Fréttablaðið - 18.06.2021, Síða 12

Fréttablaðið - 18.06.2021, Síða 12
 Barrtré og erlendar ágengar trjátegundir eiga ekkert erindi ofan í íslenska lyngmóa þar sem þau umturna upp- haflegri gróðurþekju og því lífríki sem fyrir er. Við þurfum að skapa frelsi fyrir bændur til að byggja upp sína starfsemi til að ná fram hagkvæmni. Það er nöturlegt til þess að hugsa að samninga- nefnd ríkis- ins skuli vera stað- ráðin í því að skaða öryggis- menningu Land- helgisgæsl- unnar með þessum hætti. Það er hagur okkar allra að búa þannig um hnútana að ferðaþjón- usta skapi heils árs atvinnutækifæri á landsbyggðinni. Sjávarútvegur og landbúnaður hefur lengi verið for- senda byggða víða um land en með uppbyggingu nýsköpunar og ferða- þjónustu er hægt að tryggja aukin lífsgæði á landsbyggðinni. Blómlegt atvinnulíf skapar jafnframt for- sendu fyrir öflugri heilbrigðisþjón- ustu og annarri almennri þjónustu. Ferðaþjónusta líkt og nafnið bendir til er þjónusta. Aðdráttarafl lands- byggðarinnar fyrir ferðamenn er sannarlega náttúrufegurðin en það þarf einnig að tryggja aðgengi og góða þjónustu. Ferðamenn sækja í fjölbreytta þjónustu sem hefur jákvæð áhrif á nýsköpun og fram- þróun á landsbyggðinni. Lykillinn að því er að efla innviði sem felst fyrst og fremst í betri samgöngum og aukinni þjónustu við náttúru- perlur á hverju svæði fyrir sig. Slík uppbygging getur skipt sköpum þegar kemur að fjárfestingu og til að skapa mikilvæg störf og skemmti- legra samfélag. Í Norðvesturkjördæmi er ógrynni af náttúruperlum en mikilvægt er að efla aðgengi að þeim til að skapa tækifæri fyrir fjölbreytta verslun og þjónustu sem skapar frekari fjölbreytni í störfum á svæðinu. Uppbygging ferðaþjónustu skapar einnig aukin tækifæri fyrir íbúa, ekki bara fjölbreyttari störf heldur einnig þjónustu og afþreyingu. Það er mikið hagsmunamál fyrir Ísland að efla vöxt heilsársferðaþjónustu í Norðvesturkjördæmi en það er mikilvægt að dreifa álagi vegna umferðar ferðamanna um land allt. Það er mikilvægt að standa vörð um náttúruna og að auðlindir hennar séu nýttar með sjálf bærum hætti. Við þurfum að horfa til sjálf bærni í uppbyggingu ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Samhliða getum við skapað tækifæri fyrir nýsköpun í landbúnaði þar sem við leggjum áherslu á að auka fjöl- breytileika og ef la afurðaverðið með sjálf bærni að leiðarljósi. Við þurfum að skapa frelsi fyrir bændur til að byggja upp sína starfsemi til að ná fram hagkvæmni. Ferðaþjón- usta og landbúnaður geta stutt við uppbyggingu á umhverfisvænni mat vælaframleiðslu . Þar sem megin áherslan er á ábyrga efna- hagslega uppbyggingu þar sem við hlúum að mannauðinum, dýravel- ferð, umhverfinu og samfélaginu. Það er jafnframt mikilvægt að við tölum vel um ferðaþjónustu og fólk sem hefur fjárfest í þeirri uppbygg- ingu. Ferðaþjónusta, ásamt sjávar- útvegi, eru grunnstoðir atvinnulífs fyrir vestan og koma til með að efla efnahagslegt sjálf bærni svæðisins til lengri tíma litið. n Ferðaþjónusta – Augljós vaxtarbroddur á landsbyggðinni Guðrún Sigríður Ágústsdóttir tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðis- f lokksins í Norðvestur- kjördæmi. Íslenskt landslag hefur tekið umtals- verðum breytingum undanfarin ár vegna skógræktar, m.a. í nafni kol- efnisjöfnunar. Finnst mér kominn tími til að staldra við og huga betur að þeim spjöllum