Fréttablaðið - 18.06.2021, Qupperneq 8
Það er verið að ræða
um að tryggja það að
árekstrar verði ekki á
milli manna.
Jón Þór Ólason,
stjórnarfor-
maður Stanga-
veiðifélags
Reykjavíkur.
Forsvarsmenn Stangaveiði-
félags Reykjavíkur og hesta-
mannafélagsins Fáks segja
samstarf gott um vegslóða
veiðimanna sem tengdur
hefur verið við reiðleiðakerfi.
Ýmsir hafa þó áhyggjur af því
að slys geti orðið á slóðanum.
kristinnhaukur@frettabladid.is
REYKJAVÍK Sambýli stangveiði-
manna og hestamanna á vegslóða
við Elliðaár hefur valdið núningi
og nokkrum áhyggjum um öryggi.
Forsvarsmenn Stangaveiðifélags
Reykjavíkur og hestamannafélags-
ins Fáks segja félögin hafa gott sam-
starf og að skilti verði sett upp á
svæðinu.
Umræddur slóði er 700 metra
langur, vestan við skeiðvöll Fáks.
Orkuveita Reykjavíkur byggði hann
á sínum tíma að beiðni Stangaveiði-
félagsins. Með nýju deiliskipu-
lagi Elliðaárdalsins var ákveðið
að Fákur fengi að deila veginum
og tengja hann inn í sitt reiðleiða-
kerfi. Fékk Fákur fjárveitingu, bæði
frá Landssambandi hestamanna og
Reykjavíkurborg til að laga slóð-
ann.
„Þeir voru mjög fegnir því að
vegurinn var orðinn ónothæfur
og hár hryggur í honum miðjum,“
segir Dagný Bjarnadóttir, sem sér
um reiðleiðamál hjá Fáki. Segir hún
samráð við stjórn Stangaveiðifélags-
ins hafa verið gott. „Þetta er ekkert
vandamál. Þeir eru á tímum þegar
eru mjög fáir hestar á veginum og
öfugt.“
Stangveiðimenn eru þó ekki á eitt
sáttir við fyrirkomulagið og eru ugg-
andi yfir því að hestafólki og veiði-
mönnum, oft á stórum bílum, sé att
inn á slóðann sem sé þröngur. Hafa
stangveiðimenn meðal annars verið
stöðvaðir af hestamönnum sem
vilja þá af veginum, vitandi ekki að
þeir megi keyra hann.
Lagði Stangaveiðifélagið fram til-
lögu um að vegslóðanum yrði deilt
yfir árið. Stangveiðimenn hefðu
hann út af fyrir sig 1. maí til 15.
september og hestamenn þess utan.
Fákur hafnaði þeirri tillögu.
„Við höfum kynnt það á okkar
heimasíðu að þetta sé slóði sem við
deilum með stangveiðimönnum og
allir eiga að vita það,“ segir Dagný.
„Við beinum því til reiðskólanna að
fara ekki þennan slóða svo það sé
ekki löng lest af reiðskólakrökkum
á meðan menn eru að flýta sér milli
veiðistaða.“
Jón Þór Ólason, stjórnarformaður
Stangaveiðifélagsins, hafnar því
einnig að ágreiningur sé milli veiði-
og hestafólks út af slóðanum. Hann
segir að verið sé að útbúa skilti til að
tryggja betra öryggi. „Það er verið að
ræða um að tryggja það að árekstrar
verði ekki á milli manna. Við erum
ekki í stríði við Fák,“ segir Jón Þór.
Eins og Dagný segir hann að skila-
boðum verði komið til þeirra sem
veiða við Elliðaárnar. „Þetta breytir
því ekki að okkar veiðimenn geti
keyrt þarna. Það þarf bara að sýna
aukna aðgæslu,“ segir hann. n
Áhyggjur af notkun stangveiðimanna
og hestamanna á sama vegslóðanum
Stangveiðimenn í Elliðaánum deila vegslóða með hestamönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
arib@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL „Það er búið að hafa
af mér æruna fyrir að hafa stolið
eigin sög,“ segir Emil Thorarensen,
íbúi á Eskifirði. Emil var ákærður
í janúar af lögreglu á Austurlandi
fyrir að hafa tekið sög síðasta haust,
sög sem Emil segir að hafi upphaf-
lega verið í sinni eigu. Málið var
látið niður falla í Héraðsdómi
Austurlands nýverið.
Um er að ræða veltisög af gerð-
inni DeWalt. Forsaga málsins er
löng en sögin var keypt þegar
Kárahnjúkavirkjun var í smíðum.
„Ég átti fyrirtæki ásamt góðum
vini mínum. Við fórum að byggja
hús úr brasilískum harðvið. Þegar
álverið kom á Reyðarfirði þá hugs-
uðu margir sér gott til glóðarinnar,
þar á meðal ég. Þetta fyrirtæki átti
ýmislegt, þar á meðal þessa DeWalt
veltisög,“ segir Emil.
