaffihlé til kl. 15.15 en þá
hófst fundur að nýju.
Skýrsla stjórnar B.S.R.B.
Formaður bandalagsins flutti skýrsluna,
en henni var útbýtt prentaðri, meðal full-
trúanna.
I skýrslunni var gerð grein fyrir helztu
viðfangsefnum samtakanna frá því, er síð-
asta bandalagsþing var haldið í sept. 1964.
Þegar formaður B.S.R.B., Kristján
Thorlacius, hafði flutt skýrsluna, vék
hann að aðalmáli þingsins um samnings-
og verkfallsrétt opinberra starfsmanna og
taldi nauðsynlegt, að það mál yrði vand-
lega rætt á þinginu.
F ormaður þakkaði starfsmönnum banda-
lagsins vel unnin störf.
Gjaldkeri B.S.R.B., Einar Ólafsson, las
endurskoðaða reikninga bandalagsins fyr-
ir árin 1964 og 1965.
Umræðum um skýrslu bandalagsstjórn-
ar og reikninga var frestað.
Stjórn bandalagsins lagði fram drög að
ályktunum um nokkur mál svo og fjár-
hagsáætlun, og var þeim vísað til þing-
nefnda.
Framsögumaður nefndanefndar, Sverrir
Júlíusson, lagði fram tillögur um skipun
þingfulltrúa í nefndir og voru þær sam-
þykktar einróma.
Fundi var slitið kl. 17.00.
2. fundur þingsins var settur mánudag-
inn 3. okt. kl. 16.30. Á dagskrá var skýrsla
og reikningar bandalagsstjórnar. Til máls
tóku þessir: Haraldur Steinþórsson, Lud-
vig C. Magnússon, Matthías Guðmunds-
son, Guðjón B. Baldvinsson, Ólafur
Björnsson og Kristján Thorlacius. Fundi
var slitið kl. 19.40.
3. fimdur hófst þriðjudaginn 4. okt. kl.
16.30. Voru þá samþykktir samhljóða
reikningar bandalagsins.
Kynnt var inntökubeiðni, sem þinginu
barst frá Starfsmannafélagi Ríkisútvarps-
ins — Sjónvai'ps. Var samþykkt að vísa
henni til nefndar.
Páll Bergþórsson lagði fram tillögur
Starfskjaranefndar og hófust miklar um-
ræður um þær. Þessir tóku til máls: Val-
borg Bentsdóttir, Ludvig C. Magnússon,
Teitur Þorleifsson, Ólafur S. Ólafsson,
Bjöm Bjarman, Þorvaldur Steinason,
Ágúst Geirsson, Matthías Guðmundsson,
Ólafur Bjömsson, Sæmundur Símonarson,
Haraldur Steinþórsson, Karl Helgason og
Anna Loftsdóttir.
Var samþykkt að vísa tillögunum ásamt
breytingatillögum aftur til starfskjara.
nefndar.
Var gefið matarhlé um kl. 19 og hófst
fundur aftur kl. 20.45. Kaffihlé var veitt
kl. 22.30.
Framsögumaður samningsréttarnefndar,
Skúli Þorsteinsson, lýsti tillögu nefndar-
innar og var hún samþykkt samhljóða.
Af hálfu skipulagsmálanefndar hafði
Gísli Teitsson framsögu og voru tillögur
hennar samþykktar samhljóða.
Baldur Pálmason, framsögumaður út-
■6 ÁSGARÐUR