sem hömlulaus skógrækt getur valdið. Í rauninni ætti hvergi að leyfa umfangsmikla plöntun trjáa nema að undan- gengnu umhverfismati, svo miklum breytingum sem skógrækt veldur á landinu. Víða er plantað stórvöxn- um barrtrjám í valllendismóa sem smám saman gjörbreytir gróður- þekjunni, eyðir smágróðri og berja- lyngi og hrekur mófuglinn burt úr kjörlendi sínu. Víða er plantað upp um hæðir og fjallshlíðar, með fram vötnum og klettabeltum sem hindar útsýni svo jafnvel hraunmyndanir, hólar, klettar, gil og lækir hverfa á kaf í skóg eða ágengar gróðurteg- undir. Sums staðar er stórvöxnum trjám plantað nálægt vegum svo ferðalangar sjá lítið lengur nema upp í heiðan himininn og á vetrum draga trén að snjóalög. Það er gott og blessað og þakkar- vert að græða landið þar sem þörf krefur, græða uppblásin svæði og eyðisanda og stöðva uppblástur en það má ekki vera á höndum fárra einstaklinga að ákvarða hvar umbylta má landslagi á varanlegan máta. Umhverfismat vegna skóg- ræktar hlýtur að vera réttmæt krafa rétt eins og þegar um er að ræða virkjanir, vegaframkvæmdir eða annað sem veldur verulegri röskun á landslagi. Barrtré og erlendar ágeng- ar trjátegundir eiga ekkert erindi ofan í íslenska lyngmóa þar sem þau umturna upphaflegri gróðurþekju og því lífríki sem fyrir er. Á vegi okkar hjóna varð eitt sinn bandarísk fjölskylda sem hafði orð á því hve dásamlegt væri að aka um Ísland þar sem auðvelt væri að virða fyrir sér fjölbreytni landslagsins. Þegar þau ferðuðust um sitt heima- land sæist varla neitt nema tré eða heiður himinninn milli trjátopp- anna. Viljum við kaffæra landið okkar á þennan hátt? Ég segi nei, förum gætilega að gróðri landsins, „smávinirnir fögru“ eru foldar- skart eins og Jónas komst forðum að orði. n Skógrækt í umhverfismat Hildur Hermóðsdóttir eigandi Textasmiðjunnar. Það er margt framandi við f lug- bransann og auðvelt að ala á for- dómum gagnvart því sem fólk skilur ekki. Eitt af rótgrónustu úrræðum f lugrekenda og f lugmanna sem tryggir f lugöryggi er starfsaldurs- listinn, ein af burðarsúlum heil- brigðar öryggismenningar. Þetta fyrirkomulag er ekki séríslenskt og er ekki krafist samkvæmt lögum eða reglugerðum. Það þarf engan að undra að þetta rótgróna fyrirkomu- lag passi illa við ferkantað skapalón opinberrar stjórnsýslu. Núna tekst ekki að ljúka gerð kjarasamnings við flugmenn Landhelgisgæslunnar því samninganefnd ríkisins hefur bitið í sig þá sérviskulegu fordóma að starfsaldurslisti f lugmanna Gæslunnar standist ekki lög um opinbera starfsmenn. Orðið starfs- aldurslisti kemur ekki fyrir í lögum um opinbera starfsmenn. Öryggis- nefnd FÍA viðheldur alla jafnan ströngum hliðaraðskilnaði við kjaramál, en þegar framganga við- semjenda er til þess fallin að skaða flugöryggi látum við í okkur heyra. Það er líklega eins gott að sann- girnismenning (e. just culture) hafi verið innleidd í lög um loftferðir, annars er hætt við að flugrekendur sem skortir faglegan metnað myndu taka þann pól i hæðina að hafa sinn rekstur alls ekki með því móti, því þess væri ekki krafist í lögum. Þeir sem reka fjármálafyrirtæki á markaði kunna ef til vill vel við samkeppni á skrifstofunni, en að skapa slíkt andrúmsloft í stjórn- klefa fjölstjórnarvéla er allt annað en eftirsóknarvert. Það hefur til dæmis vakið furðu f jölmiðla- manna að f lugfélag þurfi að segja flugmönnum upp