Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 14.02.1967, Blaðsíða 57
STJORN
BSRB
mmmmmsm
Kjararáð:
Stjórn bandalagsins kaus Kjararáð til tveggja
ára á fundi 30. nóv. s. 1. Þessir voru kjörnir ein-
róma:
Aðalmenn:
Kristján Thorlacius, form. B. S. R. B., Bald-
vin Jóhannesson, símvirki, Guðjón B. Baldvins-
son, deildarstjóri, Kristján Halldórsson, barna-
kennari, og Páll Bergþórsson, veðurfræðingur.
Varamenn:
Jón Kárason, aðalbókari, Ólafur S. Ólafs-
son, gagnfræðaskólakennari, Páll Hafstað, full-
trúi, Ragnheiður Stephensen, hjúkrunarkona
og Valdimar Ólafsson, varðstjóri hjá flugmála-
stjóra.
Kjaranefnd
A sama fundi var Kristján Thorlacius endur-
kjörinn aðalmaður í Kjaranefnd til tveggja ára
og Valborg Bentsdóttir varamaður.
Kjaradómur
Stjóm bandalagsins hefur samþykkt að til-
nefna Eyjólf Jónsson, lögfræðing, sem aðalmann
í Kjaradómi til fjögurra ára og Þorkel Gísla-
son, lögfræðing, til vara.
Ráðstefna í Stokkhólmi
í byrjun september 1966 sendi TCO—S í
Svíþjóð aðilum að NOSS, Sambandi ríkisstarfs-
manna á Norðurlöndum, boð um ráðstefnu er
halda skyldi í Stokkhólmi dagana 4.—8. októ-
ber 1966.
Var þetta hin fyrsta ráðstefna, sem haldin var
eftir að lokið var endurskipulagningu NOSS
á s. 1. vori.
Viðfangsefni ráðstefnunnar var ákveðið:
1. Samningsréttur ríkisstarfsmanna og meðferð
samningamála, þ. e. aðferðafræði (metodik)
við gerð kjarasamninga.
2. Skýrslur um gang samninga ríkisstarfsmanna
á Norðurlöndmn og fengnar niðurstöður í
þeim kjarasamningum, sem í gildi eru. Enn-
fremur var skýrt frá ástandi og horfum um
þá þætti kjarasamninga, sem enn var ólokið.
3. Heimsóknir til höfuðstöðva samningaaðila
í Svíþjóð.
4. Umræður um niðurstöður ráðstefnunnar og
framtíðarhorfur.
Af hálfu B. S. R. B. sóttu þeir Guðjón B.
Baldvinsson og Sverrir Júlíusson ráðstefnuna
og hafa gefið stjórn bandalagsins skýrslu um
förina.
Næsta ráðstefna er áformuð í Noregi um
mánaðamótin maí—júní og verða bráðlega
ákveðin viðfangsefnin, sem þá verður fjallað
um.
Yfirkjörstjórn
Nú stendur yfir allsherjaratkvæðagreiðsla
um uppsögn kjarasamninga ríkisstarfsmanna
og er henni stjómað af yfirkjörstjórn, sem
bandalagsstjóm kaus á fundi 30. nóv. s. 1.
Yfirkjörstjórn skipa: Einar Ólafsson, útsölu-
stjóri, formaður, Aðalsteinn Norberg, deildar-
stjóri og Hrefna Sigvaldadóttir, kennari. Vara-
menn eru: Þorsteinn Óskarsson, símvirki, Berg-
mundur Guðlaugsson, tollvörður og Ólafur
Tímótheusson, póstafgreiðslumaður.
ASGARÐUR
57