Fréttablaðið - 18.06.2021, Page 23
Við vitum hins
vegar að það getur
verið erfitt að komast
almennilega af stað ef
fólk finnur mikið fyrir
átökunum í kroppnum
daginn eftir. Þar getur
OsteoStrong hjálpað
verulega til.
Nýr lífsstíll getur verið
flókinn og það getur tekið
langan tíma að samræma
hann því lífi sem fólk lifir.
OsteoStrong er nýlegt kerfi
sem hjálpar fólki að bæta
líkamlegt atgervi hratt og
örugglega í stuttri heimsókn
einu sinni í viku. Þannig
verður breytingin einföld
og getur auðveldað aðrar
ákvarðanir að betri heilsu.
Með 10 mínútna vikulegri
ástundun tekst meðlimum
OsteoStrong að auka styrk sinn og
jafnvægi hraðar en annars staðar
án þess að finna fyrir harðsperrum
eða öðrum fylgifiskum. Meðlimir
auka styrk vöðva, beina, sina og
liðbanda umtalsvert auk þess að
losa sig við verki. Sérhæfð tæki
bjóða meðlimum að nýta vöðva í
hámarks aflstöðu. OsteoStrong er í
Hátúni 12.
Sumarið er tími til að prófa
eitthvað nýtt
„Sumrin eru svo spennandi og
sumarið í ár er þar alls engin
undantekning. Það eru allir svo
spenntir að takast á við spenn-
andi verkefni úti við, hvort sem
það er að klífa fjall, hjóla, spila
golf, synda í sjónum eða gera fínt
í garðinum. Við vitum hins vegar
að það getur verið erfitt að komast
almennilega af stað ef fólk finnur
mikið fyrir átökunum í kroppnum
daginn eftir. Þar getur OsteoStrong
hjálpað verulega til. Við viljum
endilega styrkja fólk í því að njóta
íslenska sumarsins sem best. Það
langar engan að vera bundinn inni
á sumrin og því er heppilegt að
heimsókn í OsteoStrong tekur í
heildina um 20 mínútur einu sinni
í viku og þá fær fólk enn meira út úr
útiverunni og hreyfingunni,“ segir
Svanlaug Jóhannsdóttir annar
eigandi OsteoStrong. Hún bætir
við: „Við leggjum áherslu á gott við-
mót og notalegt umhverfi og erum
svo stolt þegar við heyrum það út
undan okkur að það hafi tekist.“
Flestir geta nýtt sér það sem
OsteoStrong býður upp á, fólk á
öllum aldri óháð líkamlegri getu.
Meðlimir geta átt von á að:
n Auka styrk
n Minnka verki í baki og liða-
mótum
n Minnka líkur á álagsmeiðslum
n Bæta líkamsstöðu
n Auka jafnvægi
n Lækka langtíma blóðsykur
n Auka beinþéttni
n 73% sterkari á ári
„Enginn annar möguleiki sem við
þekkjum býður upp á svona mikla
styrkingu á jafn stuttum æfinga-
tíma,“ segir Örn Helgason, annar
eiganda OsteoStrong. Athuganir á
árangri meðlima sýna að þeir eru
að meðaltali að styrkja sig um 73%
á ári.
Betra jafnvægi
„Fólk sér fyrst mun á jafnvæginu.
Eftir aðeins fimm skipti er fólk að
meðaltali búið að bæta það um
77%. Fyrir suma þýðir það að þeir
eru betri í golfi, eða stöðugri í fjall-
göngu. Fyrir aðra þýðir þetta að
þeir geta sleppt göngugrindinni,
eða átt auðveldara með að ganga,“
segir Örn.
2.000 meðlimir
„Um 2.000 manns hafa verið með-
limir hjá OsteoStrong og í hverri
viku sækja um 350 manns stöðina
í Hátúni. Við heyrum afrekssögur
á hverjum degi. Okkur fannst
best að láta fólkið okkar tala fyrir
sig, sögur af auknum lífsgæðum
eru frábær ástæða til að mæta í
vinnuna á morgnana,“ segir Svan-
laug.
Óstöðvandi með OsteoStrong
Það er lítið mál
að bregða á leik
úti í náttúrunni
ef fólk er í góðu
formi, jafnvel
þótt aldurinn
færist yfir.
OsteoStrong
hjálpar að ná
færni í jafnvægi.
Örn og Svana eru eigendur og stofnendur OsteoStrong á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þeir sem prófa tækin hjá OstoStrong mæla hiklaust með þeim. Árangur
kemur fljótt í ljós, til dæmis fyrir þá sem spila golf eða fara á fjöll.