í starfsaldursröð komi til samdráttar. Málsmetandi fjölmiðlamaður hafði á orði síðast- liðið sumar að f lugfélag þyrfti að geta haldið í „öfluga af burðaflug- menn“ og fullyrti í viðtali að þetta væri „algerlega galið kerfi“ án þess að neinar röksemdarfærslur fylgdu með. Þetta kerfi er nú ekki galnara en svo að fleiri en færri flugfélög búa svo um hlutina, að minnsta kosti í þeim heimshluta sem við teljumst tilheyra. Hér hættir f jölmiðla- mönnum til að rugla saman rekstri f lugfélaga og fjármálafyrirtækja. En hverjir eru „öflugir afburðaflug- menn“? Eru það flugmennirnir sem valda minnstum kostnaði og lenda á áfangastað með minnst eldsneyti? Þeir sem lenda aldrei á varaflugvelli og fljúga mest fyrir sem lægst laun? Eru það flugmenn sem þora að taka áhættu, láta ekki samviskuna flækj- ast of mikið fyrir sér, eru kaldlyndir í erfiðum ákvarðanatökum og hafa getu til að ráðskast með fólk? Að heimfæra þau lögmál sem áhættu- sækin fjármálafyrirtæki starfa eftir upp á starfrækslu f lugvéla er einu orði sagt háskalegt. Lexíur flugiðn- aðarins og fjármálageirans í raun líka, eru margar og sárar. Við sækjumst flest öll eftir fram- gangi í starfi. Flugmenn sem starfa á fjölstjórnarvélum sjá eitt stórt tækifæri á sinni sjónarrönd. Að færast úr starfi f lugmanns í sæti flugstjóra. En það er ekki sjálfgefið, því þreyta þarf próf, bæði bóklegt og verklegt í f lughermi til þess að stíga fæti fram yfir þessa sjónarrönd. Það þykir í senn sanngjarnt og hluti af heilbrigðri öryggismenningu að flugmenn þreyti þetta eina próf er röðin kemur að þeim samkvæmt starfsaldursröð. Slíkt fyrirkomulag skapar sanngirni og fyrirsjáanleika. Flugrekendur með skýra stefnu og langtímamarkmið ráða einmitt til starfa flugmenn sem teljast líklegir til þess að standast þetta próf þegar röðin kemur að þeim. Þegar fólk er spurt um ávinninginn af því að styðjast ekki við starfsaldurslista er iðulega lítið um svör eða svörin á þá leið að þá sé hægt að ráðskast með flugmannahópinn. Svo er hægt að orða það á mismunandi máta. Af leiðingin af slíku stjórnlyndi er möguleg togstreita á milli f lug- manna sem þurfa að taka snarpar ákvarðanir í síbreytilegu og hröðu starfsumhverfi. Án starfsaldurslista hafa stjórnendur óheft frelsi til að ráðskast með f lugmenn og hand- velja hvaða f lugmenn verða f lug- stjórar og hverjir ekki. Slíkt ástand hefur skaðleg áhrif á öryggismenn- ingu. Stærsti ábatinn fyrir f lug- rekanda er að með starfsaldurslista halda flugmenn fremur tryggð við flugrekandann. Muni samninganefnd ríkisins ná fram markmiði sínu, munu dyr spillingar og frændhygli standa opnar forstjórum Landhelgisgæsl- unnar til framtíðar. Það er nöturlegt til þess að hugsa að samninganefnd ríkisins skuli vera staðráðin í því að skaða örygg- ismenningu Landhelgisgæslunnar með þessum hætti. Að heimfæra ráðstafanir sem gilda um starfs- menn á t.d. opinberum skrifstofum annars vegar, upp á stjórnklefa fjölstjórnarflugvéla hins vegar, er fjarstæðukennt. Það er einlæg von okkar meðlima Öryggisnefndar FÍA að samninganefnd ríkisins öðlist nauðsynlegan skilning á öryggis- menningu f lugrekenda og setji til hliðar ferkantaða skapalónið.n Gæslan og starfsaldurslistinn Ingvar Tryggvason formaður Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnu- f lugmanna. 10 Skoðun 18. júní 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.