Fréttablaðið - 18.06.2021, Side 20
Styrkt
aræfingar
eru í
rauninni
mjög
mikil
vægar
fyrir
líkamann
en lykil
atriðið er
að byrja
rólega og
alls ekki
með of
miklar
þyngdir.
Elín
Albertsdóttir
elin
@frettabladid.is
Anna Eiríksdóttir er eigandi
vefsíðunnar annaeiriks.is og
deildarstjóri hjá Hreyfingu.
Á síðu sinni gefur hún les-
endum mörg góð ráð ef þeir
vilja koma sér aftur í æfinga-
gírinn eftir hlé en margir
hættu hreyfingu í Covid.
Anna segir að mjög margir hafi
dottið úr gírnum á undanförnu
ári og séu núna að koma til baka
og koma sér í gang aftur. „Ég ráð
legg fólki að byrja rólega, setja sér
markmið og einfaldlega koma sér
af stað því ekki er eftir neinu að
bíða,“ segir hún. „Mjög gott er að
byrja á einföldum en fjölbreyttum
styrktaræfingum fyrir allan
líkamann sem hægt er að gera
með eigin líkamsþyngd. Það er
ekki nauðsynlegt að hafa lóð eða
önnur hjálpartæki. Ég er með fullt
af góðum styrktarprógrömmum
inni á minni síðu sem þægilegt er
að gera heima. Svo eru allir vel
komnir í Hreyfingu þar sem bæði
er hægt að fá góða aðstoð í tækja
sal eða prófa hóptíma,“ segir hún.
Anna segir að maður sé aldrei
of gamall til að stunda styrkt
aræfingar. Þær sé mjög góðar fyrir
allan aldur. „Styrktaræfingar eru
í rauninni mjög mikilvægar fyrir
líkamann en lykilatriðið er að
byrja rólega og alls ekki með of
miklar þyngdir. Ég myndi segja
að gott væri að æfa þrisvar í viku
en klárlega enn betra að gera það
oftar.“
Góður árangur
Styrktaræfingar hafa verið vin
sælar hjá bæði konum og körlum
undanfarin ár. Æfingarnar eru
góðar til að styrkja líkamann og
auka fitubrennslu.
Nauðsynlegt er að fá góðan
þjálfara í upphafi til að gera
æfingarnar rétt. Í upphafi finnur
fólk fyrir þreytu eftir þjálfun en
smátt og smátt eykst þrekið og
árangurinn kemur í ljós. Læra
þarf réttu tæknina í upphafi til að
koma í veg fyrir meiðsli.
Best er að halda sig við grunn
æfingar í upphafi eða þangað
til þjálfunin er komin í rútínu.
Markmiðið er að byggja upp
sterkan líkama til lengri tíma litið.
Sambland af hreyfingu og góðu
mataræði bætir bæði lífsgæði
og heilsu. Þegar fólk sér árangur
bæði í meiri orku og betri líðan
eykst sjálfstraustið. Ekki gleyma
hvíldardögum því þeir eru nauð
synlegir.
Hér koma nokkrar leiðbeiningar
frá Önnu Eiríks um hvernig best er
að komast aftur í gírinn.
Aldrei of gamall fyrir styrktaræfingar
Styrktaræfingar eru góðar fyrir allan líkamann. Þær styrkja og bæta jafnvægi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Anna Eiríks
heldur úti vef-
síðu þar sem
hún aðstoðar
fólk við að
hefja reglu-
lega hreyfingu.
MYND/AÐSEND
Viltu komast aftur í gírinn?
Ef þú ert ein/n af þeim sem ætl
aðir að taka vel á því í ræktinni en
gerðir það ekki og ert algjörlega
dottin/n úr æfingagírnum þá eru
hér fjögur einföld ráð sem hjálpa
til við að komast aftur í gírinn.
n 1. Settu þér markmið
Þessi vísa verður aldrei of oft
kveðin. Það skiptir ótrúlega
miklu máli að setja sér mælan-
leg markmið sem stefnt er að
með markvissum hætti. Einnig
er gott að búta markmiðin niður
í smærri sigra og verðlauna sig
fyrir hvert skref að stóra mark-
miðinu, þannig verður leiðin að
því viðráðanlegri og skemmti-
legri.
n 2. Finndu æfingafélaga
Sumir eru mjög sjálfstæðir og
agaðir þegar kemur að þjálfun
og þurfa enga auka hvatningu
á meðan aðrir hafa sig varla af
stað en þá getur góður æfinga-
félagi skipt sköpum. Æfinga-
félaginn getur verið góður
hópur, einkaþjálfari, vinur/
vinkona, fjölskyldumeðlimur
eða fjarþjálfari en það getur
gert gæfumuninn að finna sinn
æfingafélaga til þess að halda
sér við efnið.
n 3. Finndu hreyfingu sem þér
finnst skemmtilegt að stunda
Það er miklu auðveldara að
halda sér í góðum æfingagír
með því að stunda hreyfingu
sem manni þykir skemmtileg og
því nauðsynlegt að finna hvað
hentar best og hverju maður
hefur gaman af.
n 4. Haltu þér við efnið
Ef þú hefur ekki hreyft þig reglu-
lega í langan tíma þá er nauð-
synlegt að fara rólega af stað og
halda sér við efnið. Margt smátt
gerir eitt stórt, æfingarnar þurfa
ekki að vera langar til þess að
skila árangri og enginn er full-
kominn í mataræðinu, aðalmál-
ið er að halda sér við efnið. n
Nánar má kynna sér æfingahug-
myndir Önnu á Instagram.com/
aeiriks eða á vefsíðu hennar
annaeiriks.blog.is
4 kynningarblað 18. júní 2021 FÖSTUDAGURNÆRING OG HEILSA