Fréttablaðið - 18.06.2021, Side 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652.
„Uppáhalds morgunmaturinn
minn er grísk jógúrt með góðu
múslí. Ég laga stundum múslí sjálf
en eftir að ég kynntist múslíinu frá
Deliciously Ella verður örugglega
minna um það. Það er engu líkara
en að Ella hafi sérmixað múslíið
sérstaklega fyrir mig; það er svo
ótrúlega ljúffengt og nostrað við
það eins og það sé heimagert,
stútfullt af hollum, gómsætum og
náttúrulegum hráefnum; berjum,
kanil, rúsínum, kókosflögum og
fleiru ómótstæðilegu góðgæti,“
segir einkaþjálfarinn og snyrti-
fræðingurinn Aðalheiður Ýr Ólafs-
dóttir.
Aðalheiður er upprunalega
sveitastúlka frá Patreksfirði og
mörgum kunn sem áhrifavaldur-
inn Heidi Ola.
„Ég hef alltaf verið kölluð Heiða
en þegar ég fór utan til að keppa
í módelfitness árin 2009 til 2014
áttu margir bágt með að bera fram
nöfnin Aðalheiður og Heiða, og
úr varð að ég var kölluð Heidi sem
festist við mig,“ útskýrir Heiða sem
varð meðal annars heimsbikar-
meistari í módelfitness árið 2012
og í 2. sæti í módelfitnesskeppn-
inni Arnold Classic í Bandaríkj-
unum.
„Í módelfitness ríkir heragi í
mataræði og þá var ég sannarlega
í öfgunum en einn daginn fékk ég
nóg og fer aldrei aftur í það sport.
Ég get ekki hugsað mér að gera
manninum mínum og syni það að
hugsa mest um sjálfa mig, að geta
ekki borðað það sama og þeir, og
vera föst í ræktinni tvisvar á dag.
Mataræðið er rosalega strangt og
stundum fór í skapið á manni að
þurfa að neita sér um allt mögu-
legt. Matseðillinn samanstóð af
kjúklingabringu með sætri kart-
öflu og káli og kannski grænu epli
í millimál. Þegar ég svindlaði fékk
ég mér gjarnan prótínstykki en ég
mæli heilshugar með Deliciously
Ella orkustykkjum sem eru frábær
fyrir þá sem langar í gott millimál
og eru aðeins um 200 hitaeiningar,
sem er mjög hentugt fyrir fólk í
aðhaldi.“
Slær fljótt á sætindaþörfina
Heiða er yfir sig hrifin af úrvalinu
frá Deliciously Ella. Hún er ekki ein
á báti þar því Ella er með vinsæl-
ustu heilsukokkum heimsins í dag,
með yfir tvær milljónir fylgjenda á
Instagram.
„Ella Mills fæddist á Englandi
1991. Árið 2011 glímdi hún við
ýmiskonar veikindi en lyf virkuðu
ekki sem skyldi. Hún ákvað því að
taka málin í sínar hendur og sjá
hvort breyting á lífsstíl og mat-
aræði hefðu betri líðan í för með
sér. Hún var léleg í eldamennsku,
vissi ekkert um plöntufæði og
skorti alla drift en til að berjast
gegn því öllu byrjaði hún að halda
dagbók yfir tilraunir sínar í eld-
húsinu og prófa nýjar uppskriftir
hvern einasta dag á vefsíðu sinni
deliciouslyella.com. Útkoman sló
fljótt í gegn, æðislegir réttir og
vörulína með sitthverju ljúffengu
og fljótlegu sem er auðvelt að taka
með sér í vinnuna, gönguferðina
eða bara til að hafa meðferðis í
töskunni til að grípa til í dagsins
önn,“ greinir Heiða frá.
Sjálf er Heiða sólgin í orkustykki
frá Deliciously Ella sem hún tekur
með sér í útivistina.
„Ella er með hollan og gómsætan
kost fyrir öll tækifæri. Þetta eru
seðjandi bitar úr döðlum, hnetum,
fræjum og fleiru sem slær fljótt á
sætindaþörfina og sumt er eins
og konfekt. Þar á meðal dýrindis
sælkeramolar sem er frábær kostur
þegar mann langar í eitthvað sætt
með kaffibollanum, líka snakk,
hnetur og möndlur til að maula
á kvöldin. Ég kolféll fyrir æðis-
legum kúlum úr cashew-hnetum
og hindberjum, sem og litlum
bollakökum með saltri karamellu.
Þetta er geggjað hollustunammi
til eiga þegar sætindaþörfin kallar
og þar kemur Deliciously Ella sterk
inn með fjölbreytt og heillandi
vöruúrval,“ segir Heiða.
Ella elskar alla og allir elska Ellu
Heiða starfaði sem einkaþjálfari
í World Class Laugum í átta ár,
eða þar til hún varð ófrísk af syni
sínum 2017.