Hvíldarstund
eftir æfingapró-
gramm.
OsteoStrong skilar mjög fljótt
breytingum á líkamanum.
Óstöðvandi í brekkunum
„Í Covid hafði ég minnkað þá hreyfingu sem ég stundaði og ekki verið í
jóga. Ég þurfti því að styrkja mig. Í dag er ég mun betri. Þegar ég byrjaði
í jóganu aftur fann ég að ég var jafnvel enn sterkari en ég var áður en
ég hætti. Ég var óstöðvandi þegar ég fór á fjöll og fann lítið fyrir brekk-
unum. Núna geysist ég upp brekkurnar eins og hind! Ég mæli með
OsteoStrong til að styrkja líkamann og það besta er að það styrkir líka
beinin og mótar líkamann. Svo er yndislegt og faglegt starfsfólk.“
Guðrún J. Kristjánsdóttir
Allar hreyfingar betri
„Ég var alltaf með mikla liðverki. Eftir tvö skipti hjá OsteoStrong þá
fann ég hvað þeir minnkuðu mikið. Allar hreyfingar líkamans urðu
betri, mér leið vel og hlakkaði alltaf til að mæta í tíma. Ég átti ekki von
á þeim árangri sem ég fékk, OsteoStrong er alveg magnað.“
Þórdís Guðmundsdóttir
Ganga úti í náttúrunni
„Þegar ég hóf ástundun hjá OsteoStrong var ég mjög slæm í hnjá-
liðum og baki. Fljótlega fann ég að verkirnir minnkuðu mikið. Það var
mikil og mikilvæg breyting fyrir mig. Ég fór að geta hreyft mig mikið
meira og ganga úti í náttúrunni. Heilsan varð öll önnur og miklu betri.
OsteoStrong er frábær staður og starfsfólkið mjög gott.“
Valgerður Skúladóttir
Betri í hnjánum
„Ég var með verki í hnjánum og jafnvægið var mjög lélegt. Ég stundaði
OsteoStrong í þrjá mánuði. Á þeim tíma minnkuðu verkirnir hægt
og rólega og jafnvægið varð miklu betra. Ég fann fyrir meiri styrk og
auknu úthaldi. OsteoStrong er frábær leið til að bæta heilsuna.“
Helga Stefanía Magnúsdóttir
Algert frelsi
„Þegar ég hóf ástundun hjá OsteoStrong var ég með verk sem leiddi
frá baki niður í hné. Ég var viss um að það væri einhver taugaklemma.
Ég hafði farið til heimilislæknis og sjúkraþjálfara en það breytti engu.
Mér til mikillar undrunar hvarf verkurinn eftir nokkur skipti. Ég var
sterkari og með meira jafnvægi. Frábært að losna loksins við þennan
verk. OsteoStrong fyrir mér er algert frelsi og svarið sem ég þurfti.“
Inga Hersteinsdóttir
Komst loksins á hestbak
„Það háði mér að vera með mikinn svima og lítið jafnvægi. Eftir þrjá
tíma hjá OsteoStrong var jafnvægið orðið margfalt betra og sviminn
nánast horfinn. Ég varð stöðugri og öruggari með mig. Loksins gat ég
farið út að hjóla og á hestbak sem ég gat ekki áður. OsteoStrong er
ótrúleg lausn fyrir mig.“
Grétar H. Þórisson
Jafnvægi
„Ég upplifði mikla breytingu á mér allri hjá OsteoStrong og jafnvægið
varð mun betra. Ég fann fyrir meiri krafti og miklum styrk í öllum
líkamanum. OsteoStrong er meiriháttar lausn við mínum bakvanda-
málum. Æfingarnar reyna ekki á bakið en styrkja það svo um munar.
Þær fara vel með mann og styrkja mann um leið.“
Íris Hall
Frír prufutími
„Við bjóðum upp á fría prufutíma
fyrir alla. Þetta er ný hugmynd og
það er gaman að geta sýnt fólki
hvað við gerum. Flestir koma til
okkar með margar spurningar
en fara frá okkur spenntir, glaðir
og með skýra sýn á það hvernig
OsteoStrong getur hjálpað þeim,“
segir Örn.
Frekari upplýsingar má fá á www.
osteostrong.is og í síma 419 9200.
Frían prufutíma má bóka á www.
Osteostrong.is og í síma 4199200
kynningarblað 7FÖSTUDAGUR 18. júní 2021 NÆRING OG HEILSA