Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.11.1966, Blaðsíða 48
fárra cinstaklinga telja samtökin sér ekki fært
aS eiga aðild að lausn málsins á þeim grundvelli.“
Ekkert heyrðist síðan frekar um lánveitingar
af hálfu ríkisstjómarinnar og urðu því skatt-
greiðendur að bera byrðar sínar óstuddir í þetta
skipti sem og endranær.
Kjarasamningagjald.
Síðasta þing B.S.R.B. skoraði á Alþingi að lög-
festa ákvæði, sem heimili bandalaginu að krefj-
ast kjarasamningsgjalds af öllum þeim starfs-
mönnum, sem taka laun samkvæmt kjarasamn-
ingum B.S.R.B. og ekki eru innan vébanda banda-
lagsins.
Stjóm bandalagsins var falið að semja rök-
studda greinargerð með þessu, og var hún send
fjármálaráðherra í okt. 1964. Formlegt svar hef-
ur ekki borizt, en ráðherra mun hafa talið eðli-
legt að þetta yrði athugað í sambandi við endur-
skoðim laganna um kjarasamninga opinberra
starfsmanna, sem sérstök nefnd fjallar um og
getið er annars staðar.
Bráðabirgðasamningar verkalýðsfélaga í sumar.
Stjórn B.S.R.B. hefur á tveimur fundum rætt
þau viðhorf, sem skapazt hafa við samninga þá,
sem ýmis verkalýðsfélög gerðu í júní og júlí
1966. Ákvað stjórn bandalagsins að senda fjár-
málaráðherra eftirfarandi bréf af því tilefni:
„Af yfirliti, sem Hagstofa íslands hefur gert
fyrir bandalagið kemur fram, að í júní og júlí
þ. á. hafa verkamannafélagið Dagsbrún, Iðja,
félag verksmiðjufólks í Reykjavík, Starfsstúlkna-
félagið Sókn og nokkur önnur verkalýðsfélög
samið um 3,5% launahækkun eða meira til bráða-
birgða, en þessir bráðabirgðasamningar munu
gilda til 1. október n. k. Frá sama tíma eru lausir
samningar hjá öðrum verkalýðsfélögum innan
Alþýðusambands íslands.
Stjóm Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
hefur ákveðið að bíða átekta fram yfir 1. októ-
ber með kröfugerð skv. 7. gr. laga nr. 55/1962,
en áskilur sér rétt til þess að gera síðar á þessu
ári kröfur um launahækkanir til samræmis við
kjarabætur þeirra verkalýðsfélaga, sem þegar
hafa gert samninga í sumar.“
Félagsmannafjöldi.
Aðildarfélög bandalagsins em 28 og er það
óbreytt frá síðasta bandalagsþingi. Meðlimafjöldi
þeirra í árslok 1965 var 5742. í árslok 1963 voru
aðildarfélögin 29 (Læknafélagið var þá með) og
meðlimafjöldinn 5149.
Fundir:
Stjórnarfundir á kjörtímabili stjórnarinnar
hafa verið haldnir 33. Kjararáð hefur haldið 103
fundi og launamálanefnd haldið 4 fundi.
M INN BANKI
$
ANNAST ÖLL
INNLEND
BANKAVIÐSKIPTI
GREIÐIR HÆSTU
VEXTI AF
SPARIFÉ
48 ÁSGARÐUR