„Maðurinn minn, Erlendur Kári
Kristjánsson, rekur sitt eigið garð-
yrkjufyrirtæki, Allt fyrir garðinn
ehf., og er með aðstöðu og verk-
stæði í gamalli hlöðu á Álftanesi.
Hann vinnur iðulega langa vinnu-
daga og því gekk illa upp að fara
aftur til starfa við einkaþjálfun
eftir að strákurinn okkar fædd-
ist. Ég gerðist því flugfreyja hjá
Icelandair, en svo kom Covid og
flugið datt upp fyrir. Þessa dagana
er ég að hjálpa manninum mínum
í fyrirtækinu, ásamt því að elda
og baka, sem ég elska,“ segir Heiða
sem byrjaði á samfélagsmiðlum
þegar hún fór að þjálfa og tekur að
sér ýmis samfélagsmiðlaverkefni,
ekki síst það sem tengist hollu
mataræði, eins og Deliciously Ella.
„Ég er dugleg að sýna hvað ég
borða og vil koma góðum kosti til
leiðar því mataræði er 80 prósent
af árangrinum þegar maður vill
vera í góðu formi. Ég er sjálf hætt
öllu öfgafæði og elda nú venjulegan
heimilismat, vil helst ekki vera í
gerviefnum né unnum mat, heldur
vel ég hollt og náttúrulegt fæði sem
ég get líka gefið barninu mínu.
Þar er Deliciously Ella einstakur
kostur, með náttúruleg hráefni og
engan gervimat, öll línan er glú-
tenfrí og vegan, og meira að segja
umbúðirnar eru umhverfisvænar,
segir Heiða sem er þó ekki græn-
keri sjálf en fær ekki nóg dásamað
vörurnar frá Ellu.
„Vinkona mín er heilsumark-
þjálfi og elskar líka Ellu. Hún er
dugleg að benda á skordýraeitur
og óæskileg innihaldsefni í hinum
og þessum matvælum og kýs ein-
göngu hreint og náttúrulegt fæði.
Hún hefur fylgt Ellu lengi, á mat-
reiðslubækurnar hennar og notar
app þar sem Ella gefur uppskriftir.
Þá spillir ekki fyrir að maður er
öruggur með að gefa börnunum
sínum allt frá Ellu.“
Njótum lífsins lystisemda
Heiða nýtur þess að borða hollt,
hreyfa sig og bæta heilsu sína og
annarra.
„Ég er hætt að vera með nammi-
dag því ég var stundum farin að
telja niður í nammidaginn og átti
það til að missa mig í gotteríinu.
Ef mig langar í sætt með kaffinu
fæ ég mér sætindi, sama hvaða
dagur vikunnar er. Það er líka
best að borða mest af kolvetnum
fyrri hluta dagsins og því hika ég
ekki við að fá mér súkkulaði út á
múslí eða með morgunkaffinu.
Þá næ ég að losa mig við nammi-
þörfina þann daginn. Þetta er allt
í hausnum á okkur og við þurfum
að breyta hugarfarinu og leyfa
okkur smá, í stað endalausra megr-
unar- og matarkúra sem erfitt er
að halda út til lengdar. Hver nennir
líka að vera vinkonan í sauma-
klúbbnum sem getur ekki borðað
vegna þess að það er ekki rétti
dagurinn? Borðum frekar minna
yfir þann daginn til að geta notið
saumaklúbbsins. Lífið er of stutt
fyrir hömlur, boð og bönn. Við
eigum að njóta lífsins lystisemda
og þá er ekkert betra en að eiga
girnilegt og hitaeiningasnautt holl-
ustugóðgæti frá Ellu til að njóta
með góðri samvisku og drekka
ískalt sódavatn með.“
Fylgist með Heidi Ola á Instagr-
am: heidiola og hladan_alftanesi
og Deliciously Ella á Instagram. n
Deliciously Ella fæst meðal annars
í Nettó, Hagkaup, Krónunni og
Heimkaup.
Heiða var vön
að útbúa sitt
morgunmúslí
sjálf en segir því
sjálfhætt eftir
að hún kynntist
múslítegundum
Deliciously Ella.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Heiða segir sæta bita Ellu hreint frábært hollustunammi.
Heiða stenst
ekki lostætar
kúlur Ellu með
kaffibollanum.
Þær eru með-
hindberjum og
cashewhnetum,
en til í fleiri út-
færslum. Allt frá Ellu Mills hefur á sér ljúfan og heimilislegan blæ.
Lífið er of stutt fyrir
hömlur, boð og
bönn. Við eigum að njóta
lífsins lystisemda og þá
er ekkert betra en að eiga
girnilegt og hitaeininga-
snautt hollustugóðgæti
frá Ellu til að njóta með
góðri samvisku. Þetta
eru seðjandi bitar í
dagsins önn og slá fljótt á
sætindaþörfina.
Heidi Ola.
2 kynningarblað 18. júní 2021 FÖSTUDAGURNÆRING OG HEILSA