„Í hruninu 2008 þá fór allt á haus-
inn. Ég þurfti að greiða 10 milljónir
í persónulegar ábyrgðir.“ Emil vildi
ekki tjá sig sérstaklega um hvernig
sögin endaði í hans persónulegu
eigu, en þrotabúi fyrirtækisins var
slitið fyrir allmörgum árum. „Sögin
hún dagaði uppi hjá mér. Ein sög var
ekki mál málanna.“
Svo gerðist það að Emil fór í fyrir-
tækjarekstur með öðrum manni.
„Við keyptum húsnæði sem þurfti
að lappa upp á. Ég lánaði honum
sögina.“ Svo gerðist ekki neitt að
sögn Emils. „Ég fór að spá í hvar
sögin væri, mundi það ekkert.
Nema það að maður á Stöðvar-
firði sagði mér hvar sögin væri,
hún væri í gámi. Ég spurði son hans
hvort sögin væri þarna. Hann þurfti
að spyrja mömmu sína. Mamma
hans, sem er þjófur í eðli sínu, sagði
að þau ættu sögina.“ Endaði það
með því að Emil fór og sótti sögina.
„Gámurinn var ólæstur. Ég braust
ekkert inn. Næsta sem ég veit að ég
er ákærður fyrir að stela eigin sög.“
Getur verið að hún hafi ekki vitað
betur?
„Ég vissi betur,“ segir Emil. Óttast
hann að umræða um þetta mál hafi
skaðað orðspor hans fyrir austan.
„Ég er orðinn 67 ára gamall og hefði
aldrei dottið í hug að gerast þjófur,“
segir hann. „Það er ekki gaman að
vera ákærður.“ n
Æran horfin eftir ákæru fyrir að stela eigin sög
Veltisög af gerðinni DeWalt.
kristinnpall@frettabladid.is
AUSTURRÍKI Heilbrigðisráðuneyti
Austurríkis áætlar að með bólu-
setningum hafi tekist að bjarga
rúmlega átján hundruð manns í
vor sem annars hefðu látið lífið af
völdum kórónaveirunnar. Rúmlega
tíu þúsund manns hafa látið lífið
af völdum Covid-19 í Austurríki af
þeim 650 þúsund sem hafa smitast
en um 2.200 létust á þriggja mánaða
tímabili í vetur.
Bólusetningarherferð stjórn-
valda í Austurríki gengur ágætlega
og er um fjórðungur landsmanna
á bólusetningaraldri kominn
með bóluefni frá einum af fjórum
bóluefnaframleiðendum sem hafa
fengið markaðsleyfi í landinu. Þá
er tæplega helmingur landsmanna
kominn með fyrri bólusetninguna
og sjö prósent íbúa landsins búin að
smitast og ná sér af veirunni.
Heilbrigðisráðuneytinu í Austur-
ríki barst fyrirspurn um að áætla
hversu mörg dauðsföll hefði tekist
að koma í veg fyrir með bólusetning-
um og var áætlað að 1.807 til viðbót-
ar hefðu látist og um fjögur þúsund
þurft innlögn á spítala. Markmið
stjórnvalda er að ná sjötíu prósent
bólusetningu fyrir haustið. n
Telja bóluefni
hafa bjargað átján
hundruð manns
Frá mótmælum gegn bóluefnum í
Vín fyrr á þessu ári. MYND/AFP
thorgrimur@frettabladid.is
BANDARÍKIN „Þessi úrskurður stað-
festir það sem við vissum: Lögin um
aðgengilega heilbrigðisþjónustu
eru komin til að vera,“ sagði Barack
Obama, fyrrum Bandaríkjaforseti,
um úrskurð sem hæstiréttur Banda-
ríkjanna felldi í gær þar sem því var
hafnað að heilbrigðislögin sem
kennd eru við Obamacare brytu
gegn stjórnarskrá landsins.
Lögin hafa lengi verið bitbein
bandarískra íhaldsmanna, sem
hafa nánast frá upphafi reynt að fá
þeim hnekkt. Þetta var í þriðja sinn
sem hæstirétturinn felldi úrskurð í
tengslum við lögin og úr þessu þykir
ólíklegt að lögunum verði nokkurn
tímann hnekkt fyrir dómstólum.
Álitaefnið í málinu snerist um
svokallað einstak lingsumboð
heilbrigðislaganna, sem fól í sér
refsiskatt á fólk án heilsutrygginga.
Einstaklingsumboðið var í reynd
afnumið með skattalöggjöf Donalds
Trump árið 2017, sem mælti fyrir
um að heilsutryggingar þyrftu ekki
að vera hærri en núll dollarar. Gagn-
rýnendur Obamacare héldu því
fram að án einstaklingsumboðsins
brytu heilbrigðislögin í heild sinni
gegn stjórnarskránni þar sem nú
væri um að ræða ólögmæta skatt-
lagningu.
Málinu var vísað frá á þeim
grundvelli að kærendurnir hefðu
ekki lögvarða hagsmuni. n
Obamacare komið til að vera
Heilbrigðislögin í Bandaríkjunum er kennd við Obama. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
6 Fréttir 18. júní 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